29 nóvember 2007

Summer

Sandra og Pete eignuðust litla prinsessu þann 20. nóv síðastliðinn og fékk hún nafnið Summer Torfhildur Petesdóttir. Hérna er fyrsta myndin litlu rófunni. Innilega til hamingju enn og aftur!



23 nóvember 2007

hehehe...góður!

Frétt af mbl.is:

Neytendur hvattir til að taka sér frí frá innkaupum

Frídagur neytenda „Kauptu ekkert dagurinn” er á morgun og hvetja Neytendasamtökin Íslendinga til að taka sér frí frá innkaupum þann dag og nota daginn þess í stað til að íhuga áhrif innkaupa þeirra á eigið líf og umhverfi.

Getur einhver séð fyrir sér tóma Smáralind á laugardegi?

01 nóvember 2007

Skíííííííííííííítakuldi og heimsókn

Það er kalt, kaldara, kaldast hérna heima hjá okkur Daníel þessa dagana... eða réttara sagt bara frá því að það fór að kólna svona almennilega í veðri á þessu skítalandiþarsemeraldreigottveður og ég hata, hata, hata hvað það þarf mikið bras til að laga það - sérstaklega þegar maður er einn með barn. Þannig er að stóri ofninn í eldhúsinu virkar ekki og ekki heldur annar ofninn í stofunni og varla ofninn inná baði. Til að bæta gráu ofan á svart þá er svalahurðin orðin svo óþétt að það bókstaflega gustar inn þó að allt sé lokað og harðlæst. Ég hef EKKI góða reynslu af iðnaðarmönnum en kann ekki handtak í þessu sjálf og því miður er ég ekki beint með sæg af laghenntum karlmönnum í kringum mig frekar en vanalega. En þetta verkefni kallar víst á pípara sem aftur kallar á að ég verði annaðhvort enn einn daginn heima eða fari á milli sem er ekki nema korter hvora leið + hálftíma í að finna bílastæði. Ég er svo ekki að nenna þessu gott fólk.....
Að skemmtilegri hlutum. Á sunnudagsmorgun var dinglað á bjölluna hjá mér. Hver getur verið svona snemma á ferð á sunnudegi hugsa ég þar sem ég geng hálf stirð á náttsloppnum til dyra. Þegar ég opna fram í andyrið sé ég einhverja stelpu hoppandi og skælbrosandi fyrir utan og er dálitla stund að fatta að þetta var EBBA vinkona/frænka/fyrrverandi skólasystir og nágranni. Ég fékk SJOKK! Ekki bara af því að Ebba á svona yfirleitt að vera í Danmörku heldur var íbúðin líka í rúst eftir ömurlega viku hjá mér. En hvað um það, Ebba kom færandi hendi með sunnudagsbakkelsi og sitt einstaka góða skap. Ég get ekki lýst því hvað það var gaman að sjá hana svona óvænt. Það er eitthvað við æskuvinkonur sem er alveg einstakt eins og við Ebba vorum að tala um. Jú, auðvitað getur margt annað gott fólk komið til seinna á lífsleiðinni en það hefur enginn tærnar þar sem Ebba, Lára og Sandra hafa hælana og þess vegna finnst mér alltaf svo óendanlega leiðinlegt hvað þær eru allar langt í burtu. Ég held að það sé eitthvað við að kynnast svona ungar þegar maður er í raun bara ennþá autt blað og saman myndar maður sér skoðanir og á sama tíma verður sér út um reynslu sem maður deilir með hinum og verður fyrir áhrifum frá. Ohh... það er svo margt sem skýst uppí huga minn þegar ég hugsa um allt sem maður hefur lent í með þessum skvísum. Ef ég ætti að nefna nokkur dæmi: Samstæðu Lottó-gallarnir, tjaldútilegur útí garði, 17.júní, í ljósum undir skrifborðslampanum, skipt um kjól á miðju MK-balli, Eurovision og Grees dýrkun, Tequila og kippa af bjór, skátarnir, fatapóker, pissustæði með útsýni yfir allan Hafnafjörð, '80-böllin, peningablóm og margt fleira. Ég get ekki beðið eftir að komast út til Danmerkur þó það væri ekki nema bara til að fá að hitta Ebbu og Láru reglulega.
Síðan það var svona kalt hérna þá er ég búin að vera að skoða og lesa aftur bókina "Hot drinks on cold nights" og það eru ekkert smá girnilegir dykkir sem verið er að kynna í þeirri bók. Ætla að fara útí búð á morgun og kaupa kanel stangir, chillie, engifer og anís. Einn af drykkjunum sem ég sá var mjög einfaldur. Bara flóuð mjólk með sykri og smá anís... hljómar vel sem drykkur yfir góðri bók fyrir svefninn. Annar sem ég sá var heitt súkkulaði úr hvítu súkkulaði með smá saffron. Þriðji sem mér finnst reyndar líka mest spennandi eru seiði eða "infusion" þar sem kanill, engifer, chillie og döðlur er soðið sama með smá sykri. Það er allavegana af nótu að taka.
Bráðum kemur sweet helgarfrí en ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég eigi að gera af mér/okkur. Ég ætla svo sannarlega ekki að treysta á veðrið frekar en venjulega, er það bara ég eða er virkilega búið að vera skítaveður síðasta mánuðinn? Ég gæti trúað að ég myndi leigja mér það sem ég á eftir að horfa á af Grey´s þar sem ég er búin með alla þættina mína og hef horft á síðsutu tvo í gegnum netið í ömurlegum gæðum (jebb, mjög desperatos).