29 janúar 2007
Heima í dag
Ég er eitthvað svo óheyrilega andlaus þessa dagana. Daníel er búinn að vera veikur um helgina vegna bólusetningar sem hann fékk í 18 mánaða skoðuninni. Hann er búinn að vera mikið á höndum og þá litið út eins og hann væri við það að missa meðvitund á köflum og þess á milli hefur hann verið að hlaupa útum allt voða hress. Skrítið. Ég get nú ekki neitað því að það er nú ansi notalegt að hann vill vera svona mikið hjá manni þegar honum líður illa, manni finnst maður dáldið merkilegur og ómissandi. Auðvitað vildi ég frekar að hann væri frískur en það er gott að finna að hann þarf á manni að halda. Í dag er semsagt þriðji dagurinn sem hann er með hita en hefur engin önnur einkenni. Ætla að bíða til hádegis og hringja síðan í ungbarnaverndina því það er talað um að þetta ástand eigi ekki að vera í lengur en sólarhring. Okkur mun samt ekki leiðast í dag þar sem þetta er ekki svona týpísk veikindi þar sem börnin eru bara hreint út sagt leiðinleg og mjög þreytandi að vera með þau heima. Við erum með ýmislegt planað eins og að taka til hérna og Daníel er alveg einstaklega duglegur í að hjálpa. Í gær fórum við t.d. yfir allar flöskur og dósir og Daníel hjálpaði til samviskusamlega við að flokka og að lokum hjálpaði hann mér meira að segja að halda á þessu útí bíl. Svona er þessi pjakkur duglegur. p.s. Daníel tekst samt að fríkka með hverjum degi, meira að segja þó hann sé veikur ;-)
24 janúar 2007
Í fyrsta skipti - í hvert skipti!
Það hlaut að koma að því... ég hef verið dáldið á móti svonalöguðu, veit ekki afhverju, en nú er þetta orðið að raunveruleika á þessu heimili. Já, það er rétt. Það er komin uppþvottavél inní eldhús! Ég veit ekki afhverju ég hef verið dáldið skeptísk útí uppþvottavélar, ætli það sé ekki bara af því að ég er vön því að vaska... Einar er vanur að vaska upp. Veit ekki hvaða bull þetta er í manni, það er nú svo sem ekkert virðingarvert við að standa á hverjum degi fyrir framan vaskinn og skrúbba leirtau. Kannski hefur mér fundist ég vera svona alvöru húsmóðir að standa sveitt við uppvask á hverjum degi, hver veit. Reyndar finnst mér uppvask með skárri heimilisverkum sem fyrirfinnast og reyndar getur stundum verið ágætt að vaska upp, gefur manni smá tóm til að hugsa, eins og ég hef nú alltaf nóg að hugsa um ;-). En það sem hefur kannski helst farið í mig er að uppvask er ansi tímafrekt og þetta er tími sem mig langar miklu frekar til að eyða í eitthvað skemmtilegt t.d. leika við Daníel. Vélin var allavegana keypt á fimmtudaginn en við vorum í smávægilegum vandræðum með tenginguna í niðurfallið. Við vorum spennt fyrir að prófa vélina og höfðum sérstaklega ekki vaskað upp þannig að það var dáldið í vasknum. Þegar kom í ljós að við gætum ekki komið þessu saman sama dag þá stakk Einar uppá því að við myndum taka uppvaskið í síðasta skiptið uppá gamla mátann. Ég hélt nú ekki! That time has passed sagði ég og þess vegna fékk uppvaskið að liggja áfram í vasknum. Við tengdum svo vélina í dag og auðvitað var keypt Finish uppþvottaefni og fyrsti þvotturinn settur í gang enda veitti ekki af þar sem báðir vaskarnir voru orðnir stútfullir og grunsamleg lykt farin að hreiðra um sig. Meðan að vélin púlaði þá sátum við Einar í makindum uppí sófa að lesa og önnur eins kósýheit. Bæði uppþvottavélin og þvottaduftið (kraftkúlutæknin sko!) stóðust prófið með prýði og allt kom glansandi hreint út, miklu flottara en þegar maður vaskar upp sjálfur og þurrkar. Ég hef því skipt algjörlega um skoðun á þessum blessuðum vélum og er þetta nú orðið að uppáhalds heimilistækinu mínu! Svei mér þá ef ég verð ekki bara að gefa henni nafn, hehe!!19 janúar 2007
Sólarlandaferð!

Ég var að enda við að panta dýrindis sólarlandaferð til Golden Sands í Búlgaríu. Ég er ekkert smá ánægð og spennt. Mér fannst við ekki geta annað enn að skella okkur í almennilega ferð núna í sumar þar sem við erum búnir að vera fátækir námsmenn svo lengi og erum á leið í þann pakka aftur í haust. Ég get varla beðið eftir að sjá Daníel vera að sprella í sandinum og það verður gott að komast í burtu aðeins. Við förum semsagt 2.júlí og verðum í 2 vikur. Jibbbííííí!
16 janúar 2007
It will all come with the cold water...
Dagarnir líða og janúar er nú þegar hálfnaður! Ótrúlegt og maður veit ekkert í hvað tíminn fer.
Steina eignaðist litla bjútíbollu í gær. Daman mætti 13:18 í heiminn og mældist 17 merkur og 51 cm. Innilega til hamingju Steina, Tóti og Ísold með nýjustu viðbótina í fjölskylduna.
Útskriftin mín er næsta laugardag og ég er alveg á mörkunum með að nenna að mæta á sjálfa athöfnina. Málið er að maður á að vera mættur kl. 10 og athöfnin á ekki að byrja fyrr en kl 13!!! Þetta er ekki djók. Í póstinum er okkur meira að segja bent á að taka með okkur nesti! Og hvað á síðan að gera í 3 tíma uppí Háskólabíói? Nei, við erum ekki að fara að kíkja á góða ræmu heldur erum við að fara í myndatöku og svo á að fara yfir "praktísk" atriði. Þetta á semsagt að taka 3 tíma! ÓMG! Svo er athöfnin sjálf 2 tímar þannig að við erum að tala um 5 tíma í hangs í Háskólabíói. Ég hef satt að segja ekki hugsað mér að mæta fyrr en svona kannski 12. Hef ekkert að gera í þessar myndatökur þar sem ég þekki aðeins örfáa sem eru að úskrifast með mér. Sjáum til, kannski bugast ég og mæti kl. 10.
Vala ætlar að vera svo góð að hjálpa mér kvöldið áður með veitingarnar því það verður greinilega ekki tími um morguninn ;-) Það verður fínt að slá botinum í þetta eða hitting the bottom in it eins og hægt er að segja líka. Ég er með eitthvað æði fyrir að setja íslenska málshætti yfir á ensku.
Jæja ég er að spá í að skella mér í náttgallan og skríða uppí rúm að lesa eitthvað skemmtilegt. Það er það besta sem ég get ímyndað mér þegar það er svona kalt veður og norðanátt. Ég er reyndar búin að finna eitt neikvætt við snjóinn núna sem ég er tilbúin að viðurkenna. Það er að mér finnst bara ogguponsulítið pirrandi þegar ég er í lágum stígvélum og pilsi og stíg óvart í djúpann snjó þanngi að það hellist gomma af ísköldum snjó beint á og í gegnum nælonsokkabuxurnar. Þetta sama atriði er ennþá meira pirrandi þegar maður er á hraðferð og er að draga Daníel á snjóþotu á eftir sér útí búð! Nóg í bili, góðar stundir!

13 janúar 2007
Snjór, já takk!
Ohhhh... mér finnst svo æðislegt þegar það er svona mikill snjór! Ég bókstaflega eeeeelska snjó! Það verður allt svo hreint og ferskt og hljóðlátt og síðast en ekki síst... stílhreint! Ég bara skil ekki fólk sem kann ekki að meta góða snjókomu og er að pirra sig yfir að umferðin gangi svo hægt. Mér finnst svo kósí að keyra bíl í miklum snjó. Þá er svo kósí í hlýjum bíl og fullt af snjó utan á rúðunum og ég eins og allir aðrir neyðist til að keyra hægt og rólega. Mér finnst þetta frábært, bara eins og góður skammtur af róandi fyrir samfélagið beint frá móðir náttúru og ekki veitir af! Svo er þetta auðvitað alveg frábært fyrir krakkana sem hlaupa út með snjóþotur og fara í snjókast og svo eru auðvitað aðrir sem eru yngri og eru kannski bara að sjá snjó í fyrsta skipti (svo þau muni) og geta bara ekki hætt að undrast á þessu hvíta efni sem þekur göturnar.
Það eru nú ekki allri sammála mér um þessa snjódýrkun t.d. Erna og Tedda vinkonur úr vinnunni. Ég get að vísu skilið þeirra snjónarmið að vissu leyti þar sem þær eru að norðan og eru vanar að vera fenntar inni næstum því á hverjum vetri.
Jæja ég vona bara að það snjói aðeins meira í dag og á morgun og hinn og hinn....

08 janúar 2007
Veik aftur...
Ég játaði mig sigraða í dag og staulaðist heim úr vinnunni áðan með gæsahúð dauðans og hor í nös. Ég er semsat veik aftur, var veik síðast í desember nota bene þannig að það er ekki einu sinni mánuður á milli veikinda hjá mér. Ég gjörsamlega þoli ekki að vera heima veik, finnst það alveg óheyrilega leiðinlegt að hanga ein í tómri íbúð. En ég er búin að koma mér upp smá veikindabæli hérna í hjónarúminu með allt sem ég þyrfti mögulega að nota til að ég þurfi alveg örugglega ekki að stíga framúr og undan heitri sænginni.
- auka teppi
- dagblöð, tímarit bækur
- auka peysa
- ávaxtasafi
- heitt vatn með hunangi og sítrónu
- strepsils
- snýtipappír
- símar
- tölva
03 janúar 2007

GLEÐILEGT NÝTT ÁR
2007!!!
Þá er nýtt ár loksins runnið upp enda það gamla orðið heldur betur tuskulegt. Það er margt spennandi á dagskrá á þessu ári og má þar helst nefna nýtt krílí hjá Steinu sem er áætlað þann 6.janúar, útskrift hjá mér þann 20. janúar og svo er það auðvitað langþráði draumurinn um nám og flutning til Danmerkur sem verður kannski efst á baugi.
Nýju ári fylgja auðvitað ný áramótaheit en þar sem ég er alltaf litli rebbellinn þá neita ég að strengja ármótaheit heldur setti ég mér raunsæ markmið seint, mjög seint (27.des), á síðasta ári. Þessi markmið eru ekki flókin og geranleg held ég bara.
Það er helst þetta:
- Drekka a.m.k. 1 fullt vatnsglas á dag! Þeir sem þekkja mig vita hvað ég þoli ekki að drekka vatn, verður bara bumbult. En ég er búin að standa mig í þessu og í gær voru þau meira að segja tvö!
- Taka inn fjölvítamín á hverjum degi. Þetta er í þeim tilgangi að vera hressari og orkumeiri og ég hef bara misst út einn dag en þá bætti ég það upp með því að taka Hárkúr, nokkurnveginn það sama - vítmaín eru vítamín!
- Fara í líkamsrækt og setja það inní vikuplanið hjá okkur Einari. Ég held að þetta muni virka ef það er í planinu. En takið eftir að ég segi mæta í líkamsrækt en ekki missa eitthvað x bla bla bla. Ég hef reynt það áður og það hefur aldrei virkað, núna ný nálgun! Ég er allavegana búin að fjárfest í 3gja mánaða korti, raunsæ!
- Borða minna hvítt hveiti og prófa mig áfram í spelti. Ath. minna er lykilorð hérna. Þetta er búið að ganga ágætlega og það er nú enginn svakalegur munur á speltpasta og venjulega nema kannski helst áferðin og svoleiðis.
- Minnka sælgætisát. Þetta helst í hendur með líkamsræktinni eiginlega. Ég hef það allavegana frá fyrri reynslu að þegar ég hef mætt í líkamsrætk þá hef ég ekki tímt að eyðileggja árangurinn eftirá með nammi. Ef ég mæti hins vegar ekki í ræktina... þá hefur maður svo sem engu að tapa ;-)
- Hérna kemur síðasta og er uppáhaldið mitt. Að hugsa betur um sjálfa mig! Já ég er búin að strita á síðasta ári og núna er kominn tími til að verðlauna mig. Þetta felur í sér að leyfa sér að fara í langt og gott bað á kvöldin, láta Einar nudda mig, fara ljós stöku sinnum og kaupa mér fallegar spennur í hárið, föt eða snyrtidót þegar mér dettur það í hug.´
Svona eftir á að hyggja þá er þetta nú bara eins og sniðið að þessum vinsælustu áramótaheitum í gegnum aldirnar. Væri gaman að heyra ef einhver annar hefur sett sér markmið á nýju ári.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)