Afrek helgarinnar: mætti í ræktina á föstudaginn og laugardaginn
Syndir helgarinnar: fékk mér sætabrauð með kaffinu á laugardag og sunnudag!
Ætli maður komi þá ekki bara út á núlli? Nú er vika eftir af átaksnámskeiðinu og ég bara hreinlega verð að taka mig á! Það er bara 1 og hálft kg í að ná 5 kg markmiðinu mínu þannig að nú er bara harkan 6. Ég geri mér auðvitað fullkonma grein fyrir því að þetta mun ekki nást á einni viku ;) en ég finn alveg að ég er búin að slaka töluvert á í mataræðinu og ég væri sennilega búin að ná þessu ef ekki hefði verið fyrir þessa páska og slabb síðustu viku.
Bruninn sem var hérna í síðustu viku virðist vera á allra vörum. Ég get nú ekki sagt að ég sjái mikið eftir Pravda-húsinu úr því sem komið var. Það sem ég sé hins vegar mest eftir er kebaab-staðurinn á horninu! Ég kom alltaf (sennilega teljandi á annari hendi) við þarna eftir djammið og fékk mér bita. Það verður spennandi að sjá hvað þeir muni reisa þarna í staðinn en Villi er víst búinn að lofa uppí ermina á sér að þarna muni ekki eiga sér annað Iðu-slys... sjáum til.
23 apríl 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Ég er alltaf að ná nokkrum góðum dögum og svo kemur einn til tveir slæmir og ég stend kyrr, 10 :( gangi þér vel með þetta Karen mín
Skrifa ummæli