31 ágúst 2006
Gamlar dagbækur...
Var að finna gamla dagbók frá unglingsárunum. Þar er ég í 10. bekk og ég skrifa m.a. um djammið eftir samræmduprófin þar sem ég er gelgjutoppnum! Vá, þvílíkt rugl en ógeðslega skemmtilegt að lesa þetta. Humm... hver veit nema ég skelli inn hérna nokkrum færslum :)
29 ágúst 2006
Simbi
Hérna í húsinu okkar í Svarthömrunum búa tveir sætir kisar. Annar er útikisi sem heitir Simbi og hinn er innikisi og heitir Líf. Daníel er voðalega hrifin af þeim og þegar þeir verða á vegi okkar þá kemur sko ekkert annað til greina en að stoppa og klappa þeim og strjúka. Simbi er alltaf til í að koma til okkar enda mesti ljúflingur og ótrúlega kelinn. Maður verður samt að passa að Daníel verði ekki of ákafur (sem gerist oft) og rífi í feldinn! Hann kallar alltaf þegar hann sér Simba: Disi! Disi! og bendir með puttanum. Hann minnir mig nú á þegar ég var lítil eða kannski meira á sögurnar sem ég hef heyrt af sjálfri mér. Það var einmitt líka kisi í Háaleitinu þegar ég var lítil sem hét Sveipur. 
Hann lét sig sko hafa það að ég var alltaf að kjassast í honum og bera hann frá einum stað á annan og svo til baka. Það eru meira að segja til myndir af honum þar sem ég er búin að troða honum í dúkkukerruna mína og er að keyra hann. Við skulum sjá til hvað Simbi endist lengi, ætli ég þurfi ekki að fara að múta honum með einhverju góðgæti til að hann láti sig ekki hverfa.
Annars held ég að börn hafi mjög gott af því að alast upp í kringum dýr þar sem þau læra að umgangast aðarar lífverur og bera virðingu fyrir þeim. Vonandi fáum við okkur kannski kisu eða eitthvað annað dýr þegar við komum aftur heim frá DK.
26 ágúst 2006
Vinnudjamm
Það er búið að vera nóg að gera síðustu tvo daga í vinnunni þó svo að ég sé í sumarfríi og var ekki beint að vinna.
Á fimmtudaginn fórum við í keilu uppfrá hjá Varnarliðinu. Það var mjög skrítið að fara þarna og maður þurfti að skrá sig í ferðina minnst 10 dögum fyrr til að þeir gætu nú örugglega athugað hvort við værum nokkuð tengd einhverjum hryðjuverkasamtökum! En þetta var skrítin upplifun. Strax við hliðið er þvílíkt eftirlit þó svo að það séu næstum allir farnir þarna af svæðinu. Meðan að einn hermaður kom inní rútuna til að tékka á skilríkjum hjá öllum þá stóð annar fyrir utan með RIFFIL í höndunum og BYSSU í slíðri á beltinu! Kræst, maður er svo óvanur að sjá svona vopn að það fór alveg um mann, ætlaði varla að þora að horfa á hann!
Keilan var fín þar sem your´s truely fór á kostum en maður fann alveg að maður var ekki beint á íslandi. Það er allt örðuvísi þarna, klósettin, borðin.... æ, get ekki alveg lýst þessu en það var allavegana allt mjög amerískt. Við spiluðum þrjá leiki og ég var alveg dauð eftir það þar sem við vorum fimm með einn leik í gangi á tveim brautum þannig að maður var stanslaust að gera. Lokatölur verða sem betur fer ekki gerðar opinberar.
Svo í gær var partý hjá Upplýsingatæknisviði sem mín deild tilheyrir. Jamm, það er mjög skrítið að við heyrum undir þessa deild (tölvunörd og svo við) en ekki undir Eignarstýringarsvið eins og við gerðum áður þar sem við erum að vinna bakvinnsluna fyrir eignarstýringu. Anyways.... Það kom rúta að sækja okkur niður í bæ og leiðinn var heitið uppí Hafravatn þar sem einhver innan bankans á bústað. Það fóru tvær rútur með klukkutíma millibili og ég fór með þeirri seinni. Það var búið að gera þvílíkt flott svæði þarna þar sem búið var að koma fyrir risastóru partytjaldi við vatnið með bekkjum og borðum og svo var Grillvagninn fenginn til að grilla ofan í liðið. Á hliðarlínunni við dansflötinn var langborð þar sem í boði voru skot af ýmsum gerðum, Brezzer 4 tegundir, rautt og hvítt og svo auðvitað bjórkútar.
Þegar við mættum á svæðið þá voru allir þeir sem komu með fyrri rútunni komnir á skallann venga einhvers spurningaleiks sem fól í sér mjög óhóflegt magn af skotum. Brynja og Kristín voru á snepplunum þegar ég kom að þeim og Brynja hélst varla á bekknum! Ég var auðvitað strax mönuð uppí að fá mér skot en ég þorði varla þar sem ég var með galtómann maga! Endaði samt með að ég fékk mér tvö skot og þegar kom síðan að matnum þá gat ég varla haldið á hnífapröunum vegna ölvunar! Eftir tvö skot! Vá hvað maður er orðinn mikill hænuhaus! En allt fór vel og maturinn var frábær. Svo var farið út og dansað og spjallað. Ásdís er komin með eitt prik fyrir meinta morðtilraun þar sem við vorum að dansa og hún lét mig óvart hrasa um tjaldsnúru þannig að ég datt killiflöt beint á bringuna! En ég hélt andlitinu þó ég missti andann þarna í smá stund. Ásdís... 1-0 fyrir þér , ég myndi passa mig á næsta djammi ;)
En þetta var mjög skemmtilegt og margir urðu mjög skrautlegir m.a. stakk einn maður sér til sunds í ísköldu vatninu við mjög misjafnar undirtektir!
Mér finnst alveg nauðsynlegt að halda af og til eitthvað svona starfsmannaparty eða eitthvað annað þannig að fólk fái tækifæri til að hittast og kynnast aðeins betur utan starfsumhverfisins. Hlakka til næst! Ég komst síðan að því að leigubíll neðan úr bæ og hingað heim kostar sléttar 2.000 krónur þannig að annaðhvort þarf ég að fara að semja eitthvað við þessa leigara eða kannski bara kynnast fleira fólki hérna uppí Grafarvogi!

23 ágúst 2006
Er ég kem heim í Búðardal....
Jæja, þá er maður kominn aftur í bæinn úr ferðalagi á Vestfirðina. Maður er úthvíldur eða eins úthvíldur og maður verður eftir 6 tíma akstur í sitthvora áttina. Búðardalslagið var auðvitað sungið hátt og snjallt þegar við renndum þarna í gegn í bæði skiptin. Þetta var ágætis ferðalag og náttúrufegurðin þarna á Vestfjörðum er alveg stórkostleg.
Í dag á hann Einar minn afmæli! Hann er 26 ára húrra, húrra, húrra! Við tókum forskot á sæluna og héldum uppá afmælið um helgina í bústaðnum. Þar fékk Einar frá okkur fjölskyldunni flottann Fender kassagítar. Ég var búin að plana þessa gítargjöf ca. 2 mánuði fram í tímann en þessi hugmynd hefur verið að blunda með mér mun lengur. Mér fannst Einar eiga skilið að fá loksins flotttann gítar þar sem hann á bara einhvern gamlann og lúinn og vegna námsáranna og almennra blankheita höfum við ekki getað endurnýjað hann.Mér datt í hug að fá foreldra okkar beggja með í þetta og svo var ég svo heppinn að kunningi minn ,sem er mjög kunnugur gítörum, hjálpaði mér að finna flottann og góðann gítar. Þegar búið var að versla gítarinn fór ég með hann beinustu leið til tengdó og fékk þau til að taka gripinn í sínum bíl uppí bústað. Svo á laugardagsmorguninn leyfði ég Einari að sofa út eða svona eins lengi og ég hafði þolinmæði til ;)Að lokum fór ég inn til hans þar sem hann var hálfsofandi og rétti honum kort og inní því var blað sem ég var búin að prenta út specifications um gítarinn.... Meðan að Einar var að vakna og átta sig á hvað hann var að lesa fór ég fram þar sem búið var að stilla gítarnum upp í eldhúsinu. Svo allt í einu heyrði maður bara drunur (Einar hafði stokkið fram úr kojunni) og svo kemur Einar inn og veit varla hvað hann á að halda um það fyrr en hann sér gítarinn! "Eruð þið ekki að djóka???" endurtekur hann bara nokkrum sinnum þar sem hann trúir ekki eigin augum! Svo tók hann auðvitað gítarinn úr kassanum og skoðaði í bak og fyrir og fór að prófa hann. Ég veit ekki hvort var skemmtilegra; fyrir hann að fá gítartinn eða mig að sjá hann svona ánægðann!
Hérna er svo mynd af gripnum þó svo að mér finnist hún ekki sýna nógu vel hvað hann er fallegur og nú er ég ekki sérfræðingur.

Fyrir utan þetta fórum við í gönguferðir, reyndum að tína ber en þau voru ekki tilbúin og grilluðum úti marg fleira skemmtilegt. Daníel naut sín mjög vel í sveitinni og lék sér mikið og ærslaðist í grasinu. Jæja segi þetta gott í bili þar sem verið er að kalla á mig, einhver virðist vilja fá hádegismatinn sinn :)
Já og ekki má gleyma að Jóhanna vinkona, Eva gamla bekkjasystir og Ísold litla sæta áttu allar afmæli í gær og þið fáið hérna allar risa knús og kossa frá mér.

16 ágúst 2006
Hallærislegar auglýsingar
Aldrei skal mann undra hversu hörmulega-ömurlega-hallærislegar auglýsingar eru framleiddar og virkilega látnar gossa í loftið. Þetta virðist vera sérstaklega áberandi núna þ.e. að það eru alltof margar lélegar auglýsingar í gangi.
1.ORVILLE. Einhver hallæris DJ sem er einhverra hluta vegna með að poppa örbylgjupopp meðan að hann er að spila. Ekki nóg með það heldur er hann í einni þeirra að éta poppið með kínaprjónum. Er einhver heil brú í þessu? Allavegana þegar ég er að djamma þá vil ég frekar fá mér í glas frekar en að fá mér popp! Glatað
2.ORKUVEITAN. Ég fæ smá ælu uppí mig bara við að hugsa um þennan viðbjóð. "pabbi, hvaðan kemur eiginlega rafmagnið?" Svo byrjar einhver svakalegur söngleikur þar sem aðal pointið er "Svona viljum við hafa það, ekkert vesen og allt í góðu lagi". Ekki misskilja mig, auglýsingin er flott en ég sé bara ekki tilganginn með henni. Afhverju í ósköpunum er Orkuveitan að eyða stórfé í gerð greinilega rándýrar auglýsingar, eins og hún geri ekki nóg af því fyrir. Er það þetta sem síðasta orkugjaldshækkun fór í? Ég geri mér grein fyrir því að nú hefur fólk val um að skipt við OR eða RARIK en kommon!Hérna má nálgast auglýsinguna.
3.KFC. Hrikalegar auglýsingar þar sem mismunandi fólk reynir að stama útúr sér að það viti ekkert betra en KFC."Ég verð a..að fá zingerborgarnn..nn minn í háádeginu á sunnudögum". Annars hvað? Ha? Kræst! Hvernig væri að gera þetta almennilega víst að þeir eru að þessu á annað borð og fá sér nokkuð sem kallast LEIKARAR. Það vill svo til að ég veit að það er til nóg af þeim og örugglega nokkrir sem hafa lausan tíma. Plís ekki vera að fá vini og fjölskyldu til að leika í svona drasli.. það er bara sorglegt.
4.Thule. Þeir hafa nú í gegnum tíðina verið með frábærar auglýsingar og mig verkja alveg við að sjá hvað þeir hafa farið illa að ráði sínu. Að horfa á Pétur Jóhann, sem er svo löngu útbrunninn, vera með eitthvað pínlegt grín vekur með mér löngun til að slökkva á sjónvarpinu. Sorry, ekki að virka.
5. SPARISÓÐIRNIR. Þetta er nýjasta lélega auglýsingin sem ég hef tekið eftir. Veit ekki hvort þetta á að vera artí eða hvað. Þarna eru "ungir námsmenn" að gera gott úr því sem þau hafa. Þarna koma ýmsar nýstárlegar aðferðir fyrir þá sem eru fátækir! Já, það er nefnilega hægt að teikna bindi og kraga á hvítann bol í staðinn fyrir að kaupa hlutina. Það er hægt að poppa í potti og fara svo að horfa á stjörnurnar og síðast en ekki síst er hægt að klippa út sjónvarp úr pappakassa og krota eitthvað framan í sig og gera eitthvað sem ég annað hvort náði ekki eða ég var búin að skipta um stöð. Til að toppa allt þá er þetta í svarthvítu og með svona gamaldags-effect. Ef Sparisjóðirnir hafa ekki efni á að nota nútímatækni við gerð auglýsinga þá þurfa þeir virkilega að fara að taka sig á í samkeppninni.
Og svo eru gamlar kellingar að kæra vegagerðamenn fyrir að vera að vinna berir að ofan og særa blygðunarkennd sína. Ég held ég verði bara að fara að taka mig til og fara að kæra eitthvað af þessu markaðs-auglýsingapakki því þessara auglýsinga láta mann alveg fara hjá sér.
Hérna eru nokkrar auglýsingar sem mér finnast góðar.
Hive - hefur þú frá mörgu að segja?
Colgate - 360 gráður tannburstinn
Dominos
IKEA
Pósturinn - allur pakkinn
Landsbankinn - Við elskum fótbolta
KB - námsmenn
Lottó
Flugger litir
Allavegana gaman að heyra ef einhver hefur einhverju við að bæta annan hvorn listann.

15 ágúst 2006
Rise and shine syster!!!!
Jebb, klukkan er 06:06 og ég er komin á fætur. Ég er reyndar búin að vera vakandi frá 05:38 en ætli það sé ekki "the price you pay" fyrir að Daníel svaf góðann hádegisblund í gær í rúman 2 og hálfann tíma. Það er svona takmarkað hvað maður getur tekið daginn snemma og hef ég núna t.d. lítið annað að gera en að horfa á litla orminn minn rústa íbúðinni á ógnarhraða.
p.s. Ég er víst ekki morgunhressasta manneskja í heimi lengur eins og ég var...

13 ágúst 2006
Fínasta helgi
Á föstudaginn héldum við party og buðum gömlum skólafélögum Einars úr HR. Þetta var mjög fínt og rosalega skemmtilegur hópur sem auðvelt er að falla inní. Partýið var síðan búið kl 2 og allir reknir út, fjórum tímum síðar var ég vöknuð eiturhress með Daníel. EITURHRESSSSSS!
Í gær fengum við svo Atla "litla" frænda hans Einars sem er nú samt að verða stærri en hann btw Einar er 1,87 m! Við grilluðum og tókum svo 40 year old virgin sem er bara geðveikt fyndin mynd. Við vorum í hláturkasti næstum því allann tímann. Eftir myndina vorum við síðan eitthvað að ræða kalla og vaxmeðferðir og hvort að þeir gætu farið í svona brazilian. Þá kom Atli með frábæra setningu: Ef einhver kæmi með vax nálægt pungnum á mér þá myndi sá sami vera skítandi kertum næstu vikurnar!!! Mér finnst þetta alveg brilljant :D Já, það er gaman að fylgjast með þessum litla frænda hans Einars þroskast og verða fullorðinn. Ég man ennþá eftir honum þegar hann var 11 ára tittur (fyrir rúmum 6 árum) að vara mig við að fara ekki illa með frænda hans annars væri honum að mæta ;-)
Ég furða mig stundum ennþá á því hvernig ég hélt út þarna fyrstu vikurnar með Einari. Atli alltaf límdur við okkur eins og frímerki og Alda að springa af öfund þar sem að hún var ekki lengur "eina stelpan" sem Einar veitti athygli :) Ég verð að viðurkenna að það tók sinn tíma að vinna traust Atla og við Alda tókum hvort aðra í sátt eftir einhvern tíma enda mjög góð vinkona mín í dag. En allt var þetta nú þess virði. Úff, komin þokkalega út fyrir efnið!
Back to basics. Í dag vorum við síðan bara í rólegheitum að dúlla okkur heima, fyrir utan uppvasks-maraþonið sem tók alveg hátt í 40 mínútur. Við vorum semsagt ekki búin að vaska upp síðan fyrir partyið og hvert eitt og einasta glas heimilisins var skítugt! Það verður góður dagur þegar við loksins ákveðum að fá okkur uppþvottavél.
Ég ætlaði líka að vera svona súperdugleg í dag og fara að hjóla sem ég og gerði. Nema hvað að í miðjum hjólatúrnum þá fer ég að heyra eitthvað svona hljóð eins og það sé einhver fluga að koma öðru hvoru að mér. Svo stoppa ég og þá HEYRI ég að það er sprungið á dekkinu og það var ekkert smá gat! Hljóðið sem ég heyrði meðan eg var að hjóla var þegar gatið fór fram hjá bremsunni svona fff....ffff...ffff...fff. Þannig að auðvitað þurfti ég að labba alla leiðina til baka og teyma hjólið og það tók sko alveg hátt í hálftíma! En ég fékk samt ágætis æfingu útúr þessu og bíð spennt eftir harðsperrunum á morgun.
Ég veit að þetta er svakalega sundurslitinn texti en ég er að fara að lúlla núna og nenni ómögulega að laga hann samkvæmt aðferðafræði reglum.
Nighty-night...

10 ágúst 2006
Best að halda sig bara á malbikinu!
Ég hef nú alltaf talið mig vera svona lala í landafræði okkar stórmerkilega og frábæra lands ;) Kannski ekki súpersleip, veit t.d. ekki hvar Trékillisvík er (man einhver eftir Sigga sæta kennaranema?) en ég kunni þó allar blessuðu sýslurnar utanbókar á sínum tíma. Ég hef farið "Hringinn" nokkrum sinnum og kann að nefna svona flest það sem þykir merkilegt sem er á leiðinni þótt ég hafi oftast setið í bílveikispillu-móki afturí.Nú ætlaði ég sko að vera heldur betur sniðug og fara í fríinu mínu á Vestfirði. Þetta er eflaust sá staður sem 99,9% ferðalanga sneiðir framhjá. Ég á það stundum til að vera súperbjarsýn og þá á sama tíma lítið raunsæ. Ég hef geinilega verið í einu svona kasti þegar ég pantaði einmitt sumarbústað hjá Landsbankanum, já bara næstum þvi í miðju Ísafjarðardjúpi. Fannst það alveg frábær hugmynd að skreppa þangað með kallinn og strákinn og ég lét ekki þar við sitja heldur bauð ég pabba, tengdó og systur hans Einars með. Jæja og nú fer svo að líða að þessari ferð eða eftir viku og ég er svona að skoða kortin og fatta bara að hvernig í and#*$ á maður að komast þangað??? Það er ekki mikið mál að fara hringveginn þ.e. ef maður ratar útúr bænum og keyrir BEINT AF AUGUM þá endar maður á Akureyri fyrr eða síðar. Það er annað mál með Vestfirðina! Það er hægt að velja úr mörgum leiðum (sennilega útaf færð) og meira að segja er hægt að taka ferju ef maður vill auka við fjölbreytnina í ferðamátum. Ég nefndi þetta vandamál við samstarfskonur mínar sem eru ALLAR utan af landi en þær gátu lítið hjálpað mér. Kommon, ef maður er útaf-landi-lið á maður þá ekki að kunna allt vegakerfið utanbókar? Það hélt ég! Allavegana þá byrjum við að leita að einhverjum innan bankans sem þekkir til þarna og viti menn við finnum hann Snorra sem er í Einkabanka-þjónustunni. Þannig að við hringjum í hann (svona erum við kammmó alltaf í LÍ) og hann er sko til í að hjálpa litla áttavillta borgarbarninu. Gaurinn þylur upp fyrir mig leiðina og meira að segja hvað er skemmtilegt að skoða þarna. Svo kemur í ljós að þessi maður (fæddur ´70) er búinn að kaupa hús í Súðavík og er að gera það upp. Ég sem hélt að það væri svo gott sem "ghost town" eftir hamfarirnar, sýnir hvað maður veit lítið. Hann segist vera 3 tíma að skunda í bæinn. Þorði nú ekki að spyrja meira út í þetta en ég trúi varla að hann ætli að búa þarna, ég meina ég veit að það er farið að tala um Kjarlarnes og Akranes sem nokkurskonar úthverfi höfuðborgarinnar en Súðavík? En það er samt sniðugt örugglega að eiga þetta sem sumarhús, veit að það er hægt að kaupa fínustu íbúðir á slikk (3-4 millur)á svona afskertari stöðum. En ætli ég láti það ekki bíða aðeins, fyrst skulum við sjá hvort ég rati í sumarbústaðinn og heim aftur !
07 ágúst 2006
Brúðkaupsafmæli - Pappírsbrúðkaup
Við Einar áttum 1 árs brúðkaupsafmæli í gær. Við vorum ekkert búin að plana þar sem við áttum von á að fara í útilegu en það var hætt við það vegna veðurs. Þannig að á síðustu stundu ákváðum við að slá til og gera eitthvað saman. Við vorum svo heppin að Hrefna og Egill gátu tekið Daníel í næturpössun. Þetta var fyrsta næturpössunin sem við höfum látið Daníel í og hann er nú orðinn næstum 14 mánaða. Maður var svona pínu stressaður (aðalega pössunarpíanna vegna) en að fá smá frí saman var svo sannarlega orðið löngutímabært.Við skelltum okkur á Austur-India félagið og maturinn þar var geggjaður. Í fordrykk fengum við okkur Mango-Lassi sem er svona unaðslegur jógúrt drykkur og í forrétt fengum við okkur síðan Tandoribakaðann lax með kryddjurtum. Þetta var bæði rosalega gott (fæ alveg vatn í munninn) en það jafnaðist ekkert á við aðalréttinn. Einar fékk sér blöndu af kjöti bökuðu í Tandori ofninum og ég fékk mér risarækjur sem voru allsvakalega kryddaðar. Eftir matinn ákváðum við að rölta aðeins um Laugarveginn í góða veðrinu og það var þvílíkt næs og rómó. Svo fórum við bara heim og áttum rólega stund þar yfir spilum og spjalli. Það var svo alveg GEÐVEIKT að fá að sofa út saman í fyrsta skipti síðan að Daníel fæddist!
Þegar ég er að skrifa þetta hérna þá hljómar þetta dáldið óspennandi en við áttum alveg frábært kvöld bara við tvö ein saman. Það er alveg nauðsynlegt að fá smá, bara pínu, frí frá Daníel a.m.k. einu sinni á ári til að endurhlaða batteríin. Við vorum nú samt strax farin að sakan hans um leið og við vöknuðum. Spurning hvort við semjum ekki bara við Hrefnu og Egill að gera þetta að árlegri brúðkaups-afmælis-gjöf?
p.s. Fann ekki betri brúðkaupsmynd af okkur þar sem við eigum enn eftir að skanna inn pro-myndirnar. Tengdamamma á það til að festast í þessum ská-myndatökum og allar myndirnar sem hún tók af okkur þennan daginn eru svona :D
05 ágúst 2006
Aðeins að breyta til
Ég er orðin rauðhærð... eða því sem næst. Ljósu strípurnar fengu að fjúka og rauðar komnar í staðinn. Mér finnst þetta nú kannski ekki mikil viðbrigði enda hef ég oft og mörgum sinnum verið rauðhærð áður og fyrir utan það þá stoppa ég stutt við hvern lit og greiðslu. Humm, nú fékk ég hugmynd. Kannski ég ætti að skanna inn nokkrar myndir sem ég á af mér í gegnum tíðina og bera þær saman hérna. Spurning?Ég er auðvitað skítfallinn í þessu átaki mínu sem ég þóttist vera í. Ég veit líka alveg hvað varð mér að falli. Það var þessi vitleysis hugmynd í henni Ásdísi að ef maður væri í boði þá mætti maður fá sér pínu flís af svona köku og pínu flís af annari köku, bara svona til að vera með. Ég tók þessu fegins hendi en fyrr en varði var ég búin að teygja skilgreininguna út í að ef manni væri líka boðið nammi þá mætti maður fá einn mola og svo mátti ég fá pínu nammi á laugardögum af því að það eru nammidagar.... Svo er það að kaupa nammi líka svo mikill ávani, alveg ótrúlegt. Ég labba stundum að kassanum þar sem er alltaf troðið af sælgæti og mig langar bara að kaupa eitthvað, bara hvað sem er nánast! ÉG HEF GJÖRSAMELGA ENGA SJÁLFSSTJÓRN! Ætli ég yrði ekki að láta svipta mig fjárræði ef ég ætlaði að standa mig í átakinu. En það þýðir ekkert annað en að byrja uppá nýtt, batnandi manni er best að lifa (grennast). Ég er meira að segja farin að skoða það að fara í líkamsrækt og velta fyrir mér hvað árskort kosta. Ég hata líkamsrækt eða öllu heldur líkamsræktarstöðvar. Mér finnst maður oftar en ekki líta út eins og algjör hálviti hoppandi og skoppandi eins apar í hóp fyrir framan spegil. En ég gæti sætt mig við spinning, var nú einu sinni alveg hreint ágæt í því. Það var þegar ég var 16-17 ára og ég, Eva og Tulla vorum í Erobikk-sport í Faxafeninu. Ahhh.. good times.
Jæja það er á stenfuskránni hjá mér í dag að taka allsvakalega til hérna, fara í Smáralind, kíkja í góðann göngutúr og elda svo eitthvað gott í kvöld kannski.
Í þessum töluðu orðum þá sitja strákarnir mínir hérna hjá mér báðir sofandi. Einar er semsagt sofnaður með Daníel sofandi í fanginu á sér! Ætla að reyna að ná mynd af þessu og ef það tekst þá birti ég hana hérna ef Einar leyfir!
Bæbæ.
03 ágúst 2006
02 ágúst 2006
Sérviska
Það eru allir með einhverjar sérviskur sama hvort þeir gera sér grein fyrir því og vilja viðurkenna það eða ekki! Ég held að ég sé nú alveg í meðallagi en það væri samt gaman að heyra hvaða sérvisku fólk er með.
Hérna kemur listinn minn:
* Ég borða aldrei endann á brauði, pylsu, hamborgara og fl. - Ég veit ekki afhverju ég geri þetta ekki en yfirleitt finnst mér síðasti bitinn eitthvað svo ólystugur þannig að ég hef bara gert þetta af vana og pæli ekki í þessu.
* Ég geng aldrei yfir holræsi - Þetta er nú kannski frekar hjátrú sem Ebba tróð inn hjá mér þegar ég var yngir. Ég er nú reyndar ekki hjátrúafull en einhvernveginn hef ég bara vanið mig á það að sneiða framhjá holræsum.
* Ég borða alltaf fyrst súkkulaðið utan af frostpinnum og skil marsipanrúllur að - veit ekki afhverju en kannski save the best for the last?
* Ég skoða alltaf bók í bak og fyrir áður en ég byrja að lesa hana - Ég tékk á því hvað hún er löng, hver gaf hana út og æviágrip rithöfundar. Finnst þetta bara skemmtilegt þó ég geri þetta án umhugsunar.
* Ég skil alltaf eftir endann á banananum, þið vitið þar sem er svona stubbur - Einu sinni heyrði ég að það gætu verið pöddur þarna, nóg fyrir mig til að sleppa þessu fyrir lífstíð!
* Ég vil alltaf hafa allt nákvæmt og akkúrat sem ég geri þ.e.a.s. verður að passa innan rammans - Ég smyr alla brauðsneiðina jafnt og líka útí hornin, svo verður osturinn líka að passa akkúrat. Ef osturinn stendur út fyrir þá verð ég að klípa af honum. Ef uppvaskið er meira en kemst fyrir á uppþvottagreindinni þá verður afgangurinn bara að bíða þar til fyrra hollið er búið að þorna!
* Ég passa mig að gleypa aldrei eða sem minnsta mögulega loft þegar ég er að borða - Veit ekki hvaðan þetta kemur en sennilega frá mömmu. Þegar ég drekk gos þá geri ég eitthvað þannig að loftið/gasið aðskilst, get ekki útskýrt betur.
Humm.... eitthvað varð listinn minn styttri en ég átti von á og ég sé líka að þetta tengist mikið mat, hvað segir það um mann? Ætli það sé ekki miklu erfiðara að segja eitthvað um sjálfann sig þar sem maður er svo vanur að gera þetta og finnst þetta eðlilegt. En maður vill hafa sínar sérviskur og það fer stundum meira að segja í taugarnar á mér þegar ég sé annað fólk gera öðruvísis. Ég tek mér bara tíma í að smyrja brauðsneið handa Daníel þótt hann sé hoppandi brjálaður og öskrandi við hliðina á mér. Það gefur mér meira að gera þetta "rétt" en að þagga fyrr niður í Daníel. Svona er þetta sérstakt.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)