30 júlí 2007

Löngu komin heim + helgin

Hvernig var í Búlgaríu? FRÁBÆRT! Gott veður, mikil afslöppun og leti út í eitt! Ég var samt komin með dáldið nóg af þessu góða lífi í lokin og farin að langa að komast heim þar sem hægt var að gera eitthvað annað en að hanga á ströndinni eða eitthvað álíka. Myndir eru á síðunni hans Daníels sem fór auðvitað á kostum í ferðinni og allir dýrkuðu! Þetta eru rúmlega 100 myndir en þetta er rjóminn af rúmlega 230 myndum sem við tókum í ferðinni!

Það sem er hins vegar ofarlega í huga mér þessa dagana er dáldið fyndið atvik sem gerðist um helgina. Við Einar fórum semsagt með Daníel í fyrstu tjaldútileguna hans núna um helgina. Samkvæmt límiðanum á tjaldinu okkar þá höfum við víst ekki farið í útilegu síðan 2004! Vá hvað útilegur hafa breyst mikið á þessum stutta tíma! Þegar litið var yfir tjaldsvæðið þá var ekki eitt einasta tjald að sjá heldur var það troðfullt af tjaldvögnum, húsbílum og hjólhýsum og jeppum! Við vorum í einu af 3 tjöldum á svæðinu - TJALDsvæðinu. Allavegana þá erum við í góðum gír fyrir utan tjaldið okkar að grilla sykurpúða og spjalla þegar nokkrir krakkar labba upp að okkur.
Krakki1: Eruð þið bara í tjaldi?
Við: Já
Krakki1: Er ykkur ekkert kalt?
Við (dáldið hissa)? Nei
Krakki2 (10 ára): Eruð þið fátæk?

Þarna sprungum við úr hlátri en viðurkenndum eins og var að við værum bláfátæk og hefðum engann veginn efni á að kaupa okkur milljón króna skuldahala. Krökkunum fannst við eitthvað skrítin og fóru en eftir sátum við í pælinum um hvert æska landsins stefndi og hve lífsgæðakapphlaupið í íslandingum væri búið að ná nýjum hæðum þegar börn vita ekki einu sinni hvernig það er að gista í tjaldi! Ekki lauk þessu þarna því við virðumst hafa verið umræðuefnið á svæðinu því skömmu seinna sáum við fólk standa rétt hjá og gjóa augunum til okkar. Svo kemur kona um sextugt og segir: rosalega eru þið lítil sæt fjölskylda í litlu dúllutjaldi. Ég sagði auðvitað konunni að við værum fátæk samkvæmt fyrri greiningu. Hún vissi ekki alveg hvernig ætti að taka þessu og tók uppá að hughreysta okkur með því að endurtaka hvað við værum miklar dúllur áður en hún hrökklaðist í burtu. Við Einar höfðum gaman af þessu og eyddum afgangnum af kvöldinu í að finna góð mótsvör sem við hefðum átt eða getað notað í báðum tilfellum.

Niðurstaðan er þessi: Eins gott að mæta ekki í tjaldi á tjaldsvæði ef þú vilt ekki verða fyrir aðkasti :)

6 athugasemdir:

TaranTullan sagði...

Jesús minn.
Dem, ég nenni ekkert að þurfa að una því að vera litin hornauga af miskunnarlausri æsku vorri þegar ég fer í tjaldútilegu (sem átti hugsanlega að vera næstu helgi)
Ég er svo ótrúlega hneyksluð ef þetta er það fyrsta sem krakkagemlilngarnir hugsa þegar þeir sjá tjald.
Ég er brjáluð bara, hló samt fyrst sko, en er fúl inn við beinið samt.

Karen sagði...

hehe viðbrögð þín koma mér ekki á óvart Tulla mín, enda erum við skoðanasystur í mörgum málefnum!

Steinakleina sagði...

kræst, Kræst, KRÆST.... ég og Tóti fórum einmitt sumarið 2005 síðast í útilegu í 3ja manna tjaldinu okkar með Kára OG Ísold... Núna í haust ætlum við að fjárfesta í fansísmansí tjaldi með 2 svefnálmum og smá milli svæði undir himni þar sem við erum orðin 5 manna fjölskylda. Höfum vonandi efni á svona tjaldi sem kostar um 20.þ. en við ætlum s.s. að finna á haust útsölu... Mér finnst það SVAKA fínt... enda vorum ég, mamma og bróðir minn alltaf í 3 manna tjaldi saman þegar ég var barn OG unglingur.
En ég á einmitt vinkonu sem er hluti af pari með eitt barn, þau eiga svona fínt tjald sem henni finnst orðið frekar glatað og er MIKIÐ búin að kvarta við mig yfir því hvað hana langar í tjaldvagn fyrir milljón (finnst voða lítið mál að fjárfesta t.d. í notðum svona fyrir 500þ+).
Við verðum bara með hópefli í svona útilegu næsta sumar ÖLL í tjaldi.
Vala, Karen, Ég, Jóhanna (sennilega í tjaldvagni reyndar :) og svo Tulla og HANANÚ...

Karen sagði...

Jejj áfram tjald-kynslóðin! Til að toppa þetta http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1283035

Alda Berglind sagði...

Þetta er nú með því fyndnasta (og á sama tíma hræðilegasta) sem ég hef heyrt lengi... *sigh*

Nafnlaus sagði...

Já þetta er alveg svakalegt! Við tókum einmitt eftir þessu þegar við fórum í útileguna um daginn í YNDISLEGU VEÐRI þegar þið beiluðuð...hehe no hard feelings:)
Unnur