28 apríl 2007

Gamlar minningar

Það var eitthvað sem ég gerði áðan sem minnti mig á einn strák sem ég var einu sinni með en svo gat ég ómögulega munað hvað hann hét! Ég átti nú nokkra kærasta á mínum yngri árum og þetta var auðvitað það merkilegasta sem var að gerast hjá manni á þeim tíma. Ég hélt nú að ég myndi alltaf muna eftir hverjum og einum eða í það minnsta full nöfn þeirra en nú virðast aðrir hlutir hafa tekið þeirra sæti í hausnum hjá mér og ég er því búin að gleyma þessu mest öllu. Ástæðan fyrir því að ég var að reyna að rifja upp nafnið á gæjanum var af því að ég ætlaði að gúggla hann og athuga hvort ég myndi finna eitthvað. Ég á nefnilega helst von á því að þessi gæji hafi brotið eitthvað af sér í gegnum lífstíðina og gott ef hann situr ekki bara inni. En það kemur auðvitað í ljós að ég man ekki fullt nafn eða bara nafn yfir höfuð heldur man ég bara gælunafnið hans! En úr því að maður er að tala um gamla kærasta þá veit ég nú eitt og annað um mína fyrrverandi t.d. einn hefur farið í meðferð, einn er giftur, einn hefur unnið íslandsmeistaratitilinn í handbolta og einn er a.m.k. tvíkynhneigður!

Jii ég fékk svo mikla nostalgígju við að skrifa þetta að ég fór inní vinnuherbergi að grafa upp gömlu Beneventum-blöðin. Það er alveg ótrúlega gaman að rifja framhaldsskólaárin upp og vá hvað ég hugsaði oft með mér "þessi" og "já ég man eftir þessu" "þessi" "bíddu var þessi í MH?" Ég mæli eindregið við alla sem eru að lesa þennan texta að grafa upp gömlu menntaskólablöðin eða albúmin og rifja aðeins upp þessi ár... þið verðið sko ekki fyrir vonbrigðum!

Nú væri ég sko til í að finna eins og eina gamal minningabók frá því í grunnskóla og lesa í gegnum hana, það væri sko æði. BTW þá sagði Anný mér að Dóri (Hvassó) væri að setja allar gömlu spólurnar, sem skólinn á, á DVD og þar á meðal er Rokcy Horror og Kabarettinn góði. Hún var búin að lofa að lána mér eða gera aukaeintak handa mér þannig að ég ætla að fara að inna hana eftir þessu. Ef ég fæ þetta í hendurnar er þá ekki einhver áhugasamur að kíkja til mín eitthvert kvöldið og horfa á þetta? Mér er sagt að við Sara höfum farið "á kostum" sem kynnar og ekki má gleyma Rokcky þar sem allir voru að syngja og dansa á nærfötunum einum saman ;-)

Jæja nóg í bili.

23 apríl 2007

Aftur mánudagur???

Afrek helgarinnar: mætti í ræktina á föstudaginn og laugardaginn
Syndir helgarinnar: fékk mér sætabrauð með kaffinu á laugardag og sunnudag!

Ætli maður komi þá ekki bara út á núlli? Nú er vika eftir af átaksnámskeiðinu og ég bara hreinlega verð að taka mig á! Það er bara 1 og hálft kg í að ná 5 kg markmiðinu mínu þannig að nú er bara harkan 6. Ég geri mér auðvitað fullkonma grein fyrir því að þetta mun ekki nást á einni viku ;) en ég finn alveg að ég er búin að slaka töluvert á í mataræðinu og ég væri sennilega búin að ná þessu ef ekki hefði verið fyrir þessa páska og slabb síðustu viku.

Bruninn sem var hérna í síðustu viku virðist vera á allra vörum. Ég get nú ekki sagt að ég sjái mikið eftir Pravda-húsinu úr því sem komið var. Það sem ég sé hins vegar mest eftir er kebaab-staðurinn á horninu! Ég kom alltaf (sennilega teljandi á annari hendi) við þarna eftir djammið og fékk mér bita. Það verður spennandi að sjá hvað þeir muni reisa þarna í staðinn en Villi er víst búinn að lofa uppí ermina á sér að þarna muni ekki eiga sér annað Iðu-slys... sjáum til.

19 apríl 2007

Jónsi maður.....

Jón Viktor náði fyrsta áfanga að stórmeistaratitli
Jón Viktor Gunnarsson náði í dag fyrsta áfanga að stórmeistaratitli í skák í lokaumferð Minningarmótsins um Þráin Guðmundsson sem fram fór í Skákhöll Reykjavíkur í Faxafeni. Jón Viktor samdi jafntefli við alþjóðlega meistarann Innu Gaponenku frá Úkraínu og tryggði sér með því áfangann. Lettneski stórmeistarinn Normunds Miezes varð hins vegar sigurvegari mótsins.


Sko Jónsa, bara ennþá að keppa í skák. Ég man ennþá eftir því þegar við vorum að búa til risastórann "velkominn heim" borða í bekknum þegar hann var að koma heim eftir að hafa sigrað norðurlandameistaratitilinn. Jæja ég vona að allavegana að honum gangi vel og verði heimsfrægur, hann á það sko alveg skilið.

16 apríl 2007

Aftur kominn mánudagur....

Var að lesa viðtal við Dóru Jóhannsdóttur leikkonu í helgarblaði Fréttablaðsins. Þetta voru svona ýmisskonar spurningar með stuttum svörum m.a. þessi:

Ef þú hefðir ofurafl, hvert myndi þitt vera ?
Ég væri þá svona ofur-leikkona sem gæti þannig brugðið sér í allra kvikinda líki og leikið alla út í horn.


Ég trúið því bara ekki þegar ég las þetta og þurfti þess vegna að lesa það aftur. Hvað er að þér?? hugsaði ég. Hver myndi virkilega kjósa sér þetta sem ofurafl? Kommon, hversu miklu meira kúl er að geta flogið eða lesið hugsanir??? Mig hefur alltaf dreymt um þetta tvennt. Ég ætla bara rétt að vona að ef einhver á ofurafl-spjald að hann fari þá ekki að eyða því í hana!

Annars fórum við að kíkja á leiksskólann hans Daníels í dag og hann leit mjög vel út. Þetta er alveg risa, risa stór leikskóli og leikskólastýran útskýði að það væri vegna þess hversu gamall hann væri og þá hefði verið allt önnur hugsun í gangi. Okkur leist bara mjög vel á þetta allt samana og ég fylltist upp af hugmyndum að skemmtilegu dóti til að gera með Daníel. Á leikskólanum voru líka að vinna 2 strákar um tvítugt sem mér fannst alveg meiriháttar jákvætt. Ég get ekki ímyndað mér annað en að það sér rosalega gaman að vinna á leiksskóla þó það hljóti auðvitað að vera erfitt um leið. Ég gæti alveg hugsað mér að prófa að vinna í einhvern tíma á leiksskóla og reyndar var okkur Einari að detta það í hug að ég gæti prófað það þegar við verðum úti í DK. Það væri þá auðvitað eftir að ég væri búin að læra að tala smá, gengur nú ekki mikið að ráða inn manneskju á leikskólann sem kann minna í dönsku en krakkarnir!

Svo er hérna smá auka sem ég ætla að fara að taka upp í blogginu:

Afrek dagsins: Líkamsrækt + taka til
Syndir dagsins: nokkrara M&M hnetu kúlur
Syndir helgarinnar: alltofmargar til að tala um hérna....

11 apríl 2007

Komin heim!

Jæja þá er maður kominn heim frá Amsterdam. Þetta var fínasta ferð og ég varð margs vísari t.d. um flughraða. Þannig var að fluginu okkar seinkaði um klukkutíma en áhöfnin fullvissaði okkur um að við myndum halda áætluðum komutíma. Hvernig má það vera? Jú, sagði sæti flugþjónninn við einn áhyggjufullann farþega, "we will fly faster"! Það er semsagt hægt að fljúga þessum flykkjum mun hraðar en er gert. Afhverju er þetta ekki auglýst? Ég sem er oft t.d. flugveik myndi með glöðu geði borga aðeins meira fyrir hraðflug. Ég vildi að ég hefði vitað þetta fyrr!
Einar er nú þegar búinn að skrifa niður það helsta úr ferðalaginu og má lesa það á blogginu hans hérna
Á leiðinni heim vorum við farin að telja niður tímana þar til við myndum hitta litla gaurinn okkar og ég var farin að ímynda mér að hann myndi koma hlaupandi á móti okkur. Þetta var nú ansi langt frá því sem gerðist því þegar Daníel sá okkur þá fannst honum það ekkert merkilegt og forðaði sér frekar en hitt. Það tók hann smá tíma að venjast okkur aftur og taka okkur í sátt, það vorum nú við eftir allt saman sem SKILDUM HANN EFTIR! Við höfðum sem betur fer keypt dáldið af samviskubits-gjöfum og þær hjálpuðu til.
Það er fínt að vera komin heim þó ég geti nú ekki beint glaðst yfir þessu blessaða veðri sem herjar hérna á okkur. Nú er bara að telja niður dagana í næstu ferð.... humm 3 mánuðir mínus 9 dagar! Já, þetta er nú dáldið langt.. jæja... ok... ætli það sé ekki best að gera bara eitthvað af viti í millitíðinni eins og að vinna :)

04 apríl 2007

Brottför eftir 7 tíma...

Þá erum við búin að koma Daníel fyrir hjá afa sínum og ömmu á Háó og búin að pakka því litla sem við ætlum að taka með okkur. Við ætlum að taka rútuna uppá flugvöll þar sem ég er skíthrædd við að keyra þessa Reykjanesbraut og það gefur manni bara gott tækifæri til að slappa af.

Það var mjög erfitt að skilja við litla gaurinn okkar því hann vissi að það ætti að skilja hann eftir, hann vissi bara ekki að það yrði í heila 4 daga! Hjarta mitt brast þegar ég heyrði hann kalla á eftir mér og gráta þegar við lokuðum hurðinni á eftir okkur.... ég var næstum því hætt við ferðina. Ég hringdi hins vegar uppá Háó hálftíma seinna og þá var víst allt fallið í ljúfa löð fyrir utan þegar í sjónvarpinu birtist dökkhærð kona með sítt hár, þá hélt Daníel að það væri ég og byrjaði að kalla á mig sárum ópum.

Ég get varla beðið eftir að fara uppí flugvélina í fyrramálið og leggja af stað. Mér finnst alltaf svo "góð" flugvélalykt. Það er sennilega bara af því að maður tengir það alltaf við útlandaferðir og þær eru nú aldrei leiðinlegar ;-) Ég vona bara að ég verði ekki flugveik... á það dáldið til.

Ætli það sé ekki best að fara að lúlla til að vera hress í fyrramálið. Ég er búin að hlaða myndavélina og það verður tekið nóg af myndum í þessari ferð. Vonandi get ég síðan sett myndaalbúmið í gang á þessari síðu eins og ég var búin að tala um.


GLEÐILEGA PÁSKA OG MUNA AÐ BORÐA YFIR SIG AF PÁSKAEGGJUM!