Þá erum við búin að koma Daníel fyrir hjá afa sínum og ömmu á Háó og búin að pakka því litla sem við ætlum að taka með okkur. Við ætlum að taka rútuna uppá flugvöll þar sem ég er skíthrædd við að keyra þessa Reykjanesbraut og það gefur manni bara gott tækifæri til að slappa af.
Það var mjög erfitt að skilja við litla gaurinn okkar því hann vissi að það ætti að skilja hann eftir, hann vissi bara ekki að það yrði í heila 4 daga! Hjarta mitt brast þegar ég heyrði hann kalla á eftir mér og gráta þegar við lokuðum hurðinni á eftir okkur.... ég var næstum því hætt við ferðina. Ég hringdi hins vegar uppá Háó hálftíma seinna og þá var víst allt fallið í ljúfa löð fyrir utan þegar í sjónvarpinu birtist dökkhærð kona með sítt hár, þá hélt Daníel að það væri ég og byrjaði að kalla á mig sárum ópum.
Ég get varla beðið eftir að fara uppí flugvélina í fyrramálið og leggja af stað. Mér finnst alltaf svo "góð" flugvélalykt. Það er sennilega bara af því að maður tengir það alltaf við útlandaferðir og þær eru nú aldrei leiðinlegar ;-) Ég vona bara að ég verði ekki flugveik... á það dáldið til.
Ætli það sé ekki best að fara að lúlla til að vera hress í fyrramálið. Ég er búin að hlaða myndavélina og það verður tekið nóg af myndum í þessari ferð. Vonandi get ég síðan sett myndaalbúmið í gang á þessari síðu eins og ég var búin að tala um.
GLEÐILEGA PÁSKA OG MUNA AÐ BORÐA YFIR SIG AF PÁSKAEGGJUM!

Engin ummæli:
Skrifa ummæli