30 júlí 2006

Ha? Er ég ekki töff?

Ég hef oft pælt í því hvað maður er orðinn fullorðinn. Mér finnst ég ekki vera fullorðin heldur er ég á þeirri skoðun að maður er aldrei eldri en manni finnst maður sjálfur vera. Ég er semsagt ennþá 18! En þó að ég lifi í mínum sjálfsblekkingarheimi sæl og glöð þá heldur heimurinn víst áfram að rúlla og í desember verð ég víst 26 ára. 26 ÁRA!!! Kræst!
Það er líka margt í umhverfi mínu sem reynir að vekja mig uppúr mínum 18 ára draumaheimi. Ég á víst mann og barn auk lána og annara skuldbindinga sem þarf að standa í skilum við ef ekki á að fara illa. Stundum ranka ég við mér og hugsa bara; vá, hvernig komst ég frá því að vera kærulaus 18 menntaskólastelpa sem var djammandi allar helgar og þurfti ekki að hugsa um neitt annað en sjálfa mig og í það sem ég er núna. Núna ber maður heljarinnar ábyrgð og síðast en ekki síst þá er fólk í þessum heimi sem treystir á mig og að ég standi mig.
Ég sá einmitt strák fyrir utan Nesti, þar sem ég var að ná í hádegismat (dugleg?), sem sat inní súperflottri Hondu með skyggðum rúðum og auðvitað glansandi álfelgum. Það má líka benda á það að það var óhjákvæmilegt að taka eftir þessum blessaða bíl þar sem að hjartað í mér fór að slá aukaslög um leið og ég kom útúr búðinni vegna tónlistarinnar sem dundi úr bílnum yfir allt bílaplanið. Þið þekkið týpuna. Hann hafði semsagt lagt við hliðina á mér og þar sem ég kem labbandi að bílnum þá fæ ég svona fýlu-killer-lookið á mig. Ég hugsa auðvitað með mér bíddu hvað er þessi að meina? Finnst honum kannski ég ekki töff og vill láta mig vita af því??? Ok, er maður í alvörunni ekki flott á sunnudegi í joggingfötum, ómáluð með hárið útí loftið að safna mat fyrir fjölskylduna? Svo fékk ég það líka á tilfinninguna að honum fyndist bíllinn minn ekki heldur nógu flottur? Bíddu við? Er ´96 árgerð af Nissan Almera ekki það heitasta í dag? Ég held bara að þessi gaur hafi ekki alveg verið með tískuna á hreinu, greyið hann.
Þetta fékk mig nú aðeins til að líta í eigin barm. Ég er búin að komast að því að ég er bara mjög töff! Ég meina ég er í þægilegum fötum á sunnudegi af því að ég er í fríi . Ég er ómáluð og með hárið uppí loftið af því að ég á frábærann mann og ég er komin af kjötmarkaðnum. Ég á stórann og þægilegann bíl sem rúmar fjölskylduna mína og meira en það og síðast en ekki síst þá get ég fengið mér Subway síðasta dag mánaðarins sem er sennilega meira en þessi litil hortittur getur sagt. Vissulega er gaman að vera "ungur" og auðvitað á maður að njóta þess en maður verður að gera sér grein fyrir því að það er líf eftir menntaskóla.
Já, ég er fullorðin og bara mjög stolt af því en síðast en ekki síst... þá er ég mjög töff!

26 júlí 2006

Daníel

Jæja þar sem ég er nú eiginlega hætt að skrifa á síðuna hans Daníel (allavegana í bili) þá verð ég bara að segja aðeins frá honum hérna.
Litli strákurinn minn er ekki lengur svo lítill og ég er alltaf að komast betur og betur að því með hverjum deginum sem líður. Hann tók fyrstu alvöru skrefin sín fyrir nokkrum vikum og er nú labbandi hérna útum allt. Hann vill þó stundum gleyma því að hann kann að labba og þegar honum liggur mikið á eða er mjög æstur þá hendir hann sér á fjóra og þýtur af stað. Svo var hann núna í síðustu viku að mastera listina að standa upp án þess að styðja sig við neitt. Þetta trikk er líka notað núna óspart. Þessum aukna hreyfileika og sjálfstæði fylgir mikið.. mjög mikið af marblettum og eins og þið getið ímyndað ykkur... gráti. En þetta er víst allt partur af þessu, svo ótrúlegt hvað þessi litla mannvera er búin að þroskast mikið á þessu eina ári sem hann er búinn að vera til. Maður getur bara endalaust dáðst að litlu sigrunum hans og afrekum og þegar maður heldur að hann geti bara ekki orðið fallegri þá er fríðleikinn búinn að aukast um 100% þegar maður sér hann næst! Fallegur, fallegir, fallegastur :D

21 júlí 2006

Skriftstofusprell!

Við Einar vorum eitthvað að tala um skrifstofuhrekki í gær. Við minntumst á snilldaratriðið í The Office þar sem skrifstofuáhöld eins og heftarar og gatarar voru settir í Jello! Snilld! Svo er annar hrekkur þar sem fljót-spírandi fræum (t.d. alfa-alfa) er stráð í lyklaborðið og svo fer að koma upp gróður í lyklaborðinu!
Mér datt nú einn í hug þar sem við erum með svo mikið af borðviftum hjá mér í vinnunni. Það er að setja inná milli rimlanna smá blað og tæma síðan úr gataranum ofan á það. Þið getið svo ímyndað ykkur hvað gerist þegar kveikt er á viftunni.
Í morgun var ég svo í miklu hrekkjaskapi. Þið þekkið mig, manneskjan sem læsti Einar nakinn frammi á gagi! Ég mæti semsagt snemma í morgun og ákveð að gera eitthvað. Ég límdi smá límbandsbút fyrir gatið á leisernum á músunum hjá Ásdísi, Teddu og Arney sem er yfir okkur. Það fauk nú dáldið í Ásdísi þegar músin haggaðist ekki en hún var fljót að fatta að eitthvað var í gangi þar sem ég var næstum því orðin fjólublá í framan af því að halda hlátrinum í mér. En gott og saklaust grín. Við sjáum svo til þegar hinar koma úr fríi hvort þær kalli ekki til viðgerðarmenn.
Ég mæli eindregið með með svonalöguðu til að hressa uppá andrúmsloftið á vinnustaðnum og vekja smá kátínu til að bæta sér það upp að vera að vinna inni á svona blíðviðrisdögum. Ef þið eruð hugmyndasnauð þá getið þið fundið hugmyndir hérna og líka hérna.
Gangi ykkur vel og góða skemmtun!

19 júlí 2006

Sól og blíða á Austurvelli


Ohhhhh.... sól....sumar og blíða. Það er alveg geggjað að vinna niðrí bæ þegar það er svona gott veður. Við tókum okkur alveg extra langann matartíma í dag og settumst út á Austurvöll (nema hvað) og nutum veðurblíðunnar. Við Erna vorum meira að segja svo djarfar að skreppa í Ríkið og fá okkur sinnhvorn öllarann til að hafa með út. Ég luma á leyndarmáli í sambandi við Ríkið í Austurstræti. Við urðum nefnilega fyrir vonbrigðum þegar við sáum að það var enginn kælir í búðinn og létum áhyggjur okkar í ljós við starfsfólkið. Gaurinn var ekki lengi að redda því og leiddi okkur rétt á bakvið þar sem var bara svona risastór heimilisískápur stútfullur af alskyns bjór og sulli. Við tókum gleðina og ný í formi ískalds Millers og valhoppuðum glaðar í bragði niður á Austurvöll.
Eins og venjulega var alveg pakkað þarna og það er svo gamana að líta yfir hópinn sem þarna er samankominn því þar er allt frá jakkafata-bissness-köllum til andspyrnu-pönkara og allir eru þarna samankomnir til að njóta þessara örfáu sólargeilsa sem láta sjá sig. Stemmningin er engu lík og litli grasbalinn var pakkaður eins og gerist svo oft á svona sólskynsdögum.
Í kvöld er ég svo að spá í að plata hana Völu mína með mér í hjólatúr inn voginn til að fá eins mikið og ég mögulega get út úr þessum degi. Vonandi heldur þetta svona áfram, humm... ætli sumarið sé þá loksins komið?

17 júlí 2006

I´m to sexy for this blogg!

Það var ein sem sendi mér þetta hérna áðan og við grenjuðum....GRENJUÐUM ÚR HLÁTRI!



Þið getið svo nálgast hinn SúperSexy Emil hérna. Ég mæli eingdregið með að hafa hljóðið á (Hot stuff!) og kíkið á myndaseríuna til hliðar sem heitir Sportwagen... og já hann er berrassaður í strigaskóm þarna einhverstaðar. Svo er væri ekki verra að hafa mannasiðina í lagi og kvitta á fan-club síðuna hjá greyinu!

15 júlí 2006

Mittisminnkun

Jæja, mér datt í hug að ganga bara alla leið og láta vita hérna á veraldarvefnum að ég hef í hyggju að minnka mittismál mitt á næstu mánuðum. Mér fannst ég vera svo fín eftir að ég átti Daníel, alveg 3 kg léttari en áður en ég var ólétt en svo kom þetta smám saman aftur og þá sérstaklega eftir að ég hætti með hann á brjósti. Ætli ég hafi ekki bara verið búin að venjast góða lífinu að þurfa ekki að hugsa hvað ég léti ofan í mig :)
Ég held að það sé ágætis hvatning að láta alla vita þannig að ef mér dettur í hug að gefast upp þá munu vinir mínir vonandi hnippa í mig. Ég er ekki að fara útí neinar drastíkar breytingar eins og að fara í líkamsrækt eða svoleiðis, engar áhyggjur. Enginn atkins eða danskur fyrir mig heldur takk fyrir. Ég ætla bara að nota gamla góða að hætta að borða sætindi og gos og fara út að hjóla nokkrum sinnum í viku. Ég er búin að pumpa í hjólið og fór í einn hjólatúr þó svo að það hafi verið beljandi rignig. Ég myndi ekki hreyfa mig mikið ef ég ætti að fara að bíða eftir góðu veðri.
Ásdís vinkona í vinnunni er líka í átaki og við erum svona að passa uppá hvor aðra og styðja á vinnutíma. Vinnan er nefnilega bara hættulegasti staðurinn skal ég sko segja ykkur, allavegana minn. Það er nefnilega hefð ef einhver kemur að utan að koma með nammi og þegar fólk á ammæli þá eru kökur og svo til að toppa allt þá er morgunkaffi þar sem borið er fram bakkelsi annan hvern föstudag! Í gær höfðu yfirmennirnir auka kaffi og með því að því að það var föstudagur og ömurlegt veður. En ég er stolt að segja frá því að við Ásdís stóðumst freistinguna og erum þvílíkt stoltar.
Ég veit semt ekki alveg með hjólatúr í dag þar sem ég er bara hrædd um að fjúka niður og meiða mig. Göngutúr er kannski bara nær lagi. Jæja, wish me luck!

12 júlí 2006

Diet coke + mentos

Ok, það kannast allir við kókosbollu og kók en þetta er svoooooooooo miklu meira.
The NEW EXTREME WAY To Do the Diet Coke Mentos Reaction Explosion - Google Video
p.s. ekki prófa þetta heima.... humm... mig langar samt til þess :D

10 júlí 2006

Er ég frú?

Fórum í alveg yndislegt brúðkaup í gær hjá Eddu og Michael. Ég er sko algjör sökker þegar kemur að brúkaupum, táraðist og snökti í mínu eigin og ég skal játa það fúslega að ég hef meira að segja fellt tár yfir brúðkaupsþættinum JÁ.
En þar sem ég sat þarna í kirkjunni og var að hlusta á prestinn tala um hjónabandið þá fór ég að hugsa um hjónin sem ég sá þarna í kirkjunni. Ég fór að hugsa um heitin sem þetta fólk hafði gefið hvort öðru og að sumir þarna voru búin að vera saman mikinn meirihluta ævinnar. Þá allt í einu fattaði ég að ég sjálf er gift og búin að vera gift Einari í humm...11 mánuði. Þannig að ég er eins og þetta fólk sem ég var að hugsa um. Við Einar höfum oft verið að undrast þetta, að maður sé semsagt í hjónabandi og búin að lofa að vera alltaf saman og vera góð við hvort annað :) En þarna allt í einu fattaði ég þetta allt saman, bara allt saman svo kristaltært. En þýðir þetta þá að ég er frú? Er frú ekki eldri kona sem er gift? Hvað er ungfrú? Það hlýtur að vera ógift kona... en samt segir rökfræðin mér (ef frú er rétt) að ungfrú sé ung gift kona. Fröken hlýtur þá að vera ógift kona og svo er það piparjónka sem er gömul ógift kona. Er það þá allt? En þetta leiðir þá hugann að öðru. Ég veit ekki hvort margir vita það en öll erum við flokkuð í þjóðskránni eftir hjúskaparstöðu og eru þessir flokkar númeraðir frá 1-10. Fyrstu flokkarnir eru mjög einfaldir eins og einstaklingur (ógift) og svo er gift og í sambúð og svo er ekkja/ekill en svo fara málin að flækjast! Það er til flokkur fyrir þá sem eru skildir og svo sér flokkur fyrir þá sem eru skildir að borð og sæng en ekki lögskildir. Þá er til enn annar flokkur fyrir hjón sem búa í sitthvoru lagi en eru hvorki skilna að borð né sæng eða lögum t.d. fólk í námi. Eitt það skrítnast sem við Ásdís fundum var flokkurinn íslenskur ríkisborgari sem er giftur/í sambúð með erlendum ríkisborgara sem nýtur úrlendisréttar og verður því ekki skráður. Er þetta ekki komið út í dádil smáatriði? Fyrir utan það, hverjum kemur það við hvort maður er skilinn eða giftur? Mér finnst svona opinber flokkun á sambúðarháttum fólks algjör vitleysa og hreint og beint innrás frá hinu opinbera inná manns einkalíf. Auðvitað eru þessar upplýsingar ekki bara inná netinu og öllum aðgengilegar en þær eru samt engu að síður aðgengilegar og það er nóg. Jæja nú er ég komin svo langt, langt út fyrir efnið að það hálfa væri nóg og tími til kominn að fara að gera eitthvað af viti inná þessu heimili.
Frúin kveður í bili!

08 júlí 2006

ÞAÐ GERÐIST Í DAG!

DANÍEL TÓK FYRSTU SKREFIN SÍN Í KVÖLD! Við erum búin að vera að bíða eftir þessu lengi. Hann hefur verið að "detta" svona 2-4 skref en svo í dag þá var pabbi hans að lokka hann með skonsu og minn bara labbaði af stað ná í hana! Það er ekki eins og hann hafi ekki verið lokkaður áður með óteljandi hlutum, hann hefur bara greinilega ekki verið tilbúinn fyrr en núna í kvöld :) Við foreldrarnir trylltumst auðvitað af gleði en Daníel litli skildi ekkert lætin í okkur og kjammsaði bara rólega á bitanum sem hann fékk að launum. Hann lætur eins og þetta sé ekkert merkilegt og kippir sér ekkert upp við þetta þótt hann sé að gera eitthvað glænýtt, bara eins og hann hafi aldrei gert neitt annað!
Jæja ég verð víst að hætta núna, kallinn bíður eftir að klippingu frá mér og svo þarf ég líka eitthvað að smá snyrta mig fyrir brúðkauðið á morgunn.

05 júlí 2006

Dáldið sérstakt

Einu sinni fyrir langa löngu þá rakst ég á þessa síðu og gat bara ekki slitið mig frá henni fyrr en ég var búin að skoða allt. Þetta er um stelpu sem fer inná Chernobyl svæðið og er að taka myndir og segja frá þessu slysi í leiðinni. Þetta eru alveg ótrúlegar myndir og það er ekki laust við að maður fái óhugnahroll um kroppinn við að sjá heilann bæ auðann og yfirgefinn. Ég geri mér grein fyrir að þetta nær ekki inná áhugasvið allra en endilega þið sem eruð eins og ég (sem er búin að skoða þetta oft) seifið þetta í favorites því þetta er langur lestur. Góða skemmtun.

03 júlí 2006

Kallar í eldhúsum

Þetta hljómar eins og vatn og olía ekki satt? Afhverju?
Ég man það þegar ég var lítil þá var eldhúsið staður mömmu minnar. Hún "átti" eldhúsið enda meistarakokkur. Það voru hins vegar vissir réttir sem aðeins pabbi eldaði og mamma lét honum eftir völdin í eldhúsinu en aðeins þá. Það sem pabbi sá um að elda var íslensk kjötsúpa, fiskisúpa, plokkfiskur, kjöt í karrý og pönnsur. Ég var ekkert sérstaklega hrifin af neinum af þessum réttum nema pönnsunum. Pabbi steikti bestu pönnsur í heimi. Sama hvað mamma reyndi þá sló hún honum aldrei við. Það besta var líka þegar ég fékk að vera með í pönnukökugerðinni, ég man ennþá eftir því þegar ég fékk í fyrsta skipti að setjá á pönnuna :) Ég veit líka til þess að tengdapabbi minn kemur aðeins nálægt eldavél einu sinni á ári og það er á jóladag þegar hann sér um að steikja dýrindisnautasteikur. Þetta hlýtur að vera eitthvað sem tengist frummanninum: kjöt - eldur - borða.
Á mínu heimil hafa hlutirnir hins vegar þróast öðruvísi. Þegar við Einar byrjuðum að búa saman þá stóðum við nokkuð jöfnum fótum með tilliti til matargerðar. Ég kunni rétt að sjóða egg og baka pizzu og það eina sem Einar kunni var að búa til eggjabrauð. Jú, svo reyndar kunnum við bæði að rista brauð! Þá var ákveðið að við myndum skiptast á að elda og vaska upp. Þetta gekk ágætlega þar til ég fór að gera meiri kröfur til Einars, semsagt að elda eitthvað annað en pylsur, og fór smám saman að taka völdin af honum í eldhúsinu. Guð, hvað ég sé eftir þessu núna 6 árum seinna. Elskulegur eiginmaður minn getur ekki einu sinni eldað pakkasúpu án þess að brenna hana á botninum. Hvað hef ég gert? Jú, ég gerði hann algjörlega háðann mér með alla eldamennsku og ég get engum um kennt nema sjálfum mér.
Ég hef stundum reynt að kenna honum en ég er fljót að missa þolinmæðina yfir hamförunum hjá honum Einari og enda oftast á að ákveða að ég myndi sjálf gera þetta hraðar og betur. Hvað á maðru að gera? Ætti ég að láta mig hafa það að þola eldamenskuna hans í x-langann tíma þar til hann fer að ná tökum á þessu? Ætli maður geri ekki bara eins og 90% kvenna í heiminum sem biður kallana vinsamlegast um að halda sig fjarri eldhúsinu!

01 júlí 2006

PAKKI!

Mér er boðið í ammælisveislu í dag, ja mér og öllum landsmönnum þar sem að Landsbankinn á 120 ára afmæli. Í boði er 120 fm afmæliskaka, hoppukastali og eitthvað fleira. En það besta er að ÉG FÆ PAKKA! Semsagt við starfsfólkið í LÍ fáum "ammælisgjöf" á mánudaginn. Ég frétti af þessu aðeins á undan öðrum þar sem Ásdís við hliðina á mér er í stjórn FSLÍ. Ég hugsaði mér gott til glóðarinnar og datt í hug að senda eins og eitt meil á Bjögga og segja honum frá eyrnalokkunum sem ég sá í Accessioris sem hann gæti þá gefið mér í "ammælisgjöf". En nei,nei. Bjöggi er bara ekkert listaður í adrssbókinni minni! Það er bara Bankastjórn og ég held að meira að segja þeir fá sorteiraðann póst. Ég verð víst bara að sætta mig við það sem hann velur, enda smekkmaður :)
Í hádeginu í dag á ég von á Steinu og Völu ásamt fylgdarliði í hádegismat svo held ég að maður verði aðeins að kíkja á ústsölurnar. Maður á víst aldrei nóg af neinu en svo er maður að bölva lélegri hagstjórn á meðan að enginn í landinu getur hamið sig í einkaneyslunni. Hvað um það, mig vantar meira og það strax!
Lázann mín ætlar að kíkja til mín í kvöld og svo á morgun ætlar Jóhanna fluggella að kíkja til mín í morgunkaffi. Þess á milli þarf ég víst líka að fara í Neðstaleitið að ganga frá íbúðinni þannig að það er nóg að gera þessa helgina og svo á mánudaginn er ég "officially" komin í viku sumarfrí.
Ta,ta.