23 október 2007

Öll að hressast

Las yfir blogg gærdagsins og jæja við skulum bara segja að ég hef gert þau betri. Ætla samt að fylgja kenningu Tullu sem segir að maður eigi ekki að eyða færslum.
Það eru stórframkvæmdir í íbúðinni við hliðna á mér og hávaðinn er ótrúlegur. Daníel er búinn að vera að vakna upp í kvöld vegna hans og nú er klukkan orðin hálf 11 og ég er á leiðinni að fara að tala við þau ef þau byrja aftur að bora. Ekki beint fyrstu samskiptin sem maður vill eiga við nýja nágranna en auðvitað ætti fólk að sýna tillitsemi í fjölbýli og sérstaklega þegar um er að ræða börn.
Afhverju á ég alltaf svona erfitt með að standa á rétti mínum en er roslaega fljót til þegar brotið er á einhverjum öðrum? Á þetta við um fleiri?
Hvenær ætli maður fari svo að byrja á þessum bókum sem ég var búin að hugsa mér að lesa meðan að ég væri ein hérna. Ég sá þetta svo fyrir mér að þegar Daníel yrði farinn að sofa á kvöldin þá myndi ég setjast niður í a.m.k. klukkutíma með kaffi og góða bók og bara slappa af og lesa. Hehe maður getur verið svo barnalegur á stundum og bjartsýnn. Ein vinkona mín ætlaði nú að skrifa skáldsögu í fæðingarorlofinu þannig að kannski voru mín fyrirheit ekki svo út úr kú. Hvað er annars að frétta af skáldsögunni?
Svona í lokin þá ætla ég að segja frá einu af mörgum vandræðalegum mómentum sem ég lendi í.
Ég var semsagt í aðalbútibúinu í Landsbankanum um daginn og þar er númerakerfi eftir því hvort maður ætli að fara til gjaldkera eða þjónustufulltrúa. Útibúið er mjög stórt (fáránlegt skipulag líka) og uppá veggjunum eru skjáir sem segja manni hvaða númer á að fara á hvaða bás. Nema hvað að ég sé þarna mann sem er fatlaður á 2 hækjum og hann lítur út fyrir að vera mjög ráðavilltur og er eitthvað að vafra þarna um horfandi á þjónustufulltrúana spurnaraugum og leit út fyrir að hann vissi ekki alveg hvað hann var að gera. Ég í góðmennsku minni (stupid) náði í miða til þjónustufulltrúa og gekk að honum og sagði að það væri númerakerfi fyrir þá líka og ætlaði að rétta honum miðann. Þvílíkt svakalegt fyrirlitningarlook hef ég aldrei séð á ævinni þegar hann sneri sér að mér og sagði bálreiður "ég veit það!" og í þann mund sá ég skína í miðasnepil í hendinni á honum. ÓTRÚLEGA VANDRÆÐALEGT! Ég sneri mér skömmustulega undan og reyndi forða mér undan augnaráði mannsins eins fljótt og ég gat og óskaði þess heitt að röðin væri komin að mér hjá gjaldkeranum. Hvað getum við lært af þessu? Jú, ALDREI hjálpa fólki og sérstaklega ekki þeim sem líta út fyrir að vera minnimáttar.

22 október 2007

Veðrið hæfir skapinu

Ég verð að viðurkenna að ég hef vissulega haft það betra en akkúrat núna. Finnst ég vera orðin ansi þreytt, þreytt á spurningum um hvernig ég hafi það og hvort það sé ekki erfitt að vera svona ein og hvort ég sakni ekki Einars. En ekki hvað??? Ég veit að fólk vill mér vel en stundum held ég að það haldi að ég hafi virkilega ekki um neitt annað að tala þar sem maður er nú svona mikið heima eins og raun ber vitni. Yeah, skemmtilegt blogg þetta.
Keypti mér stóran poka af lakkrískonfekti og annan af súkkulaðirúsínum í dag. Neyddi síðan samstarfskonur mínar til að borða þetta eftir að ég var búin að hella þessu í skál og byggja skaldborg úr dagatali og pennastatífi til að þurfa ekki að sjá þetta og freistast. Er vit í þessu? Ekki nokkurt en mér finnst gaman að sjá annað fólk fá sér eitthvað gott að borða og nammi færir oftast fram bros á vör og skemmtilegar samræður þannig að það lætur mér líða betur.
Ég er byrjuð smám saman að taka til og skipuleggja í huganum hvað ég ætla að eiga og hverju ég ætla að henda eða gefa þegar við flytjum. Sé eiginlega jólin fyrir mér í galtómri íbúð nema bara sófi og borðstofuborð, hey ég get þá allavegana fengið mér risastórt jólatré! Sem betur fer hef ég ekki verið að sanka neitt mikið að mér og tvennir flutningar á síðastliðnum 3 árum hafa vissulega gert sitt gagn við að halda eignum í skefjum. Ég á svo eftir að sakna íbúðarinnnar okkar því ég get með sanni sagt að mér hefur aldrei liðið eins vel nokkurstaðar eins og hérna. Mig hlakka líka til að taka hana aðeins í gegn þegar við komum heim og skipta um gólfefnið sem ég er búin að vera að halda aftur af mér að gera vegna fyrrnefndra flutninga.
Síðan er ég búin að ákveða eitt! Þegar við komum aftur heim til Íslands þá er ég svoooo að fara að fá mér litla kisu eða jafnvel tvær (sorry, Alda)! Það er ömurlegt að hafa engin dýr á heimilinu og í mínum huga í raun óheilbrigt. Ég hef alltaf átt kisu síðan ég man eftir mér og fyrir það þá fengum við alltaf nágrannaköttinn lánaðann og ég fékk að keyra hann um í dúkkuvagninum mínum! kssss, kssss....
Þetta var póstur 100!

18 október 2007

ekkert spes...

Jæja Einar kom heim á laugardaginn og ekkert nema gott um það að segja. Gott og jafnframt dáldið skrítið að fá hann heima eins og ég bjóst svo sem við. Tíminn hefur hins vegar ekki liðið eins og ég átti von á. Strax á sunnudaginn var mig farið að kvíða fyrir því að hann færi aftur út en það stóð ekki lengi. Finnst stundum eins og við eigum að vera að gera eitthvað rosalega spennandi og skemmtilegt meðan að hann er hérna heima en hversdagsleikinn er svo yfirþyrmandi að ekkert annað kemst að, sérstaklega ekki þegar veikindi bætast ofan á (eins og venjulega).
Svo sem lítið að frétta nema að Sandra er ólétt hinu megin á hnettinum og myndavélar virðast vera bannaðar á því heimil. Þeir taka það til sín sem....
Er farin að vera dáldið spennt yfir því að hætt að vinna. Yfirfærsla á verkefnunum mínum er þegar hafin og ég má teljast heppin ef ég hef eitthvað að gera í desember! Það gengur hins vegar ekki eins vel að finna íbúð í Danmörku. Flestar íbúðir á leigumiðlunum eru til leigu í stuttan tíma eða þá að þær eru með sameiginlegu baði eða eldhúsi sem ég er bara engann veginn til í. Sjáum til hvernig fer. Ef einhver veit um íbúð í Kaupmannahöfn þá endilega látið mig vita!!!

11 október 2007

Teljari og stórtíðindi!

Jæja, loksins er Einar búinn að koma upp teljara á síðunni minni til að ég geti fylgst með heimsóknarfjöldanum. Ég veit allavegana um 4 af mínu nánasta fólki sem kíkir hérna næstum daglega en skilur aldrei eftir sig merki...you know who you are! ALDA og STEINA fá sérstakt hrós fyrir að kommenta og skammarverðlaunin fær.... nei engin skammarverðlaun, það er ekki gaman.
Það ætti ekki að koma neinum á óvart að Daníel var með hita í kvöld, er eiginlega bara komið í rútínuna á heimilinu að hann sé veikur a.m.k. einn dag í viku. Ég fékk líka gubbupest í fyrsta skipti á ævinni á þriðjudagskvöldið og nóttina. Ahhh... good times!

En að öðrum og mun merkilegri fréttum að mínu mati allvegana. Daníel lét nr.2 flakka í fyrsta skipti í koppinn í kvöld. Afraksturinn var nú ekki mikill enda er aumingja strákurinn eitthvað stíflaður og með magaverki en nóg samt til að það teljist með. Hann er búinn að vera að pissa í kopp og klósett síðan í lok ágúst en nú fyrst er komin alvara í þetta. Þetta er búið að kosta margar hlaupaferðir á koppinn og langsetu inná baði en svo sannarlega þess virði! Jæja, nóg af koppafréttum :D

Svo í lokinn verð ég nú að segja hvað ég er hrikalega ánægð með hann Björn Ingva og framsóknarmenn að standa uppí hárinu á sjálfstæðismönnum og láta ekki vaða endalaust fyrir sig. Nú gengu Vilhjálmur og co. of langt og fengu loks að finna fyrir þér. Mér fannst hann Bogi Ágústsson segja þetta langfyndnast í aukafréttatímanum í dag:
Sjálfstæðismenn höfðu ekki hugmynd um að framsókn og aðrir flokkar væru í viðræðum.
Þeir höfu ekki hugmynd um að eitthvað væri í gangi þegar Björn Ingvi mætti ekki á fund og Vilhjálmur hafði ekki hugmynd um hvað til stæði þegar Björn Ingvi hringdi og sagði honum tíðindin. Svo fannst mér líka gaman að sjá Gísla Martein hundfúlann!

Jæja bóndinn kemur heim á laugardaginn og verður heima í viku!

05 október 2007

... enn og aftur veikindi

Það var hringt í mig eldsnemma í morgun í vinnuna frá leikskólanum - Daníel hafði kastað upp yfir allt morgunverðarborðið! Enn einn veikindadagur heima sem þýðir að enn og aftur situr vinnan á hakanum og verkefnin hlaðast bara upp. Stundum vildi ég að ég væri bara að vinna einhverja heilalausa færibandavinnu þar sem biðraðir myndast ekki og það sem maður missir af vegna veikinda bíður ekki eftir manni.
Hvað var ég aftur að tala um? Ó, já, barnið! Þegar heim var komið var hann nú farinn að hressast og fékk var ólmur í að fá sér flatkökur með smjöri (uppáhaldið) og epladjús. Svaf tæpa 2 tíma í hádeginu sem er algjört met og fékk sér meira að segja smá snúð í kaffinu. Hann hefur hins vegar ekki viljað borða neitt í kvöldmat og heimtaði sjálfur að fá að fara að sofa korter í 8!
Ef þetta segir mér ekki að hann sé veikur þá veit ég ekki hvað. Hann er líka kominn vel uppá lagið með sjálfvorkunnina þar sem hann gengur upp að mér (sérstaklega ef ég hef ekki verið að veita honum athygli t.d. elda) og segir "ég er slappur" eða "ég gubba". Þetta fær mig alveg til að tikka sko (en ekki hvað?) og maður hleypur til í hvert skipti og svo er hann oftar en ekki að plata sem mér finnst alveg.....hefur einhver heyrt um "úlfur, úlfur"?
Anyway ætla að fara að leggja mig hjá litlu rófunni minni þar sem hann liggur í hjónarúminu (dem, þetta var akkúrat helgin sem ég ætlaði að endurheimta rúmið) sem er allt yfirbreitt handklæðum. Góða nótt.

04 október 2007

Hvað er ég að gera?

Klukkan er hálf 2 og ég þarf að vakna eftir 5 tíma til að hefja mína daglegu rútínu. Ástæðan fyrir því að ég er vakandi er sú að ég sofnaði AFTUR með Daníel í kvöld og vaknaði ekki fyrr en kl. hálf 12. Er ótrúlega fúl útí sjálfa mig því ég missti af þætti sem ég ætlaði að horfa á í kvöld. Hvað gerir maður þegar maður lendir í svona og finnst maður hafa verið svikinn um heila kvöldstund friði og "gera það sem ég vill" tíma? Ég byjaði auðvitað á því að fara inní eldhús og fá mér stórt mjólkurglas og súkkulaðikex, en ekki hvað? Síðan er ég búin að þrjóskast við að fara að sofa og horfði á 2 Grey´s þætti í röð. Núna finn ég mér ekkert meira að gera en langar ekki að fara að sofa og þess vegna er ég sennilega að blogga. Mér finnst alveg ótrúlegt ef einhver á eftir að nenna að eyða tíma sínum í að lesa þetta!
Ég sakna Einars alveg ótrúlega. Ég fann sérstaklega fyrir þessu í gær þegar Daníel var fyrst búinn að gubba í Krónunni og svo yfir hálfa stofuna seinna um kvöldið. Ég var dauðuppgefin þegar ég var búin að koma honum í háttinn og þrífa allt og lyktaði sjálf af ælu og svita þegar ég loksins settist niður. Þá fannst mér ég vera virikilega ein þar sen ég sat í hljóðri íbúðinni og hafði engann til að deila þreytunni minni með....

01 október 2007

Punktablogg hjá mér líka

Hef annaðhvort ekki haft tíma til að blogga alveg rosalega lengi eða þegar ég loksins fæ smá tíma fyrir sjálf mig þá nenni ég yfirleitt ekki að eyða þeim í þetta.... En einhver verður að punkta mitt viðburðaríka og æsispennandi líf niður!
  • Daníel er búinn að vera með þurran hósta í viku. Fáum lítinn svefn á nóttunni vegna hóstakasta. Fór loks með hann til læknis eftir að vera búin að prófa allt annað og læknirinn sagði að það væri ekkert að honum, stálhraustur. Læknirinn sagði að allar hóstamixtúrur væru gagnslausar þar sem nú væri bannað að framleiða þær með kódíni. Skrifaði lyfseðil fyrir parkódín sem ég á að gefa 1/2 fyrir svefn. Á víst að vera mjög hóstastillandi.
  • Fengum tilboð um íbúð í síðustu viku í DK. Rosalega fín íbúð 57 fm og leigan um 60.000 kr á mánuði og allt innifalið. Fengum hana ekki því Einar hafði misskilið inntökuskilyrðin. Kannski bara fyrir bestu því hún var frekar langt í burtu eða 45 mín með lest niðrí bæ. Höldum áfram að leita.
  • Einar fór með Ebbu og Láru (o.fl.) á djammið í Köben. Pínu abbó út í Einar verð ég að viðurkenna fyrir utan hvað það er skrítið að maðurinn minn er með vikonum mínum án mín. En rosalega fegin að þær drógu hann með sér.
  • Fór í sumarbústað um helgina með Völu og Jökli. Mjög fínt. Gott að breyta um umhverfi.
  • Er búin að vera að taka til í tæpa 2 tíma í kvöld þar sem ég var að skila sameigninni af mér + drasl eftir sumarbústaðaferðina.
  • Gengur ekkert með Grey´s vegna tímaskorts.... humm gæti verið að horfa á það núna...
  • Vægur vinnuleiði farinn að láta kræla á sér þar sem einungis 74 dagar eru þangað til ég hætti en hver er að telja? Ég stend sjálfa mig að því að vera hætt að vanda mig og hugsa æ þetta er allt í lagi, verð hvort sem er farin áður en nokkur fer að pæla í þessu....
  • Klippikonan mín er hætt að klippa vegna grindagliðnunar og ég er ónýt. Finnst ekkert verra en að leita að nýjum hárgreiðsludúdda og þetta hafa yfirleitt verið verstu tímabil hár-sögu minnar! aarrgggg!
  • Mental note I: HÆTTU AÐ BORÐA NAMMI!
  • Einar kemur eftir 12 daga og verður þá heima í viku. Mig er farið að hlakka til... held ég. Er eiginlega búin að bæla söknunartilfinningar mínar alltof mikið niður með mikilli vinni og verkefnum því þegar ég fer að hugsa of mikið um aðskilnaðinn þá missi ég algjörlega stjórn á tárakirtlunum.
  • Mental note II: HÆTTU AÐ BORÐA NAMMI Í ALVÖRUNNI!
  • Daníel er byrjaður að syngja á fullu lög sem hann hefur lært í leikskólanum. Þarf að fara að hafa mig alla við ef ég ætla ekki að detta afturúr.
  • Fékk að horfa á setningu alþingis í beinni útum gluggann hjá mér í dag. Eeeeelskaaaaa menn í búningum, sérstaklega lögreglu og hermannabúningum! Veit ekki hvað það er sem er svona flott við þá en þeir eru bara svo hraustlegir, snyrtilegir og flottir! Nei, ég er ekki blind þótt ég sé gift!