Fórum í alveg yndislegt brúðkaup í gær hjá Eddu og Michael. Ég er sko algjör sökker þegar kemur að brúkaupum, táraðist og snökti í mínu eigin og ég skal játa það fúslega að ég hef meira að segja fellt tár yfir brúðkaupsþættinum JÁ.
En þar sem ég sat þarna í kirkjunni og var að hlusta á prestinn tala um hjónabandið þá fór ég að hugsa um hjónin sem ég sá þarna í kirkjunni. Ég fór að hugsa um heitin sem þetta fólk hafði gefið hvort öðru og að sumir þarna voru búin að vera saman mikinn meirihluta ævinnar. Þá allt í einu fattaði ég að ég sjálf er gift og búin að vera gift Einari í humm...11 mánuði. Þannig að ég er eins og þetta fólk sem ég var að hugsa um. Við Einar höfum oft verið að undrast þetta, að maður sé semsagt í hjónabandi og búin að lofa að vera alltaf saman og vera góð við hvort annað :) En þarna allt í einu fattaði ég þetta allt saman, bara allt saman svo kristaltært. En þýðir þetta þá að ég er frú? Er frú ekki eldri kona sem er gift? Hvað er ungfrú? Það hlýtur að vera ógift kona... en samt segir rökfræðin mér (ef frú er rétt) að ungfrú sé ung gift kona. Fröken hlýtur þá að vera ógift kona og svo er það piparjónka sem er gömul ógift kona. Er það þá allt? En þetta leiðir þá hugann að öðru. Ég veit ekki hvort margir vita það en öll erum við flokkuð í þjóðskránni eftir hjúskaparstöðu og eru þessir flokkar númeraðir frá 1-10. Fyrstu flokkarnir eru mjög einfaldir eins og einstaklingur (ógift) og svo er gift og í sambúð og svo er ekkja/ekill en svo fara málin að flækjast! Það er til flokkur fyrir þá sem eru skildir og svo sér flokkur fyrir þá sem eru skildir að borð og sæng en ekki lögskildir. Þá er til enn annar flokkur fyrir hjón sem búa í sitthvoru lagi en eru hvorki skilna að borð né sæng eða lögum t.d. fólk í námi. Eitt það skrítnast sem við Ásdís fundum var flokkurinn íslenskur ríkisborgari sem er giftur/í sambúð með erlendum ríkisborgara sem nýtur úrlendisréttar og verður því ekki skráður. Er þetta ekki komið út í dádil smáatriði? Fyrir utan það, hverjum kemur það við hvort maður er skilinn eða giftur? Mér finnst svona opinber flokkun á sambúðarháttum fólks algjör vitleysa og hreint og beint innrás frá hinu opinbera inná manns einkalíf. Auðvitað eru þessar upplýsingar ekki bara inná netinu og öllum aðgengilegar en þær eru samt engu að síður aðgengilegar og það er nóg. Jæja nú er ég komin svo langt, langt út fyrir efnið að það hálfa væri nóg og tími til kominn að fara að gera eitthvað af viti inná þessu heimili.
Frúin kveður í bili!
10 júlí 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Æi ég veit ekki með hnýsnina inn í einkalíf manna.
Ég persónulega, hef reyndar alltaf litið á hjónaband sem lagatæknilega athöfn frekar en trúarlega og rómantíska, enda vil ég gifta mig hjá sýsla (Jónasi til mikillar mæðu), og þar af leiðandi er hjónabandið til þess fallið (að mínu mati að sjálfsögðu) að hið opinbera geti á auðveldan hátt séð hverjir eru giftir eða ekki, bara upp á erfðarétt, bætur og allt það kjaftæði...
Kveðja.
Vá, hvað þú kannt að dtrepa rómantíkina í kringum brúðkaup Tulla mín. Og btw hvort kom á undan, hjónaband eða erfðarréttur?
Mig langaði aldrei að gifta mig neitt sérstaklega og sé engan sérstakan tilgang með því, hins vegar finnst mér asnalegt hvernig allir kalla kærustur/a sína konuna sína og kallinn í dag (sem mér finnst eiga við um gifta einstaklinga).
En eftir að ég átti Halldóru Ísold og þarf að tala um Tóta sem kærastann minn eða barnsföður finnst mér það mjög óþægilegt og núna er ég pínulítið að bíða eftir "alvöru" bónorði á hnéð og allt saman, langar í kjólinn og risapartý með vinum mínum og fjölskyldu líka.
Þú ert ekki frú, bara gift 25 ára ung kona.
jamm og jæja. Sandra hvernig er það úti? Verður þú Ms. Pete...
Ég held að samningsgildi (erfðaréttur) hjónabands hafi tvímælalaust komið á undan rómantíkinni. Enda heitir þetta nottla ekki Brúð-kaup.. fyrir ekki neitt
Ég þarf bara enga hvíta athöfn til að elska og vera sátt við mitt og mína.
Ég trúi heldur ekki á Guð eða líf eftir dauðann, þannig að það væri nú bara hræsni í mér að gifta mig í kirkju.
Kveðja
Skrifa ummæli