16 mars 2009

Svo erfitt...

... að byrja aftur að blogga eftir svona langt hlé. Maður er bara búinn að vera á fullu og ég trúi varla hvað ég hef haft mikið að gera. Daníel er komin með rör í eyrun og miklu betri og ég er búin að ná úr mér flesnunni og búin að hitta dönsku mæðragrúbbuna. Ellen hefur það fínt og dafnar vel. Úff, þetta verður bara að duga í bil þar sem ég er algjörlega dottin úr öllu bloggformi.

Myndir fyrir febrúar

15 febrúar 2009

Gleði, gleði!

Ég er svo rosalega glöð og hamingjusöm þessa dagana að ég get ekki annað en vonað að aðrir séu það líka. Veit ekki hvort þessi gleði tengist nýtilkominni fjölgunn í fjölskyldunni og meðfylgjandi hormónasprengju eða hvað en ég vona engu að síður að það endist sem lengst. Svefninn hefur minnkað og vinnan á heimilinu aukist en einhverstaðar hef ég fengið aukaorku því ég finn ekki mikið fyrir þessu líkamlega séð. Ég hef uppgötvað ný lífsgildi og sé nú að hamingjan flest í minni vinnutíma, nægjusemi og góðum stundum með fjölskyldunni. Allt þetta kýs ég frekar en að geta verslað í kjötborðinu í Hagkaup og hafa aldrei áhyggjur af mánaðarmótunum. Ég get með sanni sagt að ég hef aldrei lifað eins sparlega á ævinni og hvað þá haft eins gaman af því að spá í tilboðum og hvað sé nú hagkvæmt að versla og hvar.
Um leið er ég búin að ákveða að komast meira inní danska matarmenningu og þó svo að það gangi nú hægar en maður átti von á þá hafa matarvenjur okkar svo sannarlega breyst og heldur í hollustuátt frekar en hitt. Allt er nýtt á þessu heimili og úr grænmetisafgöngum hafa uppstaðið nýstárleg salöt og misgóðir réttir. Eitt af því sem við erum farin að borða mjög mikið af eru gulrætur og eru þær ýmist borðaðar sem snakk, nesti, soðnar, bakaðar eða rifnar niður með því sem til er t.d. epli og sítrónu eða appelsínusafa. Rúgbrauð er annað sem er borðað næstum daglega og það heyrir til undantekningar að keypt sé hveitibrauð á þetta heimili. Maður er samt alltaf að reyna að víkka sjóndeildarhringinn og fyrr í dag fór ég í Nørrebromarkaðinn hérna rétt hjá mér og var að skoða framandi matarmenningu í hillunum. Þarna er aðalega halal matvörur fyrir múslima og íslamstrúar fólk og það er rosalega gaman að sjá hversu mikið er til af mat sem ég hef aldrei kynnst. Ég verslaði nú ekki mikið núna en prófaði samt nokkra hluti eins og krydd fyrir sterkar "kjötbollur", eftirrétt sem er nokkurskonar bakaður búðingur sem maður rúllar síðan upp, salami mini-pylsa úr nauta- og kalkúnakjöti og síðast en ekki síst bjórhnetur sem innihalda ekki hnetur heldur kjúklingabaunir. Það er svo margt sem mig langar til að prófa þarna t.d. alskonar réttir úr sérstökum pönnukökum og sætt álegg og kökur úr sojabaunum (tamari) ásamt öllum þeim tegundum af baunum, kryddi og fræjum sem maður getur og getur ekki hugsað sér. Það er svo sem nógur tími til stefnu til að prófa þetta allt.

Nú förum við Ellen bráðum að koma til landsins og spenningurinn og tilhlökkunin eru að aukast dag frá degi. En það er margt að gera og ég vildi óska að maður hefði meiri tíma til að hitta alla vini og fjölskyldu meira en ég sé fram á að geta gert. Ég er þegar farin að hugsa útí allt það sem ég ætla að fá mér að borða þegar ég kem heim og efst á listanum eru SS pylsur og lambalæri með brúnuðum kartöflum. Það sem er hins vegar mikilvægast að ég taki með mér heim er PÁSKEGG og ég vona svo sannarlega að það sé byrjað að selja þau! Annars er ég búin að mála mig dáldið útí horn hérna :S

09 febrúar 2009

Ég er á leiðinni!


Búin að panta flug og við Ellen komum í heimsókn til Íslands 19-25 feb.



04 febrúar 2009

Skíta, skíta, skíta veður...

Maður er sko alveg kominn með uppí kok af þessu viðbjóðslega veðri sem einkennir danskan vetur. Það sér ekki til sólar í marga, marga daga í röð, jafnvel vikur og alltaf kalt, grátt og yfirleitt blautt. Við íslendingarnir hérna erum á barmi alvarlegs grámygluþunglyndis og horfum öfundaraugum á myndir að heiman þar sem er sól og snjór og allir að missa sig í skíðaiðkun (og samkennd) þessa dagana. Það er ekki einu sinni fjall hérna hvað þá snjór! En þetta er víst gjaldið sem maður þarf að borga fyrir gott sumar og strendurnar - maður getur ekki fengið allt.
Daníel er góður af eyrnabólgunni og við vorum í skoðun í dag og hljóhimnan er að gróa vel. Það er hins vegar aftur að safnast vökvi bakið hana en þó engin sýking. Þannig að við eigum aftur pantaðan tíma hjá eyrnalækninum eftir mánuð í tékk og ef vökvinn er enn til staðar þá þarf að setja rör. Læknirinn sagði að vökvasöfnunin eins og hún er í dag er að taka u.þ.b. 20 desibil af heyrninni hans og til lengdar hefur þetta áhrif á talið og málþroska hjá barninu. Ég sagði henni að hann talaði nú þegar svo óskýrt að það skilur hann varla neinn nema við foreldrarnir en við höfum haldið hingað til að danskan væri kannski að hafa þessi áhrif. Hún sagði að það gæti vel verið beggja blands en víst hann talar móðurmálið mjög bjagað þá er það vísbending um að þetta vandamál sé búið að vera til staðar í lengri tíma án þessa að við vissum af því. Þannig að það eru því meiri líkur en minni að Daníel sé að fara að fá rör í eyrun og ég þarf að upplifa þá óþægilegu sjón að sjá hann svæfðan.
Við vorum annars algjörlega úr leik um helgina þar sem hérna á heimilinu geysaði ógurlega magapest. Ég tók fyrst af skarið á föstudagsnóttina og tæmdi líkamann algjörlega af öllu sem einhverntíma var matur. Var auðvitað skíthrædd um að missa svona mikinn vökva útaf brjóstagjöfinni en ef ég reyndi að drekka of mikið þá kom það alltaf sömu leið til baka. Á laugardaginn fengum við síðan bæði heiftarlegann hita og ótrúlega vanlíðan og þá slóst Einar með mér í matar-út-tæmingar-hópinn. Daníel slapp sem betur fer nokkurn veginn en ég held að meir að segja Ellen var slöpp því hún rétt gat vaknað til að drekka það litla sem ég gat gefið henni. Þetta gekk sem betur fer fljótt yfir en helgin var ónýt enda er maður algjörlega kraflaus en það þarf samt sem áður að sjá um tvö börn!
Það er annars mjög spennandi að fylgjast með ríkisstjórnarmálunum hérna frá Danmörku og það eru allir mjög forvitnir að vita hvað okkur íslendingum hérna finnst um þetta. Það er algjör lúxus að geta lesið fréttablaðið hérna beint í gegnum netið um leið og það kemur út. Best hefur mér fundist greinin hans Hallgríms Helgasonar sem birtist sl. laugardag undir nafninu "Bæ,bæ, gamla Ísland!" Þarna tekur hann saman þessa mögnuðu byltingu og útfærir hana í sínum einstaka stíl sem mér finnst svo skemmtilegur. Hérna kemur smá brot:

Við getum ekki beðið

Því við erum löngu fallin á tíma og nú þarf að taka til hendinni.

Við getum ekki beðið eftir því að kjósa nýja stjórn til að taka við af þeirri sem nú er tekin við. Við getum ekki beðið eftir því að kjósa stjórnlagaþing til að breyta stjórnarskránni. Við getum ekki beðið eftir því að hreinsa út í flokkunum og fá Raddir fólksins inn á þing. (En við þurfum ekki bara nýtt fólk á þing heldur alveg nýja og endurhugsaða stofnun sem heitir Alþingi.) Við getum ekki beðið eftir því að Sjálfstæðisflokkurinn haldi sinn auma landsfund. (Sem að þessu sinni verður haldinn undir kjörorðinu "Við settum Ísland á hausinn"). Við getum ekki beðið eftir því að ráðherrar Samfylkingar þori að mæta á almenna fundi í flokknum sínum. Við getum ekki beðið eftir því að Jóhanna Sigurðardóttir læri á niðurskurðarhníf. Við getum ekki beðið eftir því að Steingrímu Joð fari í þetta MBA-nám sem hann þyrfti svo nauðsynlega að fara í. Við getum ekki beðið eftir því að Sigmundur Davíð fái símann hjá öllum í S-hópnum. Við getum ekki beðið eftir því að Davíð nái að sópa síðustu krónunum út úr bergmálandi tómum Seðlabanka inn á biðlaunareikning sinn. Út með hann strax. Við getum ekki beðið eftir því að Jónas FME Jónsson nái að klára allt rauðvínið sem Kaupþing gaf honum áður en hann hættir 1. mars. Út með hann strax. Við getum ekki beðið eftir því að fá að frysta allar eigur Icesave-snillinganna upp í þessa stærstu skuld í heimi. Við getum ekki beðið eftir því að skuldir Baugs verði skuldir okkar, 3 milljónir á mannsbarn. Við getum ekki beðið eftir því að Jón Ásgeir kaupi alla fjölmiðla landsins og breyti þeim í Skjá einn. Við getum ekki beðið eftir því að Mogginn hætti að angra okkur á morgnana og fari frekar að borga þessa 5 milljarða sem hann skuldar okkur, 16.000 kr. á mannsbarn. Við getum ekki beðið eftir því að Pálmi Haraldsson nái að trappa sig niður úr því að eiga allar ferðaskrifstofur á Norðurlöndum í það að eiga "bara" allar ferðaskrifstofur á Íslandi. Við getum ekki beðið eftir því að Sigurður Einarsson leggi niður þróunaraðstoð sína við Jómfrúareyjar. Við getum ekki beðið eftir því að Ólafur Ólafsson og Finnur Ingólfsson skili okkur bankanum sem þeir rændu af okkur. Við getum ekki beðið eftir því að Sigurjón Þ. Árnason nái að hreinsa burt öll fingraförin sín úr Landsbankanum. Við getum ekki beðið eftir því að Bjöggi Thor græði enn þá meira á rýrnun krónanna í veskjunum okkar. Við getum ekki beðið eftir því að Árni Matt og Árni Johnsen hefji sína ógnarspennandi prófkjörsbaráttu. Við getum ekki beðið eftir því að Gummi Steingríms nái að troða sér í gamla götótta jakkann hans afa síns. Við getum ekki beðið eftir því að málverkið af Bjarna Benediktssyni verði hengt upp við hliðina á málverkinu af Bjarna Benediktssyni. Og við getum alls ekki beðið eftir því að Hannes Hólmsteinn klári nýju bókina sína, "Hvernig getur Ísland orðið fátækasta land í heimi?"

Því nú verður ekkert eins og það áður var. Bæ, bæ, gamla Ísland!


19 janúar 2009

"Ástandið"

Það eru búin að vera mikil veikindi á þessu heimili og sérstaklega þá á Daníel. Greyið er búinn að vera með kvef og hita síðan á síðasta mánudag og fórum við til læknis á fimmtudaginn þar sem hann var að kvarta yfir eyrnaverk. Við höfðum líka tekið eftir því að heyrnin hjá Daníel var eitthvað ábótavant - ekki gat hann alltaf verið að hunsa okkur svona þegar við töluðum við hann. Það kom í ljós að hann er með svona svakalega eyrnabólgu og mikinn uppsafnaðann eyrnamerg í báðum eyrum. Við fengum eyrnadropa með sýklalyfjum og svo tilvísun um að fara til eyrnalæknis þegar kvefið væri búið. Ekki vildi betur til en að hljóðhimnan sprakk hjá greyinu á laugardaginn og búið að vera leka blóðlitaður gröftur úr því síðan. Þetta er hins vegar ekkert hættulegt sérstaklega þar sem við erum nú þegar með dropana þannig hljóðhimnan mun gróa að sjálfu sér á nokkrum vikum. Daníel fær hins vega að vera heima í nokkra daga í viðbót sem er orðið ansi þreytandi, í dag er hann búinn að vera veikur í 8 daga.
Ellen María dafnar vel og hjúkrunarfærðingurinn kom í dag að kíkja á okkur. Hún er tæp 5 kg og 59 cm og auðvitað mjög fín í alla staði. Ellen er auðvitað langt yfir öllum dönskum kúrfum í vexti enda eignast danir algjörar píslir miðað við okkur Íslendinga. Næst er það síðan 5 vikna skoðun hjá lækni og svo er hún að fara í sónarskoðun á mjöðmunum 13.febrúar uppá Hvidovre spítala.
Á sunnudaginn er skírnin í Skt. Pauls kirkju í íslenskri messu og að því loknu verður kaffi hérna í Borups Have fyrir okkar nánustu vini. Ég finn það hins vegar að ég er þegar orðin dáldið tæp á þessu skírnarkaffi þar sem ég sit auðvitað föst alla daga með Daníel veikann heima. Ég hef því lítið getað útrétt fyrir skírnina eins og t.d. að kaupa bleikan borða í skírnarkjólinn! En þetta reddast allt saman með góðri hjálp sem ég veit að er í boði og ég þarf bara að segja til.
Á morgun ætlar Einar að vera heima fyrir hádegi og ég ætla að skreppa á mömmumorgun í Jónshúsi svona til að halda aðeins geðheilsunni. Í febrúar byrja ég síðan í dönsku mömmugrúbbunni sem er skipulögð af heilsugæslunni.

13 janúar 2009

Á bleiku skýi

Best að láta vita aðeins af sér. Einar byrjaði að vinna í síðustu viku og á mastersverkefninu líka. Hann er að vinna 3 daga í viku og 2 daga í skólanum en svo svissast þetta í febrúar. Við erum búin að hafa það alveg yndislegt hérna enda er Ellen María algjört draumabarn sem sefur ca.18-20 tíma á sólarhring og vaknar oftast bara einu sinni á nóttunni og svo aftur undir morgunn til að fá að drekka. Hún er mjög dugleg að drekka og skilar litlu sem engu til baka þannig að það fer lítið til spillis hjá dömunni. Einar er búinn að vera að fara með Daníel í leikskólann á morgnana og ég sótt hann svo um eftirmiðdaginn en núna í þessari viku stóð til að ég myndi fara með hann líka á morgnana. Daníel er hins vegar búinn að vera veikur í gær og í dag þannig að það er í raun ekki búið að reyna á "stífa" morgunrútínu hjá okkur ennþá. Ellen er líka búin að næla sér í sitt fyrsta kvef þannig að það er dáldið að angra hana þegar hún sefur og eins þegar hún er að drekka en þetta virðist vera að lagast hjá henni.


kv,
K&E

06 janúar 2009

Áramótamyndir


Nýjar myndir frá lok des og byrjun jan http://einaregilsson.com/myndir/index.php?album=aramot-2008-2009