26 febrúar 2007

Ég vil þín njóta Toyota!

Hérna má líta dýrðina sem við Einar fjárfestum í í gær nema það að okkar er djúp vínrauður en ég fann enga þannig mynd og okkar er dottinn útaf söluskráinni. Við fórum semsagt á tilboðsdaga hjá Toyota um helgina og féllum alveg fyrir þessum Toyota Corolla Terra árgerð 2005. Það er alveg frábær tilfinning að keyra svona nýjann og fínann bíl þó svo að maður eigi nú minnst í honum.
Nú er eina vandamálið að ákveða hvert við eigum að fara fyrir farseðlana 2 sem fylgdu með í kaupunum... Einhverjar hugmyndir?

p.s. Einar er að smíða myndasíðu fyrir mig sem kemur í gagnið hérna vonandi fljótlega.

22 febrúar 2007

Endurnýjun

Það hlaut að koma að því að Blámann (eins og ég hugsa stundum um hann)myndi þurfa að kveðja þennan heim, en þó ekki eins snemma og raun ber vitni. Bíllinn var semsagt úrskuraðar "ekkiþessvirðiaðgeraviðhanntilaðstandastskoðun" á mánudaginn síðasta. Partar í bílinn myndu kosta tæp 100þ + vinna! Sem betur fer erum við í viðskiptum við svo svakalega gott verkstæði þannig að þeir gerðu okkur grein fyrir gangi mála áður en þeir fóru að ráðast í viðgerðir, settu meira að segja upp kostnaðinn og sögðu okkur svo blíðlega sorgarfréttirnar.
Það er því greinilega kominn tími á annan bíl því bíllaus getum við ekki verið. Nú er bara spurningin hvernig maður ætti að standa að þessu þar sem við verðum víst bara á landinu í rétt rúma 10 mánuði til viðbótar... Eftir miklar vangaveltur þá höfum við komist að því að það er best að fjárfesta í nýlegum bíl með góðu láni þannig að við greiðum bara afborganir og þufum í staðinn ekki að hafa áhyggjur af viðgerðum. Síðan verður bílinn (vonandi) bara seldur um leið og við förum af landinu.

Nú er bara spurning hvernig bíl maður ætti að fjárfesta í? Einhverjar hugmyndir?

11 febrúar 2007

Fyrr má nú rota...

Ég er ein af þeim sem vill hafa rólegt umhverfi í því samfélagi sem ég bý í. Þetta þýðir að ég kýs að lágmarka áreiti í kringum mig eins mikið og ég get. Það sem mér finnst standa helst uppúr í áreiti eru auglýsingar: fáðu þér svona, alvöru konur nota X og þar fram eftir götunum. Mér finnst þetta algjörlega óþolandi. En það má ekki misskilja mig, auglýsingar eru vissulega gagnlegar því þarna er verið að láta neytandann vita af valmöguleikum sínum. En þegar maður getur varla litið útum gluggann án þess að verða fórnarlamb einhverskonar markaðssetningar þá finnst mér þetta verið komið útí hróa. BTW fyrir utan húsið stendur akkúart bíll með risaauglýsingu sem á stendur klám.is!
Sem betur fer erum við þó ekki orðin eins slæm í þessu og flest lönd í kringum okkur. Mér fannst stigið stórt skref niður á við þegar strætóskýlin í Reykjavík voru bókstaflega seld á einu bretti til einkafyrirtækis sem setti upp núverandi skýli með risastórum auglýsingum. Mér finnst þetta ljótt og ég myndi miklu frekar kjósa að vera laus við þessa sjónmengun. Eins vil ég geta stjórnað því hvenær er verið að koma skilaboðum til mín, þegar ég er að horfa á sjónvarpið t.d. þá getur maður alltaf bara slökkt þegar maður er búinn að fá nóg eða í það minnsta skipt um stöð. Þegar þú ert úti á götu þá kemstu ekki hjá því að líta í kringum þig þó það sé ekki nema bara til að verða ekki undir næsta bíl!
Það sem fékk mig hinsvegar til að skrifa þennan pistil var tónlistarmynband sem ég rakst á áðan. Þar var á ferðinni Black eyed peas með einhvern nýasta smell frá sér, ekkert að því. Nema þegar ég horfi aðeins betur á þetta þá sé ég að þetta myndband er ekkert annað en ein stór auglýsing! Ég veit að mynbönd sem þessi eru oft notuð sem auglýsingar en þá er það yfirleitt eitthvða svona vægt sem fellur svona meira inní umhverfið. Svo var ekki í þessu tilviki. Allt í einu tekur aðalgellan upp eitthvað tæki í miðri dansrútínu og er eitthvað að dást að þessu. Ég kíki betur og sé að það stendur greinilega Samsung á þessu. Hérna er svo varan sem verið var að auglýsa
Mér finnst þetta algjörlega glatað svo ég tali nú bara ekki um hversu hallærislegt þetta er yfir höfuð inní þessu eða bara hvaða myndbandi sem er. Hvernig í ósköpunum er hægt að tengja mp3 spilara inní þetta dæmi. Veit ekki. Ég ætla síðan ekki einu sinni að byrja hvaða áhrif allur þessi auglýsingaráróður hefur á mann. Heimur versnandi fer, ekki síst ef álverið fær að stækka í Straumsvík en það er efni í annan pistil.
Ætli við munum ekki enda eins og í bókinni Lovestar eftir Andra Snæ þar sem fólk var látið vinna fyrir skuldum með því að heilaþvo vini, ættingja og fólk útá götu með því að þylja upp einhvern auglýsingatexta sem var sendur í þau. Úff... hlakka til...

06 febrúar 2007

Bogamenn eru fljótfærnir


Þetta eru sko orð að sönnu! Ég hef alltaf verið talin fljótfær og skotið fyrst en spurt svo og þetta á sko ekki bara við um mig því Lára vinkona er líka svona og hún er líka bogamaður. Ég segi stundum hluti án umhugsunar og ef maður bætir því ofan á mína óbilandi hreinskilni þá gæti ég svo sem alveg skilið að sumir myndu kjósa að ég myndi þegja meira. Það er kannski bara fínt að geta skellt skuldinni á stjörnumerkið sem maður er fæddur í?
Þetta á samt við fleiri hluti í lífi mínu. Ef mér dettur eitthvað í hug þá vil ég helst gera það strax og taka það með tropmi. T.d. húsgagnainnkaup, lífsháttarbreytingar eða breytingar á heimilinu og önnur verkefni. Það má aldrei neitt bíða, enda yrði sami hluturinn ekki eins spennandi ef maður þyrfti alltaf að bíða heillengi eftir honum og spá endalaust og spekúlera í áhrif hans og svoleiðis, það er bara seinnatíma vandamál (verkefni) og maður tekur á því þá. Ekki má heldur gleyma því hversu bjarsýn ég er alltaf á gott gengi í þessum verkefnum og iðulega reikna ég með minni tíma/fyrirhöfn/peningum en raunin síðan verður.
Það sem kemur síðan í framhaldi af öllum mínum hugdettum og framkvæmdargleði er að fá samþykki Einars. Hann er nú yfirleitt fljótur að gefa undan en stundum þarf hann að fá smá sannfæringu, ætli hann nenni nokkuð að mótmæla mér ;)
Það er svo sem ekkert að þessu, ég allavegana veit af þessu en þetta hefur aldrei komið mér neitt þannig í koll þannig að ég hafi þurft að endurhugsa gerðir mína eða gefið mér ástæðu til að breyta mínu ágæta fyrikomulagi. Annars held ég að ég myndi ekki koma miklu í verk ef ég myndi fara aðra leið.

Jæja nóg komið af pælingum. Helgin hjá okkur var alveg frábær þar sem við fórum í kaffiboði til Friðriks, Unnar og Tómasar á laugardaginn. Tómas var dálitla stund að sætta sig við að Daníel væri kominn í heimsókn og ætlaði virkilega að leika sér með dótið hans... En eftir að Daníel fékk jarðaberjasvala og sykursjokk út frá því þá voru þeir orðnir mestu mátar og sátu glaðir uppí sófa að horfa á Stubbana og leika sér og sprella. Beint eftir kaffiboðið fórum við í matarboð til Völu, Hjalta og Jökuls. Jökull er alveg ófeiminn og tók Daníel vel og var duglegur að sýna honum allt dótið sitt. Mest gaman var hjá strákunum þegar þeir fengu að vera inní svefnherbergi að hoppa á dýnu og ekki má gleyma vasaljósaleiknum skemmtilega sem Hjalti kynnti fyrir þeim.
Mér tókst hins vegar næstum því að höfðukúpubrjóta mig með því að ganga á hillu í barnaherberginu sem hafði verið máluð í felulit, gangandi vegfarendum til gleði. Hillan hafði semsagt verið máluð blá í sama lit og ský sem var á veggnum þar sem hillan hékk, auglóslega gert með ásetningi. Ég var hins vegar fljót að jafna mig enda pizzur með hvítri sósu (já hvítri) á boðstólnum!
Þetta var hin besta helgi í alla staði. Nú fer að styttast í að Ebba og Himmi fara til DK þannig að ég mátti til með að bjóða þeim í mat á miðvikudaginn svona til að fá að sjá þau einu sinni áður en þau sleppa af skerinu. Reikna með að það verði dýrindislæri í matinn enda alltof langt síðan the "grillmaster" hefur fengið að spreyta sig á gasgrillinu.

Jæja nóg í bili.

01 febrúar 2007

Áfram Karen!

Jæja, mætti í ræktina í gær sem er ekki frásögufærandi nema að ég sá þarna svona gellu sem ég veit ekki hvort var að mæta þarna til að horfa á sjálfa sig í spegli eða til að æfa. Þið þekkið típuna. Máluð, með eyrnalokka og hárið sett upp á hlaupabrettinu alltaf að kíkja í spegilinn hvernig hún væri nú að taka sig út þarna :) Ég veit ekki með ykkur en persónulega finnst mér bara ógeðslegt að vera máluð og svitna síðan ofan í það og hvað þá að vera með skartgripi á sér! En ég get ekki neitað því að ég hafði gaman af því að horfa á hana þar sem hún var á hlaupabrettinu fyrir framan mig. Ég er svo að fara að mæta aftur í dag til að hitta einhvern leiðbeinanda sem ætlar að fara með mér yfir tækin og búa til prógramm fyrir mig, þýðir ekkert annað annars mun á aldrei fara lengra en á hlaupabrettið og kannski í mesta lagi stígavélina.
Til að ég haldi áfram með heilsuæðið hérna þá er búið að skipta út öllu pasta hérna út fyrir lífrænt speltpasta og hrísgrjón úr fyrir brún hrísgrjón (nema í neyðartilvikum þar sem það tekur 45 mín að sjóða brún en bara 15 mín að sjóða hvít). Ég er byrjuð aftur að drekka de-tox teið mitt og ætla að fara aftur að bæta spíru-duftinu útí matinn. Þess á milli mun ég heilaþvo sjálfa mig t.d. með því að skrifa svona blogg ;)
Annars er Daníel hress og Lára er farin aftur út til DK til að brillera í arkitekta-náminu. Hennar verður sárt saknað en vonandi kíkir hún á klakann aftur bráðlega. Jæja best að fara að borga eitthvað af þessum reikningum, jóla-vísað er komið og núna skil ég afhverju við erum búin að safna svona mikið af vildarpunktum!