Steina eignaðist litla bjútíbollu í gær. Daman mætti 13:18 í heiminn og mældist 17 merkur og 51 cm. Innilega til hamingju Steina, Tóti og Ísold með nýjustu viðbótina í fjölskylduna.
Útskriftin mín er næsta laugardag og ég er alveg á mörkunum með að nenna að mæta á sjálfa athöfnina. Málið er að maður á að vera mættur kl. 10 og athöfnin á ekki að byrja fyrr en kl 13!!! Þetta er ekki djók. Í póstinum er okkur meira að segja bent á að taka með okkur nesti! Og hvað á síðan að gera í 3 tíma uppí Háskólabíói? Nei, við erum ekki að fara að kíkja á góða ræmu heldur erum við að fara í myndatöku og svo á að fara yfir "praktísk" atriði. Þetta á semsagt að taka 3 tíma! ÓMG! Svo er athöfnin sjálf 2 tímar þannig að við erum að tala um 5 tíma í hangs í Háskólabíói. Ég hef satt að segja ekki hugsað mér að mæta fyrr en svona kannski 12. Hef ekkert að gera í þessar myndatökur þar sem ég þekki aðeins örfáa sem eru að úskrifast með mér. Sjáum til, kannski bugast ég og mæti kl. 10.
Vala ætlar að vera svo góð að hjálpa mér kvöldið áður með veitingarnar því það verður greinilega ekki tími um morguninn ;-) Það verður fínt að slá botinum í þetta eða hitting the bottom in it eins og hægt er að segja líka. Ég er með eitthvað æði fyrir að setja íslenska málshætti yfir á ensku.
Jæja ég er að spá í að skella mér í náttgallan og skríða uppí rúm að lesa eitthvað skemmtilegt. Það er það besta sem ég get ímyndað mér þegar það er svona kalt veður og norðanátt. Ég er reyndar búin að finna eitt neikvætt við snjóinn núna sem ég er tilbúin að viðurkenna. Það er að mér finnst bara ogguponsulítið pirrandi þegar ég er í lágum stígvélum og pilsi og stíg óvart í djúpann snjó þanngi að það hellist gomma af ísköldum snjó beint á og í gegnum nælonsokkabuxurnar. Þetta sama atriði er ennþá meira pirrandi þegar maður er á hraðferð og er að draga Daníel á snjóþotu á eftir sér útí búð! Nóg í bili, góðar stundir!
2 ummæli:
Takk fyrir Karen mín.
Slóð fyrir heimasíðu snúllunar er komin fyrir neðan myndina á síðunni minni.
Já ég var einmitt að enda við að kíkja á nýju snúlluna Steina mín, algjör dúlla.
Sandra, myndirnar eru í framköllun ;-)
Skrifa ummæli