28 desember 2008

Tvö börn og jólin


Núna er Lille orðin viku gömul og tíminn hefur verið ótrúlega fljótur að líða. Hún er svo vær og góð og er duglega að drekka og sofa. Það er varla að maður viti af henni þar sem hún sefur í vöggunni sinni annaðhvort inní svefnherbergi eða hérna inní stofunni og rétt lætur smá stunur frá sér þegar hún vill fá meira að drekka eða þá ropa betur. Hún er að drekka á ca. 2-3gja tíma fresti og sefur þar inná milli og á nóttunni vaknar hún einu sinni milli milli 1-3 og svo aftur undir morgun. Núna síðustu 3 daga hefur hún náð að vera aðeins vakandi á kvöldin og er þá að skoða umhverfið í kringum sig en þá er Daníel yfirleitt farinn að sofa þannig að hann hefur misst af þessu hingað til. Maður vonar bara að þetta verði svona áfram því þetta er heldur ólíkt því þegar Daníel kom í heiminn.
Talandi um Daníel þá er hann búinn að vera að dansa eftir ansi þunnri lína hérna undanfarna daga enda kannski ekki við öðru að búast. Hann hefur hins vegar verið hinn allra ljúfasti við systur sína og finnst hún voða spennandi og er alltaf til í að kyssa og knúsa. Við foreldrarnir höfum reynt að taka á ástandinu með stökustu ró en auðvitað eru til takmörk hvað maður leyfir honum að komast upp með en okkur sýnist að það versta sé yfirstaðið.... allavegana í bili og hefur Daníel sýnt og sannað að hann kann líka að vera góður strákur. Í morgun fékk hann að koma uppí rúm til okkar þar sem Lille lá fyrir. Svo er hann voðalega hugsi og ég spyr hvort eitthvað sé að? Hann svara: "Ég er sko bara að reyna að hugsa hvað ég er að gera". Ég var hissa á þessu djúpa svari og spyr áfram og hann segir "Ég vil ekki sparka óvart í litlu systur og meiða hana". Þarna kom hann mér algjörlega í opna skjöldu þannig að ég táraðist alveg en þetta er nú boðskapurinn sem við erum búin að vera að predika yfir honum síðan að Lille kom heim. Hann hefur greinilega verið að melta þetta og vonandi tileinkað sér að einhverju leiti.
Jólin í ár voru þau yndislegustu sem ég man eftir held ég bara. Við vorum bara 4 hérna heima og borðuðum góðan mat við rólega stemmningu á aðfangadag og fórum svo til Öglu og Ragga á jóladag í hangikjöt. Ég get með sanni sagt að ég hafi ekki saknað jólanna heima með öllu tilheyrandi "jólstressi" og tilætlunarsemi. Það eru algjör forréttindi að geta lagt allt til hliðar og sagt að það eru önnur mikilvægari atriði sem hafa forgang á tíma minn og orku. Jólin komu þrátt fyrir að ekki væri búið að skrúbba allt hátt og lágt, baka nokkrar smákökutegundir, stressa sig í jólaumferð og bílastæðaleit fyrir utan verslunarmiðstöðvar og kaupa jólagjafir handa öllum. Reyndar lágu aðrara ástæður að baki því síðasta en það kemur samt útá það sama. Já, jólin komu og voru hugguleg og kærleiksrík hér í faðmi fjölskyldunnar þó svo að við höfum sleppt þessum hefðbundna undirbúningi í ár.
Ég ætla að nýta þenna póst líka til að þakka fyrir öll fallegu jólakortin og gjafirnar sem við höfum fengið send hérna út. Ég hef átt það til að vera dáldið utan við mig í samtölum við vini og ættingja og gjörsamlega steingleymt stundum að þakka fyrir okkur en ég kenni algjörlega "brjóstagleymsku(heimsku)" um þetta allt.

22 desember 2008

Stúlka Einarsdóttir


Loksins kom barnið og það var gullfallega stelpa sem vó 3930 gr og var 53 cm. Hún er mjög ólík bróður sínum þar sem hún er dökkhærð og með dekkri yfirlitum en litli glókollurinn, bróðir hennar. Fæðingin gekk ótrúlega vel en ég ákvað að nýta mér þann lúxus að gista í 2 nætur á spítalanum áður en ég kæmi heim í jólin og orkumikinn stórabróður sem er í 2gja vikna jólafríi!
Læt fylgja með smá mynd og svo setjum við væntnlega inn smá myndaalbúm á næstu dögum.

19 desember 2008

Nýjar myndir

Það eru komnar nýjar myndir fyrir lok nóv og desember. Tengillinn er hérna til vinstri.

17 desember 2008

Lille á að koma í dag!

Svona hljómar áminningin mín í símanum ef ég skyldi hafa gleymt því að settur dagur er í dag ;) En ónei, ég er sko ekki búin að gleyma því enda dáldið erfitt þar sem flest allt er á hold hérna eftir þessum atburði. Lára og Erna eru dottnar út leik í veðbankanum og í dag er dagurinn hennar Unnar. Reyndar er dagurinn í dag "settur" samkvæmt sónar en mínir útreikningar benda enn til 24.des og þegar ég gekk með Daníel var ég færð fram og til baka oft en endaði á mínum "setta degi" og þá fæddist hann.
Annars fór ég á mömmuhitting í gær og það var barasta fín mæting og m.a. 3 nýjar mömmur. Ég fékk líka loksins að sjá og halda á litlu bollunni hennar Lýdíu sem var akkúrat mánaðargömul í gær. Ég lét hana að sjálfsögðu kúra aðeins á bumbunni með góðri von um að hún myndi kalla framtíðarleikfélaga sinn fram í dagsljósið. Við náðum að gleyma okkur örstutta stund og þá fór auðvitað hormónastarfsemin á fullt hjá mér með tilheyrandi losunarviðbrögðum og samdráttum en svo vorum við truflaðar þannig að ekki varð meira úr því. En þessi litla monsa er alveg gullfalleg og það er svo ótrúlega auðvelt að gleyma stað og stund þegar maður horfir á þessi litlu kraftaverk.
Jæja, það þýðir ekkert að hangsa þetta. Ætla að fara að kíkja á uppskriftir fyrir jólamatinn og senda Einar í eina af síðustu verslunarferðunum fyrir jól. Best að gleyma sér bara í jólastússi og þá kemur kannski einn lítill jólasveinn sem vill slást í hópinn.

Já og svo má ekki gleyma því að Einar kom í spurningu dagsins í MetroExpress í dag. Hérna er linkur á blaðið og þetta er á blaðsíðu 13.

14 desember 2008

Jæja.....

14.des mættur á svæðið og enn ekkert barn komið. Þá er það Lára næst með 15. des. Lára hefur nú stundum verið heppin með svona gisk þannig að hver veit og ég er líka búin að fá leyfi frá Öglu að eiga eftir daginn í dag því þá er hún komin í smá jólafrí í vinnunni. Ég held bara fast í vonina að krílið láti sjá sig fyrir jól því það væri nú ofboðslega kósý að geta eytt jólunum heima frekar en á fæðingardeildinni ;) sérstaklega uppá Daníel að gera. Ef að barnið kæmi nú akkúart á aðfangadag þá reikna ég fastlega með að ég myndi bara seinka jólunum að rússneskum sið fyrir litla gaurinn.

12 desember 2008

...og biðin heldur áfram

Nei, ekki varð það 11. des heldur þannig að næst er að sjá hvernig spádómsgáfan hennar Hildar reynist sem hefur veðjað á daginn í dag og blátt hár!
Annars var margt reynt í fyrradag (10.des) og byrjuðum við Einar daginn á því að versla í jólamatinn og jólagjöf handa Daníel. Svo var farið alla leið útá Amager í Íshavsfisk og þar vorum við svo heppin að hitta á að það var verið að bera inn Malt og Appelsín og keyptum við sitthvora kippuna á uppsprengdu verði. Þegar heim var komið var ölinu skellt beint niður í geymslu til að það væri ekki að freista okkar enda rándýr mjöður hér á ferð. Ég á ekki í neinum erfiðleikum með að réttlæta útgjöld uppá 230 DKK fyrir jólagosi enda má líka líta á það þannig að ekki verður rauðvín í boði um þessi jól. Ekki var ég komin með nóg eftir þessar tvær ferðir heldur skellti ég mér Lindu vinkonu hérna í húsinu alla leið útí pólsku búðina þar sem ég kynnti hana fyrir pólskum vörum og við byrgðum okkur upp af Prins Póló. Pólska búðin er hérna í Frederiksberg en það er samt ca. hálftíma labb hvora leið. Ekkert af þessu labbi hafði nein áhrif og koma ég bara hin hressasta heim og endurnærð.
Ég fór síðan í síðasta ljósmóðurtímann minn í gær þar sem það eru engir fleiri tímar lausir fyrir jól. Ég er búin að þyngjast um ca.800 gr milli vikna sem er mjög gott, blóðþrýstingur var 125/75 og hún mat barnið um 3300 gr. Síðast sagði hún að barnið væri fastskorðað og hélt ég að það þýddi að það ætti þá ekki að geta hreyft sig meir en hér er lítill breikari á ferð því það er alveg búið að vera á fleygiferð og er búið að skipta um hlið - enn og aftur. Það mætti nú alveg fara að nota þessa orku í eitthvað gagnlegt og jafnvel aðra átt :D

10 desember 2008

Ekki varð það 9.des

Jæja, ég virðist hafa misst af mínum eigin degi enda kannski fullbjartsýn. En svona erum við bogamenn bjarsýnisskeppnur og einnig dáldið fljótfærar. Mér finnst hálfgert svindl að maður fái að velja sér annan dag til að veðja á þannig að ég er bara dottin úr keppni núna. Næsti dagur er þá 11.des sem Einar veðjaði á en samt er sá dagur eiginlega hálf frátekinn því litli "stóri" frændi minn á þann afmælisdag. Sjáum til.
Annars meðan að krílið situr sem fastast erum við Einar að nýta tímann til að útrétta það sem þarf fyrir jólin og jólamaturinn er kominn í hús. Við ætlum að hafa bara einfaldann og góðann mat á aðfangadag sem verður hamborgarahryggur á íslenskan máta með sinnepsgljáa og góðu meðlæti. Svo erum við svo heppin að vera boðið til Öglu og Ragga á jóladag og á annan í jólum verðum við aftur heima og fyrir það tilefni keypti ég væna kalkúnabringu sem ég á bara eftir að finna góða fyllingu fyrir. Ég skellti í jólaísinn í gær sem er að venju hindberja Semifredo en ég á eftir að finna út hvað verður hinn daginn hjá okkur. Maður stelst alltaf ósjálfrátt að til að hugsa hvað maður myndi hafa ef maður væri heima á Íslandi en það fæst auðvitað ekki helmingurinn af því hérna. Þó er margt svipað eins og norskur graflax og það fæst líka einhverskonar laxasósa sem líkist samt okkar íslensku graflaxasósu ekki mikið. Ég er síðan á leiðinni útí pólsku búðina á eftir, sem er hérna í nágrenninu, að kaupa smá Prins póló og einnig ætlum við að fara alla leið útá Amager í íslensku fiskibúðina og athuga með íslenskar vörur þar eins og graflaxasósu og grænar baunir. Við heyrðum síðan af að það hafi verið til sölu Malt og appelsín á jólamarkaðinum í Jónshúsi en það seldist allt upp á örskotsstundu þó svo að því hafi verið skammtað á hvern viðskiptavin! Allt svona séríslenskt er auðvitað rándýrt en við erum ekki að fara að drekkja okkur í mat eins og er yfirleitt gert heima heldur er bara gaman að fá smá smakk til að minna mann á heimaslóðir.


08 desember 2008

Veðbankinn

Jæja, það hlaut að koma að því að vinir og vandamenn færu að veðja um fæðingu barnsins sem er bara gaman.

Þau veðmál sem eru komin:
Ég segi:
Þriðjudagurinn 9.des, stelpa, 14 merkur, dökkhærð

Erna segir:
16. des, stelpa, 15 merkur (var það ekki?)

Einar segir:
11.des, stelpa, 14 merkur, ljóshærð


Þeir sem vilja vera með endilega skráið ykkur í kommentum, gaman að eiga þetta. Ætla síðan að reyna að setja einhverskonar könnun hérna til hliðar með kynin en það eru komnar fjölmargar ástæður fyrir að ég er farin að hallast að því að þetta sé stelpa frekar en strákur þó þær séu auðvitað misgáfulegar.

Ástæður fyrir að þetta er stelpa:
  1. Næstum öll barnafötin (ca.97%) eru blá, grænblá eða bláleit á einn eða anna hátt - þá er þetta auðvitað stelpa!
  2. Næstum allir sem hafa séð bumbuna mína (hún er lítil, mjög framstæð og situr hátt) hafa giskað á að þetta sé strákur - þá er þetta auðvitað stelpa!
  3. Hjartslátturinn er hraður
  4. Daníel skipti skyndilega um skoðun fyrir ca. mánuði síðan og vill núna bara litla systur
  5. Það er stelpufaraldur í kringum mig: Hanna Freyja, Lea Dís og litla hennar Lýdíu
  6. Garnið sem ég keypti í teppið sem ég er að prjóna handa Lille er mun stelpulegra en ég gerði mér grein fyrir
Það verður bara hver að gera upp við sig hvernig hann túlkar ofangreind atriði og hvoru kyninu hann greiðir atkvæði. En auðvitað skiptir kynið ekki máli heldur að barnið fæðist heilbrigt og komi helst sem allra fyrst!

05 desember 2008

Fimmti í hlaupabólu

Þá held ég við séum loksins að fara að sjá fyrir endann á þessu hlaupabóluveseni. Get ekki beðið eftir að senda barnið út, út út! Er eiginlega alveg sama hvort hann fer í leikskólann eða í skóginn bara út úr íbúðinni og út með Einar líka! Út með alla nema sjálfa mig til að ég geti fengið að vera ein með sjálfri mér. Mig langar bara að fá að vera aðeins í friði og hlusta á þögnina eða jólatónlist og ekki þurfa að standa upp á nokkura mín fresti til að gera þetta eða hitt sem umhverfið kallar á. Annars hef ég voða lítinn rétt til að kvarta því Einar er ekkert nema yndislegur og er búinn að reyna að vera heima eins mikið og hann getur til að létta undir hjá mér með veikt barnið og Daníel er líka búinn að vera algjör engill í þessum veikindum þó að honum líði nú sjálfum ekki vel. Mig vantar bara smá pláss til að anda og sleppa við áreiti. Ég get svo svarið að ég er farin að standa sjálfa mig að því að hanga útí búð lengur en ég þarf og bara dóla mér við að skoða vöruúrvalið! En því miður getur maður ekki hangið útí búð endalaust og ég hef takmarkað þol fyrir göngutúra og svoleiðis enda veðrið heldur ekki spennandi. Það sem verra er er að ég geri mér fullkomna grein fyrir hvað ég hljóma fáránlega en mig langar bara að njóta þessara síðustu daga áður en barnið kemur og maður er gjörsamlega hlekkjaður heimavið fyrstu vikurnar. Ekki að það sé ekki yndislegt líka en.... jæja þær/þið sem eigið börn vitið hvað ég meina.

Annars fór ég til ljósunnar í gær og barnið er búið að fastskorða sig en hjartslátturinn hjá því var heldur hraður þannig að hún lét mig liggja í nokkrar mínútur og prófaði svo aftur. Hann var aftur heldur hraður en eftir smá bumbustrokur og rólegt tal þá róaðist barnið. Því hefur örugglega bara ekkert líkað þetta pot og káf enda var Jóhanna að kenna mér að finna hvar hitt og þetta er á barninu og hvar Einar getur lagt eyrað við til að heyra hjartsláttinn. Blóðþrýstingurinn hjá mér var líka fínn en ég er hins vegar lítið að þyngjast (nammi og gos er rándýrt hérna) en hún sagði að það væri eðlilegt að léttast á síðustu metrunum. Að lokum mat Jóhanna að Lille væri í kringum 3000 gr núna þannig að ef það er rétt þá eru ekki miklar líkur á að það nái stóra bróður í fæðingarþyngd. Allt finnst mér þetta benda ótvírætt til að hér sé stelpa á ferðinni.... á maður að þora að vona?

02 desember 2008

Góðar fréttir og hlaupabóla

Mikið ótrúlega er ég stolt af sjálfri mér að hafa ekki gefist upp í þessu endalausa mótlæti í kommúnunni. Loksins hefur þetta borgað sig ég mér hefur verið "dæmt" fæðingarorlof frá kommúnunni sem eru reyndar smápeningar og duga ekki einu sinni fyrir mánaðarleigu en betra en ekkert. Mér finnst þetta ótrúlegur sigur af minni hálfu og í allri þessari baráttu hefur ekki verið mælt EITT ORÐ á ensku, takk fyrir. Fleiri góðar fréttir eru að Einar sótti um hlutastarf hjá fyrirtæki sem var með kynningu í skólanum um daginn og fékk hana. Það sem meira er þá gaf fyrirtækið undan svívirðilegum launakröfum Einars (munaði 6%) og hann er með réttu mjög stoltur af því. Enn meiri góðar fréttir er að Einar fór í viðtal hjá einum af kennurunum sínum varðandi mastersverkefnið og fékk í framhaldinu góða hugmynd af einu slíku. Hugmyndin gengur semsagt útá að byggja eitthvað tölvumál ofaná annað mál sem á að gera eitthvað við eitthvað annað kerfi - jebb, ég er löngu búin að missa þráðinn í náminu hans. Allavegna, prófessornum leist mjög vel á þessa hugmynd og samþykkti að vera leiðbeinandi hans. Þeir eru þegar búnir að útfæra hugmyndina og senda inn tillöguna til einhverrar nefndar sem þarf að samþykkja hana en það er ekki von á öðru en hún verði samþykkt án vandræða.
Svo eru það ekki svo góðu fréttirnar. Daníel vaknaði í gærmorgun með 3 litlar bólur, sem ég tók auðvitað strax eftir, og ég vissi strax að þetta var hlaupabóla. Ég hef sem betur fer fengið hlaupabólu því annars gæti þetta verið mjög hættulegt fyrir mig og Lille. En þó þetta sé hættulaust þá er ekki þar með sagt að ég hafi gaman af því að hanga heima KASÓLÉTT með veikann strák. Enn sem komið er eru þetta ekki margar bólur og allar frekar litlar og hitinn hefur ekki farið mikið upp fyrir 39 stig en svo veit maður aldrei hvernig þetta þróast. Ég vona bara að Daníel sleppi betur en Jökull sem var alþakinn bólum og Ísold sem fékk himinn háann hita í marga, marga daga.
Við erum annars bara búin að hafa það huggulegt í dag og vera að föndra smá jólaföndur og skreyta smá þó aðalega herbergið hans Daníels sem er nú með músastiga hangandi yfir allt loft. Hann er að sjálfsögðu himinlifandi yfir þessum skreytingum þó það sé nú álitamál hversu jólalegt þetta allt er. En Daníel er ánægður og það er það sem skiptir máli.

23 nóvember 2008

Nóvembermyndir

Nýjar myndir komnar fyrir nóvember


Og hérna er ein bumbumynd síðan í dag - tæpar 37 vikur!

20 nóvember 2008

Jólabakstur og huggulegheit

Ég er þá loksins byrjuð í fæðingarorlofi ef svo mætti kalla því ég á enn eftir að fá það á hreint hvort ég fái yfir höfuð fæðingarorlof frá þeim eða ekki. Danir elska skriffinsku og ef einhver heldur því fram að það sé erfitt að eiga við Tryggingastofnun þá er það eins og að drekka vatn miðað við völundarhúsið sem er hérna í Frederiksberg ráðhúsinu. Til að byrja með þá er ég að flækjast milli 3gja hæða hérna sem hver hefur sinn opnunartíma! Þriðja hæðin finnst mér síst því þar er bara einn stór salur og ein kona í glerbúri þar sem maður þarf að skýra öll sín mál með a.m.k. 5-10 manns hangangi á bakvið mann, hlustandi hverju sinni. Ég reyni að forðast þessa hæð.
Annars er ég bara að reyna að vera róleg yfir þessum málum enda stoðar það ekkert að vera að stressa sig heldur á maður auðvitað að nýta tímann í að hvíla sig og slappa vel af fyrir komandi átök. Ég er byrjuð að stunda aftur meðgönugjógað þegar ég er ein heima og ekki veitir af því maður hefur heldur betur stirðnað á þessum 4 vikum sem ég er búin að vera að vinna. Í kvöld vorum við Einar síðan að baka piparkökur og næsta verkefni verður sennilega einhver brauðbakstur enda er almennilegt brauð úr bakaríi fráranlega dýrt hérna auk þess sem þeir virðast ekki vera búnir að uppgötva spelt.
Meðgangan gengur bara ágætlega þó ég sé hægt og rólega byrjuð að safna bjúg utan á mig og giftingarhringurinn fór uppá hálskeðjuna fyrir meira en viku síðan. Ég er líka hætt að ganga í venjulegum skóm og finnst mér langbest að nota sumarskóna mína sem eru vel opnir og þægilegir. Jæja CSI er að byrja, best að fara að hugga sig með kallinum.

14 nóvember 2008

Ég er tilbúin!

Ég er alltíeinu komin með nett ógeð á þessari meðgöngu. Mig langar í gamla kroppinn minn aftur og vera nett og ekki þurfa að biðja fólk alltaf um að færa sig þegar ég er að reynan að smokra mér bakvið það. Ég er þreytt á spurningum eins og hvernig mér gangi og á bröndurunum hjá köllunum í vinnunni um að ég hafi gleypt bolta eða þurfi aðeins að minnka átið. Ég er þreytt á að brosa alltaf til baka þegar konur brosa til mín því þeim finnst ég svo mikil "dúlla" t.d. þegar ég er að klöngrast uppí strætó eða samúðarsvip þegar ég er að beygja mig eftir einhverju á klaufskann hátt. Ég er þreytt á að geta ekki sinnt Daníel almennilega og vera alltaf að biðja Einar um eitthvað og hlaða á hann auka heimilisverkum. Mér finnst 40 vikur alltof langur tími til að bíða eftir barni og ég legg til að þessi tími verði styttur niður í 30 vikur sem væri svona akkúrat passlegt. Ég er semsagt búin að fá nóg af þessu vaggi og þreytu og endalausu bið og nú má þetta litla kríli bara fara að láta sjá sig eftir kannski ca. viku eða svo því ég er tilbúin!

10 nóvember 2008

Skype tímar

Við erum að spara og ákváðum því að setja fasta skype tíma þar sem hægt verður að ná á okkur. Annar tíminn er meðan Daníel er vakandi og hress og hinn svona hugsaður þegar maður vill fá að spjalla við vini og fjölskyldu í friði fyrir truflunum.

  • Laugardagar 11:00-12:00 ( ísl. 10:00-11:00 )
  • Miðvikudagar 21:00-22:00 (ísl. 20:00-21:00)
Svo má auðvitað bara alltaf hringja eða senda sms og þá getum við tengst.
Notendanafnið hjá Einari sem við munum nota á þessum tíma er einaregilsson . Mitt er karenolgaarsalsdottir en ég er mun sjaldnar inná því.

kv,
prjónakonan

07 nóvember 2008

Lofurðu skulu standa - síðasti hluti!

Þá fer loksins að sjá fyrir endann á þessu en ég er líka að skrifa þetta bara niður því það er oft svo gaman að rifja gamla pósta upp.
Ég er núna búin að vera í 2 vikur hjá Aktiveringshúsinu og líkar það bara alveg rosalega vel. Man ekki hvort ég var búin að segja það en ég er á prjónaverkstæðinu og er að prjóna alveg eins og vindurinn. Þau verkefni sem ég hef lokið við nú þegar eru: Þævðir inniskór á Daníel, risastórt "poncho" úr perlestrik og einn strokkur með munstri! Maður er voðalega stoltur af þessu og ekki síst af því að þetta fer allt á jólamarkaðinn sem verður settur á stokk í húsinu 4.des n.k.. Ég hefði aldrei trúað ég gæti prjónað nokkuð annað en trefla en þetta er fljótt að koma og hjálpar auðvitað svakalega að hafa leiðbeinanda alltaf við höndina ;) Verst að maður á bara 2 vikur eftir þarna áður en ég fer á barsel því það er voðalega gaman að kynnast nýju fólki þarna og ég læri enn meira í dönsku. Fyrir utan þetta þá erum ég og Lýdía vinkona mín hérna búnar að stofna íslenskan foreldrahóp (lesist mömmugrúbba) og fengum við aðstöðu hjá Íslendingafélaginu í Kaupmannahöfn í Jónshúsi. Við erum með vikulega hittinga og auk þess erum við búnar að koma upp spjallborði á netinu sem við erum u.þ.b. að fara að hleypa í loftið. Ég er mjög ánægð með þetta litla verkefni og ég verð svo sannarlega ekki einmanna í barneignarfríinu þar þessum hóp til heyra einnig verðandi mæður hérna á svæðinu. Núna er bara spurning um að vera duglegur að vikja hópmeðlimina og halda þessu gangandi.
Við erum búin að ákveða að Einar fái sér hlutavinnu núna og eitthvað fram á næsta ár. Eins og staðan er í dag þá tekur það sig ekki fyrir Einar að nýta sér þennan 6 mánaða fæðingarstyrk námsmanna frá Íslandi þar sem hann myndi þéna meira með hlutastarfi hérna í DK en að flytja fæðingarstyrkinn yfir í DKK. Hann er semsagt að fara í viðtal hjá fyrirtæki núna á mánudaginn og mun þá væntanlega starfa sem verktaki. Hann verður þá í þessu starfi eða öðru sem hann fær næstu 5-6 mánuðina og tekur svo fæðingarorlofið með seinnihluta mastersritgerðarinnar sem hann áætlar að skila næsta sumar. Vonandi gengur þetta allt eftir en áætlanir standast nú ekki alltaf eins og maður er búinn að sjá og læra.
Húsið sem við búum í heitir Borups Have og er ansi merkilegt fyrir þær sakir að hérna búa ansi margir Íslendingar. Við erum búin að kynnast öllum held ég og er m.a. búið að halda eitt kalla og eitt konukvöld síðan við fluttum inn þannig að félagslífið er í góðu lagi. Þetta er mikill munur fyrir okkur frá því sem var á Amager og nú erum við líka mun nær öðru vinafólki okkar en við vorum. Ég er helst í sambandi við Hildi sem ég kynntist fljótlega eftir að ég flutti hingað en mig grunaði ekki þá að við yrðum nokkurntíma nágrannar. Svo er það Hildigunnur sem á strák sem heitir Grímur og er með Daníel á leikskólanum. Hildigunnur er mjög félagslynd og næs manneskja og þar að auki er hún í fæðingarorlofi þannig við erum stundum samferða með strákana heim af leikskólanum fyrir utan að hittast hérna útí garði með þá. Maður getur svo sannarlega ekki kvartað og við höfum verið meðtekinn inní þennan hóp hérna eins og við höfum aldrei átt heima annarstaðar.

Við erum að vinna í finna fasta skype tíma sem ég set inn hérna ásamt notendanöfnunum okkar fljótlega.
Annars væri gaman að heyra smá fréttir að heiman frá vinum og vandamönnum og þá megið þið gjarnan senda mér póst á kareno@ru.is og myndir eru svo sannarlega vel þegnar!

03 nóvember 2008

Loforð skulu standa - 2.hluti

Úff, var bara alveg búin á því eftir póst gærdagsins að ég sofnaði næstum undir eins uppí sófa eins og ég er farin að gera vel flest kvöld núorðið :)
Ég ætla að byrja á því að segja frá því leiðinlega og enda á því skemmtilega til að ég geti farið glöð í bragði að lúlla á eftir. Kreppan - þarf maður að segja meira? Jú, því hún er töluvert snúnari ef maður býr erlendis en lifibrauð manns er heima á Frónni að tætast upp. Þetta er nú búið að vera að smá vinda uppá sig hjá okkur Einari hérna úti því eins og kannski margir vita þá erum við að lifa á sparipeningunum okkar hérna eða réttara sagt arfinum sem ég fékk eftir mömmu mína og við ákváðum að nýta í þetta ævintýri hérna. Þegar við vorum að gera okkar fjárhagsáætlanir fyrir danmerkurferðina þá gerðum við ráð fyrir genginu ca.12 og þegar við Daníel fluttum hingað út man ég að ég var að bölva í hljóði því þá hafði DKK tekið snöggann kipp uppávið og var ég þá að skipta á genginu ca.12,6. Síðan þá hefur gengið aðeins farið uppávið og um páskana var gengið komið um og yfir 16. Þetta þýðir auðvitað að kaupmáttur okkar skerðist um 30% og leigan okkar sem var 8000 DKK á mánuði og kostaði okkur við undirskrift leigusamnings rétt tæp 100þ var þá komin uppí 128þ á 3-4 mánuðum.
Staðan hefur auðvitað ekki batnað eftir að allt fór á hvolf og töldum við því best að athuga hvort ég gæti mögulega fengið einhverskonar fjárhagsaðstoð frá kommúnunni. Planið var auðvitað alltaf að Daníel myndi innan 2-3 mánaða fara í leikskóla hérna í DK og ég útá vinnumarkaðinn og myndi þá vinna mér inn réttindi til barneignarfrís. En því miður þá tók það tæpt hálft ár að koma barninu inná dagvistun og ég á þeim tíma komin það langt í meðgöngunni að enginn vildi ráða mig til starfa þó svo að ég verð að viðurkenna að það hafi ekki mikið reynt á það.
Allavegana þegar ég tala við kommúnuna þá kemur í ljós að ég á möguleika á þessari aðstoð þó við höfum enn ekki fengið úrskurð um það, leiðinlegast fannst mér þó viðtalið við ráðgjafann þarna sem sýndi aðstæðum okkar engann skilning enda sennilega enn einn bitur Dani sem finnst þetta bara gott á okkur Íslendinga.
Ég varð að samþykkja það að vera skráð vinnufær fram að 36.viku meðgöngu og þá getur maður löglega afsakað sig frá vinnumarkaði sökum fæðingarorlofs. Ég samþykkti þetta auðvitað og er nú skyldug til að mæta í svona "activeringhús" 26 tíma á viku til þess að maður sé nú ekki bara að slæpast á bótum hérna. Ég greip tækifærið fegin hendi og talaði starfsráðgjafinn minn meðal annars um að þarna gæti ég fengið gott tækifæri til að læra málið betur. Ég mæti semsagt 9-14 alla daga og þarna er fólk látið í hin ýmsu verkefni t.d. er sauma og föndurverkstæði þarna, smíðaversktæði, mötuneyti og auk þess er verið að gera upp húsið þannig að flestir kallarnir eru í því að byggja og mála. Ég var í fyrstu send í grænmetisskurð í eldhúsinu og var í því að útbúa svona grænmetispoka sem maður getur verslað í mötuneytinu. Auk þess var ég líka látin í tilfallandi verkefni eins og að vera tilraunadýr fyrir iðnskólann í nágrenninu þar sem ég fór í fulla andlitsbaðsmeðferð og í annað skipti í plokkun og litun. Þær hafa auðvitað verið í dálitlum vandræðum með að búa til verkefni handa mér þar sem ég get ekki verið að reyna mikið líkamlega á mig og að lokum var ég send á prjónaverkstæðið þar sem ég var búin að kynnast tveim pólskum konum.
Nú sit ég semsagt á prjónaverkstæðinu og er að læra að prjóna á fullu og gengur satta að segja bara mjög vel. Ég er meira að segja búin að prjóna inniskó handa Daníel sem er að fara að þæfa á morgun og ég borga bara fyrir efnið sem fer í skóna. Í dag byrjaði ég síðan á nýju sjali sem er gert úr tvöföldu garni og svokölluðu perluprjóni og þetta gengur bara rosalega vel og leiðbeinandinn minn er mjög ánægð með mig þarna. All sem er síðan framleitt verður selt á jólamarkaði þann 4.des og það er nú ekki leiðinleg tilhugsun að vera að framleiða eitthvað sem einhver mun nota og hvað þá borga peninga fyrir það! Eins og heyra má þá er ég alveg hæðst ánægð með þetta nýja verkefni mitt og finnst meira að segja leiðinlegt til þess að hugsa að ég eigi bara rétt rúmar 2 vikur eftir á þessum stað en Nina sem er yfir prjónaverkstæðinu sagði að ég mætti kíkja til þeirra hvenær sem er ef mig vantaði aðstoð með prjónaverkefni eftir að ég væri hætt og ég held ég muni alveg nýta mér það.
Auk þess er nú ekki leiðinlegt að láta dekra gjörsamlega við sig og allir eru svo huggulegir og næs við mann því ég er nú eftir allt saman yngsta manneskjan á svæðinu og auk þess kasólétt. Eldri konurnar eru alltaf að passa að ég taki mér pásu og svo er einn Kínverji sem var með mér í grænmetisskurðinum sem er alltaf að passa uppá að ég sé búin að borða og í dag kom hann sérstaklega uppá prjónaversktæði með skornar gulrætur og ávexti handa mér. Kokkkurinn í mötuneytinu er búin að spyrja hvort ég hafi dálæti af einhverjum sérstökum mat og á fimmtudögum er alltaf kaka og þá er hann alltaf búinn að bæta einhverju auka á diskinn minn, annaðhvort aukaköku eða vínberjum. Rosalega huggulegt að láta hugsa svona vel um sig sérstaklega þegar fjölskylda manns og nánustu vinir eru dáldið langt í burtu.
Meðgangan gengur mjög vel. Á tímabilil fann ég dáldið til í grindinni og þá sérstaklega í liðböndunum hægra megin og átti bara í stökustu erfiðleikum með að labba smáspöl sem maður kemst ekki svo léttilega hjá hérna úti. Þetta er sem betur fer allt búið að batna og nú líður mér mjög vel og er full af orku eða þ.e.a.s. til klukkan ca.9 á kvöldin og þá allt í einu slokkarn næstum á mér. Enn sem komið er hef ég næstum alveg sloppið við bjúg og þakka ég það fyrst og fremst hjólatúrunum með Daníel í leikskólann daglega fram og til baka. Í síðustu mæðraskoðun sagði Jóhanna ljósmóðir mér að barnið væri í stærra lagi og mætti ég búast við því að Lille yrði í svipaðri fæðingarþyngd og stóri bróðir. Hún áætlaði að barnið væri ca.2200-2300 gr (32vikur) meðan að almenn stærð (í DK) er ca.1700 gr á þessum tíma. Ég get ekki annað en verið mjög sátt við það enda fannst mér Daníel vera fullkominn þegar hann leit dagsins ljós ;-)
Það sem er aðalega að plaga mig þessa dagana er brjóstsviði og þegar Daníel kemur uppí rúm til okkar þannig að ég fæ engann svefnfrið og fer að lokum á fætur helaum í grindinni og bakinu. Við erum hins vegar að vinna í þessu með Daníel og Einar er þá í því hlutverki að fara með hann til baka. Í nótt fór Einar t.d. með Daníel 4 sinnum til baka og ég vaknaði úthvíld og stálslegin í morgun. Annars er litla dýrið bara að hnoðast og hnoðast í mallanum enda ætti það að fara að skorða sig vonandi bráðlega. Það er þegar komið í höfuðstöðu og kenndi ljósan mér hvernig og hvar Einar getur hlustað eftir hjartslættinum hjá barninu sem er algjört æði. Ég vissi ekki einu sinni að þetta væri hægt en það tekst heldur ekki alltaf. Daníel er líka mjög spenntur og er alveg yfir sig hrifinn af þeim ungabörnum sem eru í kringum okkkur hérna og vill helst fá að halda á þeim.

Held að þetta sé bara orðinn ágætur 2.hluti og nú giska ég á að einn svona póstur í viðbót ætti að duga til að vera búin að fylla uppí allar eyður. Næst ætla ég að segja aðeins betur frá nýjum vinum og kunningjum hérna og íslenskum foreldrahóp sem ég og ein önnur höfum komið á fót hérna úti og svo kannski líka smá hvað er framundan hjá Einari hérna á næstunni.

Hilsen,

02 nóvember 2008

Loforð skulu standa - 1.hluti

Jæja þá er komið að því að opna fyrir munnræpuna sem hefur ekki fengið að heyrast í hátt í mánuð. Hvað höfum við verið að gera þennan síðastliðinn mánuð? Humm... það er svo margt að ég á í mestu vandræðum með að skipuleggja hugsanirnar. Best að byrja bara á byrjuninni og svo vonandi kemur þetta nokkurnveginn allt án þess að vera í belg og biðu og síðast en ekki síst óskiljanlegt.
Við fluttum semsagt í Borups Allé 126A, 3th þann 30.sept síðast liðinn og leigðum sendibíl í sólarhring við flutningana og fengum góða hjálp frá Öglu og Ragga. Íbúðin er mjög hugguleg og það fer svo miklu betur um okkur hérna en í Birketinget fyrir utan það hvað hverfið og kommúnan hérna eru skemmtileg/t. Þetta er semsagt 4.hæða (5 ísl.) blokk sem er eins og U í laginu og í miðjunni er stór og fallegur, lokaður garður með leikvelli og mörgum bekkjum. Hérna í húsinu búa margir Íslendingar með börn og við teljum það vægast sagt góðann kost. Við erum búin að kynnast flestum ágætlega og það er voðalega huggulegt að geta hitt oftast einhvern hérna útí garði sem maður getur spjallað við án vandræða. Daníel er líka búin að eignast nýja leikfélaga; Skarphéðinn, Grímur og Móna. Grímur og Skarphéðinn eru báðir 3gja ára en Móna er 2gja. Grímur var líka einmitt að byrja á leikskólanum hans Daníels (Melita) og við foreldrarnir fengum það í gegn að þeir fengju að vera saman á deild. Það er gott að vita af því að Daníel á a.m.k. einn félga á leikskólanum sem hann getur tjáð sig vandræðalaust við.
Þá er það næsta mál og það er nýji leikskólinn hans Daníels. Um leið og við fluttum til Frederiksberg fór ég í það mál að sækja um nýjann leikskóla handa Daníel og áttum við auðvitað von á margra mánaða bið eins og í fyrra skiptið. Í Frederiksberg ráðhúsinu tók á móti mér yndisleg kona sem aðstoðaði mig eftir besta megni enda útskýrði ég fyrir henni að það væri ansi þreytandi að ferðast með barnið í tæpar 45 mín hvora leið svona kasólétt. Þar að auki fer ég síðan beint heim aftur og sækii síðan aftur og svo heim þannig að ég var u.þ.b. 3 tíma á ferðinni daglega útaf þessu. Við ákváðum að finna leikskólann með stysta biðlistann í Frederiksberg því hvar svo sem hann væri að finna þá væri það alltaf styttra en að fara alla leið út á Amager. Svo 2 dögum seinna fæ ég tilboð í póstinum um leikskólapláss í 10 mín hjólafjærlægð frá okkur!!!! Ég var algjörlega steinhissa en ákvað að spyrjast aðeins fyrir um þennan leikskóla ef einhver þekkti til hans hérna í húsinu. Fyrsta manneskjan sem ég hitti síðan útí garði (Helga mamma Mónu) er einmitt búin að kynna sér þennan leikskóla ágætlega því hún var að spá í honum sjálf og svo er Angela (mamma Oliver) sem býr hérna líka, í foreldraráðinu í leikskólanum. Allavegana þá heyrði ég svo góða hluti um Melita að ég hringdi strax í leikskólastjórann og þáði plássið. Ég var þá að sjálfsögðu ekki búin að segja upp plássinu á Amager og maður á að gera það 2gja mánaða fyrirvara en þetta reddaðist með því að við erum látin greiða mismun á leikskólagjaldi milli kommúna fyrir hálfann mánuð ca.1500 DKK sem er auðvitað stór biti en getum svo sem unað sátt við það þar sem við erum með frípláss og greiðum ekki annan kostnað við leikskólagöngu Daníels. Daníel byrjaði semsagt 21.okt á Melita og þetta er að hluta til skógarleikskóli sem þýðir að börnin eru 2 vikur í leikskólanum í bænum og 2 vikur útí skógi þar sem öll helsta aðstaða er fyrir hendi. Daníel náði að vera eina viku í bænum í aðlögun áður en hann byrjaði í skóginum og aðlögunin gekk furðu vel og á 3ja degi var hann alveg orðinn sáttur. Hann er núna búinn að vera eina viku útí skógi og líkar það mjög vel. Við foreldrarnir vorum ekki alveg viss með þetta skógardæmi en Daníel kemur heim alveg himinlifandi og búinn að vera útí góða loftinu allann daginn þannig að maður getur ekki verið annað en ánægður. Grímur byrjaði síðan núna á miðvikudaginn og þeir félagar leiðast hönd í hönd úr fataklefanum og inní rútu daglega.

Ætla að láta þetta duga í bili og halda áfram á morgun með næsta kafla þar sem ég ætla m.a. segja frá nýjum verkefnum hjá mér, kreppunni og meðgöngunni.

Nýjar myndir

Bloggið er ekki komið en það er allt í undirbúningi og verður vonandi póstað í kvöld. Í millitíðinni er hægt að kíkja á nýjar myndir hérna http://einaregilsson.com/birketinget/Album10/

30 október 2008

Komin aftur!

Jejj, loksins loksins kom einhver tæknimaður frá TDC og lagaði netið hjá okkur! Og vá vá vá ég get ekki hugsað mér verri tíma til að vera netlaus og sambandslaus við umheiminni en akkúrat síðastliðinn mánuð!
Hjá okkur er allt gott að frétta eða þ.e.a.s. við erum hraust og okkur líður öllum vel en fjármálin eru auðvitað ekkert betri en hjá öðrum íslendingum og jafnvel verri ef eitthvað er en það er verið að vinna í þessu öllu og maður er bara bjartsýnn. Hef því miður ekki tíma núna til að skrifa allt sem á daga okkar hefur drifið síðasta mánuðinn en það kemur vonandi á morgun eða í það minnsta mjög fljótlega súperbloggfærsla sem margir munu sennilega ekki einu sinni að nenna að lesa til enda.....
Jæja læt þetta stutta innlit duga í bili því ég þarf að fara fá mér kríu, er nebbnilega að fara út að hitta nokkrar stelpur í kvöld.

Hilsen,

30 september 2008

Síðasti póstur í bili

Þá er flutningsdagurinn runninn upp og Einar er farinn að sækja flutningabílinn og maður vonar bara að hann skil sér heill heim og keyri ekki niður einhverja hólamenn. Svo sem ekki mikið að segja en að við erum búin að vera súperdugleg í gær og það er allt orðið hreint nema nokkur smáatrið eins og vaskur og klósett og svona sem maður þrífur ekki fyrr en á síðasta. Ég reyndi aðeins of mikið á mig og fékk að gjalda fyrir það um kvöldið en er fín núna. Ætla að passa mig mikið núna enda fáum við meiri hjálp en við þurfum við flutningana þannig að það er mjög gaman.

Skellti einni mynd af mér hérna inn þar sem ég er nú ekki búin að vera sérstaklega dugleg að taka bumbumyndir á þessari meðgöngu. Þetta er í síðustu viku þannig að þarna er maður kominn rúmar 28.vikur.

Við settum síðan "nýjar" myndir inná http://einaregilsson.com/birketinget . Þetta eru reyndar allt símamyndir þar sem við týndum myndavélinni okkar í Íslandsferðinni og getum ekki alveg keypt nýja eins og ástandið er núna en þetta dugar alveg. Það er síðan eitthvað þangað til heyrist frá okkur næst því við eigum eftir að panta nýja nettengingu og svona í Borups Allé.

28 september 2008

Flutningar framundan

Þá er það endanlegt að við fáum ekki íbúðina afhennta fyrr en á þriðjudaginn þrátt fyrir að við vorum að vona að fá hana eitthvað fyrr. Það þýðir auðvitað við erum að tæma íbúðina og flytja sama dag og við eigum að afhenda hana hreina og fína. Stuð. Við erum því búin að vera alla helgina að pakka og ganga frá og erum að fara að þrífa í kvöld og á morgun. Í þessum töluðu orðum erum við búin að pakka næstum öllu nema því allra mikilvægasta þannig að það er frekar tómlegt um að litast hérna þessa stundina. Daníel er búinn að vera algjör engill meðan að við foreldrarnir erum búin að vera að pakka og er duglegur að hafa ofan af fyrir sjálfum sér m.a. með því að byggja sér hús úr einum risastórum pappakassa sem hann getur ekki einu sinni setið uppréttur í en þetta er húsið hans.
Einar er síðan að fara að ná í sendibílinn sem við leigjum á þriðjudagsmorguninn og meðan að Daníel verður í leikskólanum þá ætlum við að skjótast í IKEA (víst við verðum með bíl), sækja lyklana og athuga íbúðina og henda því sem er í bílnum uppí íbúð í leiðinni. Svo er bara að bruna heim og sækja gaurinn og svo koma Agla og Raggi að hjálpa okkur með afganginn. Reikna með að við Agla verðum aðalega í því að klára að ganga frá hérna í íbúðinni og hafa ofan af fyrir Daníel meðan að strákarnir sjá um flutningana.
Ohhh... hlakka svo til að flytja, alveg kominn tími á það. Ég er búin að passa mig að taka því rólega samt í þessu stússi enda ætla ég ekki að fara með bakið á mér núna þegar rúmar 11 vikur eru eftir af meðgöngunni. Var með dálitla samdrætti í dag og hafði sem betur fer bara vit á því að slaka á og taka því rólega. Annars er ég bara stálslegin og meira að segja byrjuð að hjóla aftur sem er voðalega gott.

17 september 2008

Tilkynningaskyldan

Héðan er allt gott að frétta. Lille er á sífellu iði og gefur mömmu sinni sjaldan frið og þá síst á kvöldin sem Einar er bara nokkuð ánægður með þó svo að hann þykist hafa samúð með mér í þessu. Lítur út fyrir að ég muni léttast á þessari meðgöngu eins og þeirri seinustu þar sem allir sem sjá mig segja að ég hafi grennst mikið nema einn aðili sem er þegar farin að hafa áhyggjur af því hvernig ég mun enda í lok hennar. Annars kíkti ég í heimsókn til Láru í Árósum um helgina sem var voða notó og gaman. Við elduðum að sjálfsögðu Purusteik sem er "okkar" réttur og átum á okkur gat af öðru lostæti. Nýtti tækifærið og hitti Hjördísi í leiðinni sem er eins gott þar sem ég hitti hana held ég að meðaltali á 5 ára fresti.

Jæja hef ekki efni á að skrifa meira í bili þar sem gengið er sky-high og að gera okkur gráhærð.

p.s. Alda, hvað er Wannes því ég sagði að hann væri flæmingi (talar flæmsku) en það er víst einhver dýrategund. Það bætist þá við hina dýrategundirnar sem Einar hefur fundið upp sem eru póllendigur ásamt bóndum.

07 september 2008

íbúð - CHECK!

Jæja, loksins bar leitin árangur og við erum komin með íbúð í Fredreksberg. Við erum mjög ánægð og það eru sömuleiðis allir vinir okkar og fjölskylda. Í fyrstalagi verðum við í húsi þar sem vinkona mín býr og þar búa líka fleiri íslendingar með íslensk börn þannig að Daníel fær félagsskap. Í öðru lagi þá erum við að flytja mun nær Öglu og Ragga og sömuleiðis Ebbu og Hilmari sem eru öll sátt með þessa breytingu og í þriðja lagi þá styttist tími í samgöngum hjá Einari um 50% eða úr klukkutíma aðra leið í rétt tæpar 30 mínútur sem er æði. Við flytjum um mánaðarmótin!

25 ágúst 2008

Haust og íbúðarleit

Nú eru að koma tvær vikur síðan við komum heim til Danmerkur aftur og nú fer lífið bráðum að færast í eðlilegt horf þar sem Einar er að fara að byrja aftur í skólanum. Við erum búin að nýta sumarfríið okkar saman hérna mjög vel og búin að þvælast um bæinn og gera alskonar skemmtilega hluti. Mesta furða að við séum ekki komin með leið á hvort öðru eftir að vera búin að hanga saman 24/7 síðustu tvo mánuði en kannski eigum við bara svona vel saman, mætti halda að við værum hjón! En nú fer líka alvaran að taka við þar sem við þurfum að fara að leita okkur að annari íbúð þar sem við erum endanlega búin að fá svar um að við komumst ekki að á Kagså kolligí þrátt fyrir að vera búin að vera nr.13 í mánuð núna. Við þurfum helst 3gja herbergja áður en Lille kemur og erum búin að segja þessari upp og missum hana 1.okt næst komandi. Við erum hins vegar mun bjarsýnni á íbúðarleitina núna þó svo að við séum kannski ekki í eftirsóttum markhóp (barnafólk, námsmenn, útlendingar, utan vinnumarkaðar) því nú höfum við það á bakvið okkur að við erum búin að búa í landinu í 1 ár, tölum dönsku og höfum góð meðmæli frá núverandi leigusala. Það er bara meira spurning um hvar við ætlum að vera því eins og þetta er í dag er Einar tæpan klukkutíma á leiðinni uppí DTU með 3 samgöngum. Best væri að flytja eitthvert nær góðum lestarsamgöngum eða einfaldlega alla leið uppí Lyngby. En þá er aftur spurning um hvernig maðru á að koma Daníel í leikskóla daglega en ætli ég myndi ekki taka það bara á mig þar sem ég er nú hvort sem er í heimavinnandi.
Af meðgöngunni er það helst að frétta að við fórum í fyrsta ljósmóður (jordmor) tímann í síðustu viku (23.vikur). Við biðum spennt á biðstofunni eftir að vera kölluð upp og vorum með eyrun sperrt til að ná því sem sem þær gaula útúr sér þarna. Svo kemur ein og kallar nafnið mitt bara skýrt og ég elti hana inn og ég heilsa henni á dönsku og hún segir "já sæl, ég heiti Jóhanna"!!! Ég vissi ekki hvert ég ætlaði og kallaði bara til Einars sem var eitthvað að drolla "hún talar ÍSLENSKU!!!" Ég ætlaði bara ekki að trúa þessu og átti í raun í smá vandræðum með að byrja viðtalið þar sem ég var búin að undirbúa allt það sem ég ætlaði að spyrja um á dönsku. En mikið ótrúlega vorum við ánægð enda er hún eina íslenska ljósmóðirin í Kaupmannahöfn og hún starfar akkúrat á hverfisstöðinni minni! Annars er ég farin að finna dáldið fyrir óléttunni núna og farin að fá dálitla verki í grindina og er líka dáldið þreytt og langt frá því að vera eins lipur og ég var á hinni meðgöngunni. Daníel er líka mjög spenntur og talar mikið við bumbuna og er búin að plana alskonar skemmtilegt þegar litla barnið kemur. Þannig að þetta er allt mjög spennandi en líka rosalega erfitt að sjá þetta fyrir sér því maður þekkir bara það að Daníel sé miðpunktur athyglinnar og ekkert annað. Hvernig ætli það verði að þurfa að deila tíma sínum og athygli niður á tvo einstaklinga og hvernig getur manni þótt jafn vænt um annað barn og manni þykir um Daníel sem maður er búin að venjast í 3 ár. Allt svo skrítið,spennandi og nýtt. En ég get allavegana sagt að ég er dauðfegin að hafa Öglu og Ragga hérna til taks ef á þarf að halda og ég held bara að ég hafi aldrei áður hlakkað svona mikið til jólanna :-)

15 ágúst 2008

Lille

Eins og flestir vita núorðið þá eigum við Einar von á kríli nr.2 núna í desember. Við fórum í sónarinn loksins í dag og allt leit vel út en dagsetningunni var breytt og er ég nú sett 17.des í staðinn fyrir 24.des. Daníel er auðvitað mjög spenntur og ekki verra að hann fékk að sjá myndir í dag, verst að litla krílið var alltaf með hendina fyrir og vildi ekki sýna sig. Við köllum litla krílið Lille þar sem við viljum ekki vita kynið í þetta skiptið og þar sem strákur og stelpa er bæði samkyn í dönsku (en lille pige - en lille dreng) þá á þetta mjög vel við. Læt myndirnar fylgja.







23 júlí 2008

Frí og letilíf - dagur 23

Í dag er upprunnin 23 dagur frís og letilífs hjá okkur Einari og við erum ekki ennþá komin með leið á þessu! Daníel fer í líkskólann kl.9 á morgnana og bókstaflega hleypur inn (lesist burt frá okkur) til vina sinna sem hann malar síðan íslensku við allan daginn og er mjög ligeglad þó að enginn skilji hann og hann heldur ekkert á móti. Svo líður dagurinn og við Einar gerum eitthvað skemmtilegt t.d. fara í bæinn, hjólatúr eða ströndina. Klukkan 3 er strákurinn sóttur þó svo að hann megi sjaldnast vera að því að koma heim þar sem hann er svo yfir sig upptekinn af að leika. Held að hann vonist ofar en ekki eftir að við förum bara aftur heim og hann fái að leika áfram í friði, allavegana miðað við svipinn sem mætir manni þegar maður birtist.
Hérna rétt hjá þar sem við búum er mjög stórt friðað svæði/engi með smávöxnum trjám, sennilega skógur á íslenskann mælikvarða. Við Einar förum oft hingað út að labba eða hjóla og það er alveg yndislegt. Uppá síðkastið hef ég tekið eftir að á þessu svæði er töluvert magn af villtum eplatrjám sem bera mikla og fallega ávexti og er ég meir að segja búin að finna eitt perutré líka. Núna er ég að gera mér vonir um að þessi epli séu æt og sé fyrir mér ferð í haust að tína ávexti. Voða rómó hugmyndi í huganum og ég neita því ekki að ég sé fyrir mér Daníel uppá háhest og mig í einhverjum fallegum kjól með bastkörfu á handleggnum lalalaaaaa.....

jæja, núna eru bara 6 dagar í íslandsferðina góðu og okkur er farið að hlakka mikið til. Þeim sem hafa hugsað sér að bjóða okkur í heimsókn er ráðlagt að eiga íslenskann lakkrís til á heimilinu eða annað séríslenskt góðgæti ;-) Við verðum bæði með gömlu gsm númerin okkar á Íslandi ég: 6978490 og Einar 6951711.

sjáumst heima!

16 júlí 2008

Legoland

Nýjar myndir komnar frá Legolandi hérna. Skrifa um ferðalagið seinna, núna er gott veðru og við Einar erum á leiðinni í bæinn að spóka okkur og nýta góða verðrið.

08 júlí 2008

Einkahúmor og pælingar

Hafið þið tekið eftir hvað einkahúmor getur orðið ótrúlega súr? Við Einar eigum ófáa brandara okkar á milli og frasa sem við getum hlegið endalaust að.... við réttar aðstæður.
Nokkur dæmi:
  • Keeping it fresh!
  • Kjarni jarðarinnar er hættur að snúast
  • Píjejja (Daníel)
  • Sparka í haus
  • It´s Godiva...
Ég ætla ekki einu sinni að byrja að reyna að útskýra hvaðan þetta kemur en það er hellingur í viðbót sem ég man ekki núna en einmitt kemur upp við réttar aðstæður. Ég er í þessum töluðu orðum með tárin í augunum því við erum einmitt búin að hlægja svo mikið af einu ofangreindu. Kannast einhver við þetta???

Eins hef ég oft pælt í því hvað ég er heppin að hafa hitt á Einar sem er eins mikill pælari og ég. Ég hélt alltaf að allir gerðu þetta en svo komst ég að því að svo var ekki. Ég hef alltaf pælt í því hvernig hlutir virka t.d. gangverk í úrum, framleiðsla á peningum, tómarúm í geimnum og bara næstum allt sem maður skilur ekki. Ebba og Lára fengu oft að hlusta á þessar pælingar og hafa vafalaust fengið meira en sinn skammt, því þær voru með hugann við allt annað. Svo þegar ég hitti Einar þá er hann alveg til í að pæla í svona hlutum með mér eins og hvernig flettiskilti virka, sjónhverfingar, sjálflýsandi efni, örbylgjur, efna- og eðilisfræði, samgöngumál í Tokyo, lyftualgóriþma og fleira. Jebb, mjög spennandi upptalning. Vill einhver koma í heimsókn?

03 júlí 2008

Nýjar myndir


Komin tvö ný albúm á myndsíðuna okkar http://einaregilsson.com/birketinget
Annað er seinnipartur júnímánaðar og hitt er samansafn af símamyndum frá mér apríl til júní.

Um helgina ætlar Alda systir hans Einars að kíkja til okkar í heimsókn en hún er einmitt að vinna að kvikmynd hérna í DK um þessar mundir. Helgina eftir það erum við á leiðinni til Legoland og vorum við að ganga frá pöntun á miðum og gistingu í gærkvöldi, gæti trúað að það komi inn nokkrar myndir eftir það ferðalag.

kveðja,

01 júlí 2008

Júlí mættur á svæðið

Nýr mánuður, nýr leikskóli, ný tækifæri? spurningin sko.
Einar er loksins kominn í langþráð frí og Daníel var að byrja í leikskólanum. Merkilegur dagur í mínum huga :) Daníel var ekki á því að vilja fara frá mömmu sinni í morgun og á einhvern leikskóla, sagðist bara vilja vera heima hjá mér. Eins fallega og þetta hljómaði þá taldi ég hann á að koma og kíkja (alla leið hinu megin við götuna) og hann sá sko ekki eftir því. Það sem honum fannst einna mest spennandi var barnaklósettið sem hann fékk að sjálfsögðu að prófa. Var voðalega hrifnn af að fá að pissa í "fullorðins" klósett sem var í hans stærð og eftir það þá var hann sáttur við leikskólann og sagði "þetta er fínn leikskóli". Ég spjallaði við fóstrurnar meðan að Daníel var að leika úti og fékk aðeins að vita um hina daglegu rútínu sem er mest lítil nema að matar,svefn og kaffitími eru í föstum skoðrum annars er bara "frjáls tími" þ.e.a.s. opið milli allra deilda og allir bara úti eða inni að leika að vild svona næstum því. Þegar það er rigning þá er víst meira skipulögð dagskrá inni og einnig er mikið farið í ferðir og þá sérstaklega yfir sumartímann.
Eftir hádegi fórum við í langann hjólatúr öll fjölskyldan og fundum m.a. pínulitla ísbúð hér langt inná Amager og þar bragðaði ég besta ís sem ég hef á ævi minni smakkað! Við Daníel fengum 4 kúlur saman og það var æðilegur jarðaberjaís sem bragðaist næstum eins og fersk jarðaber mmm... kirsuberjaís með hálf súrri sósu, piparmynduís með mjúku súkkulaði og hnetu-karmelluísmmm... Allur var ísinn silkimjúkur og passlega sætur, algjör draumur. Næst var haldið á súpernýtískulegann leikvöll sem liggur í hinu nýja súper-smooth-arkítekta hverfi Ørestad sunnarlega á Amager. Þegar maður skoðar byggingarnar þarna þá verður maður svo agndofa að maður gleymir eiginlega algjörlega hvað maður var að gera til að byrja með. Veit samt ekki hvort ég myndi vilja búa þarna, kannski aðeins of metropolian fyrir mig.

Anyways núna eru bara 28 dagar í heimferðina og ég er ferlega spennt. Það var reyndar smá breyting á ferðinni okkar þar sem Icelandexpress felldi niður flugið okkar heim þann 11.ágúst, af ókunnum ástæðum. Við lengdum því heimdvölin um 2 daga og förum ekki fyrr en 13.ágúst. Mmmm... mig langar í malt... og appelsín... sem lætur mig hugsa um lakkrísrör.... god hvað ég hlakka til að koma heim!!!!!

13 júní 2008

3 ár!


Hvað var ég að gera fyrir 3 árum? Ég var að strita við að koma yndislega stráknum mínum í heiminn og viti menn hvað tíminn líður og pjakkurinn bara orðinn þriggja ára! Maður er endalaust þakklátur fyrir þennan litla engil þó svo að hann reyni auðvitað oft á þolinmæði okkar foreldranna. Ég fékk hreint og beint kökk í hálsinn þegar hann var í morgun að hlaupa um og leika með afmælisblöðrurnar meðan "Ég er furðuverk!" ómaði í græjunum. Svo sannarlega stund til að muna :)

11 júní 2008

Leikskólamál og vinna

Fengum bréf í morgun um að Daníel hafi komist að á leikskólanum hérna beint hinu megin við götuna og megi byrja 1.júlí n.k.. Þetta er hins vegar ekki svo einfalt. Við erum komin í 25.sæti á listanum yfir námsmannaíbúðir sem þýðir að við munum sennilega fá tilboð um íbúð fyrir haustið og það er í Herlev sem er um klukkutíma ferðalag. Nú þarf maður að spá í hvort maður ætti að þyggja plássið og vera þá mjög stutt eða bíða og reyna að komast að á Herlev þar sem við vitum btw ekkert um biðlistana! Til að bæta gráu ofan á svart þá eru leikskólakennarar í verkefalli og ekkert víst hvenær það mun leysast. Ég reikna samt með að við munum þyggja plássið og svo sjáum við bara til í haust hvað gerist. Daníel er orðinn mjög sveltur af samveru með jafnöldrum sínum og þráir ekkert heitara en að komas inná leikskóla.
Svo fattaði ég allt í einu annað. Nú þarf ég að fara að drífa mig í að finna mér vinnu! Ég var bara að fatta það núna að ég er hálfgert í laumi búin að vera að fela mig bakvið þetta leiskólaleysi Daníels. En ég veit ekki afhverju ég ætti að vera eitthvað stressuð fyrir utan að allt hérna er örðuvísi en heima t.d. er engin skylda að vera í stéttafélagi eða borga í lífeyrissparnað og ekki einu sinni láta mig byrja að tala um skattakerfið hérna sem er bara versti frumskógur sem ég hef kynnst. En jæja þetta kemur allt í ljós og ég hef nú smá tíma til að undirbúa mig undir breytingarnar eins og Daníel.
Annað í fréttum er að Atli litli frændi á afmæli í dag og er hvorki meira né minna en 10 ára! OMG hvað þeir stækka hratt þessir "litlu" frændur mínir sem mér finnst ég bara hafa verið að skipta um bleyju á um daginn. Alla vegana innilega til hamingju með daginn og ég mér finnst ferlega fúlt að missa af afmælisveislunni!

Svo eitt að lokum - Frozen Grand Central

Ég er búin að horfa á þetta oft en fæ ekki leið :-)

01 júní 2008

Ísland - best í heimi!

Ég og Hildur Sig skelltum okkur á ströndina á föstudaginn og eyddum næstum öllum deginum þar. Eitthvað þurfum við vinkonurnar að fara í kennslustund um hvernig bera eigi réttilega sólarvörn á sig því báðar erum við hálf flekkóttar eftir sólbaðið. Ég nota samsagt sólarvörn 20 en var ekkert að hugsa alltof vel hvernig bera ætti á bakið og skellti einhverjum afgöngum þarna yfir öxlina sitthvorumegin og er núna með að launum HANDAFAR á hægri öxl og einhverjar rendur hinu megin. heheh þetta er alveg bráðfyndið að sjá þetta og er ég búin að skemmta mér nokkuð vel yfir að skoða þetta í speglinum. Farið er þó óðum að hverfa því við fórum á Klampenborgströndina daginn eftir og hittum svo Hildi Guðmunds og Gúnda í Dyrehaven sem er risastór skógur sem nær allt fra Klampenborg og allt norður til Lyngby - sko mín klár í landafræðinni! En já einnig þarf ég að annaðhvort a)minnka sólgleraugnanotkun eða b) fá mér 50+ blokker á nebbann því hann er orðinn ansi mikið sólbrúnni en afgangurinn af andlitinu!
En já það sem ég ætlaði að segja að við Hildur Sig söknum báðar okkar ástkæra Íslands. Það er svo margt sem mig langar að gera eða réttara sagt upplifa/finna sem er bara hægt þar. Mig langar að vakna upp á sunnudagsmorgni og fara út og finna kaldann og ferskan sumarvind í andlitið - ég man alveg lyktina og allt sem ég get auðvitað ekki komið í orð hér. Meðan flestir bæjarbúar eru að sofar frameftir þá myndi ég fara í sund - alvöru útisundlaug og stinga mér beint útí svölu djúpulaugina! MMmmmmm... klórlyktin og ferskleiki út í gegn - ég get næstum því ímyndað mér mig þar sem ég læt mig fljóta aðeins í vatninu meða að kroppurinn er að venjast hitastiginu og þyngdarleysinu. Synda svo nokkrar ferðir (ekki of margar!) og leika svo við Daníel og að lokum kíkja aðeins í heitapottinn og svo mana sig í að fara uppúr og hlaupa í átt að búningsklefanum. Eftir sundið finnur maður svo ennþá klórlyktina af húðinni mmmm... Beina leið útí bakarí og kaupa rúnstykki og trópí og svo heim að gæða sér á herlegheitunum.
Ég sakna þess líka að borða lambakjöt og þá sérstaklega lambakjöt á grillið. Namm, slef... sé fyrir mér í hyllingum girnileg spjót í kjötborðum verslana - Íslendingar eru örugglega heimsmeistarar í grilli og ekki afþví að við gerum mest af því heldur af því að við kunnum það einfaldlega best!
Ég sakna líka ostanna heima. Ekki brauðostsins eins og svo margir hérna heldur hörðu kryddostana sem ég var engann veginn að gera mér grein fyrir að ég notaði svona mikið. Þegar ég kem heim í sumar þá ætla ég að fylla handfarangurinn (10 kg!) af pipar- mexico- hvítlauks- og paprikuosti!!!
Ég hlakka líka til að fara í sumarbústaðinn þegar við komum heim. Ég elska lyktina inní sumarbústöðum og líka bara lyktina af íslensku sumri og grasi og berjalyngi. Að vakna upp í kyrrð og ró en ekki við skellinöðrur og bílaumferð. Þetta er það sem mig dreymir um þessa dagana og já subway. Ég hlakka líka til að geta fengið mér ískalt vatn úr krana og finnast það gott en ekki með kalkbragði og það er svo margt, margt fleira sem ég man ekki núna en það verður gott að koma heima. Nú eru tæpir 2 mánuðir í heimkomuna og ég er byrjuð að telja!!!
Í næsta bloggi ætla ég að segja frá hinum sumarplönunum og verð þá vonandi líka búin að setja inn einhverjar nýjar myndir.
Hilsen,

20 maí 2008

Eurovison

Við Einar erum hérna í góðum fíling að horfa á fyrsta part af forkeppninni og erum að lesa smá um keppendur á heimasíðunni í leiðinni. Núna er akkúrat komið að strákabandinu Miodio frá San Marino. Þetta er það sem þeir hafa um nafn hljómsveitarinnar að segja:

The name of the band is provocative and impressive but hides a deep reflection: "You must learn to see how much you hate yourself until you look at yourself in the mirror and see the reflection of your thoughts, you will use every person you meet as a mirror reflecting what you think of yourself…"

Ég veit ekki einu sinni hvað maður á að segja því svo margt fer í gegnum huga minn þegar ég les þetta load of crap!

Hárið fékk að fjúka

Við Einar eru bæði búin að fá okkur nýja sumarklippingu og það fékk heldurbetur mikið af hári að fjúka! Ég rakaði hárið af Einari sem var orðinn þó nokkur stjórnlaus lubbi og fór sjálf í klippingu í gær á íslensk/danska stofu þar sem ég lenti á íslenskri stelpu. Ég held ég hafi klippt 10-15 cm af mínu lokkaflóði og ég er núna með svona bob-klippingu vel þynnta sem nær ca. að miðjum hálsi. Það var bara ekki að ganga þetta síða hár enda gerði ég ekkert við það nema að skella því í tagl. En ég meina það var gaman að prófa það en nú veit ég bara að þetta fer mér ekki. alveg eins og þegar ég aflitaði á mér hárið.... var ekki alveg að gera sig en þá bara veit maður það.
Það er búinn að vera skítakuldi hérna síðustu vikuna og auðvitað er búið að loka fyrir kyndinguna í öllum fjölbýishúsum í maí. Helvítis fyrirhyggja alltaf hreint. Þetta er eins og Agla sagði: Ef ég vil hafa heitt hjá mér og borga morðfjár fyrir það þá er það bara mitt mál! WRONG! Ohhh.. mig hlakkar til að fara til póllands á morgun í 20 stig+ þannig á það að vera. Ég benti Einari á sínum tíma að það væri ágætis háskóli á Tenerive en hann vildi ekki hlusta á það.... piff!
Hvað fleira? Núna erum við komin í held ég 26. sæti á biðlistanum á Kolligíinu í Herlev þannig að ég er farin að veðja á að við munum flytja í aðra kommúnu áður en Daníel nær að komast inná leikskóla hérna í Kaupmannahafnarkommúnu, meira ruglið. Annars er litli pjakkurinn búinn að vera svo óþekkur að það er engu lagi líkt. Sem refsingu núna er hann að taka til allt draslið í horninu sínu og ekkert sjónvarpsgláp í dag. Það ætti að kenna honum! Iss, ég veit ekki hvern ég er að þykjast vera að blekkja, hann verður búinn að gleyma þessu um kaffileytið :D

04 maí 2008

Bara þetta venjulega

Svo er ekkert sérstakt að frétta nema að veðrið batnar og batnar og núna kl. ca 9 er 11 stiga hiti úti og á að vera 17 í dag þannig að við Daníel ætlum að eyða deginum utandyra eins mikið og hægt er en Einar verður víst inni að læra eins og venjulega. Einar er voðalega duglegur finnst ykkur það ekki? Ég gerði smá suprize fyrir hann og pantaði fullt af íslensku nammi frá nammi.is og Séð&heyrt fyrir litlu slúðurkellinguna (hann ekki mig!).
Við mæðginin eigum líka pantað far til Póllands 21-28 maí þar sem við ætlum að hitta aðeins fjölskylduna og hanga uppí sumarhúsinu meðan að Einar verður hérna að strita í vorprófunum. Það er nú alveg ótrúlegt hvað það er ódýrt að fara til Póllands þegar maður er hérna í DK. Ég pantaði mér far fyrir rúmar 820 DKK! Ekki neitt! Það verður gaman að fara uppí Izabelin og Daníel er mjög spenntur. Það sem mér finnst mesta snilldin við að taka flug héðan er að til að fara uppá flugvöll (ég bý reyndar ekki svo langt frá) þá tekur maður bara metroinn og ég er svona 10-12 mín að labba uppá stöð og svo ca.12 mín í metró og þá er maður kominn beint inní flugvallarbygginguna og þarf bara að taka lyftu og maður er kominn inní check-in. Svona á þetta að vera. Hvenær kemur svona lest milli Kefl og Rvk???
Daníel hefur síðan verið boðaður í fyrstu tannlæknaheimsóknina sína núna 7.maí og hann er mjög spenntur að sýna tannlækninum fínu ljóna-tennurnar. Ég er líka mjög spennt.... mjög spennt hvernig ég ætla að klóra mig úr samtali við tannsa á dönsku en það er bara áskorun :-D

24 apríl 2008

Smá innlit

Allt gott að frétta héðan og vorið er nú loksins komið fyrir alvöru og trén að fá falleg lauf og allt að lifna við. Það er nú samt ekki orðið neitt voðalega hlýtt og það hangir við svona 12-14 stig sem er ekkert voðalega heitt þar sem rakinn hérna er meiri en heima og það fylgir líka oft kaldur vindur. Þetta er nú samt nóg til að vera útí almenningsgörðunum á teppi svo lengi sem maður er ágætlega klæddur. Daníel svaf meira að segja um daginn hádegislúrinn sinn útígarði við hliðina á mér meðan ég var að lesa dönskubókina mína. Við erum ekki enn búin að heyra fréttir af því hvenær Daníel fær pláss á leikskólanum en í millitíðinni erum við búin að finna innileikstofu sem við förum á tvo morgna í viku og það er mikið stuð þó svo að hann sé nú enn sem komið er dáldið feiminn við hin börnin.
Annað sem er helst í fréttum er að við erum loksins búin að selja bílinn okkar hehe eða réttara sagt yfirfæra lánið á annan aðila þannig að við flytjum bílinn ekki út eins og þetta var farið að líta út. Ég kalla það bara gott að hafa selt bíl á erlendu láni á þessum síðustu og verstu en það eru greinilega ekki allir eins svartsýnir.
Við erum síðan búin að bóka flug "heim" 28.júlí - 11. ágúst. Jejj! Þetta er besti tíminn því þá er einmitt von á tveim nýjum krílum í heiminn, get ekki beðið.

p.s. nýjar myndir komnar

10 apríl 2008

Nýtt símanúmer

Jæja er loksins búin að færa mig yfir í almennilegt símafyrirtæki og fékk mér súperslikk Sony Ericsson síma í leiðinni :D Nýja númerið mitt er 27896105
Einar er með sama númer nema endar á 4. p.s. ef einhver er með 3G þá endilega prófa.

01 apríl 2008

Verð að hætta í bili

Fyrir ca. viku síðan gerðist sá sorgaratburður að heimafartölvan dó algjörlega og ekki hefur verið hægt að vekja hana til lífsins aftur. Ég er því aftur orðin sambandslaus nema þá aðeins á kvöldin þegar Einar er heima en hann er þá yfirleitt að vinna á sína tölvu. Það verður því lítið um skrif hérna allavegana næstu vikurnar eða þar til annað kemur í ljós.

18 mars 2008

Síminn minn...

Ég gleymdi víst að láta vita af númerinu mínu hérna úti. Það er +4520561128... allavegna í bili. Er svo að fara að skipta um símafyrirtæki og þá læt ég vita um nýja númerið.

11 mars 2008

... og biðin lengist...

nenni ekki að blogg þar sem við vorum að fá leiðindafréttir. Daníel er að nálgast 3gja ára afmælið sitt og dettur því útaf Vuggestue listanum og má eins ekki fara inná garenti-listann lengur. Konan á skrifstofunni sagði að hann kæmist inná leikskóla sennilega einhverntíma milli maí og ágúst! Við erum að tala um 2 til 5 mánuði!

05 mars 2008

Brrr....snjór :-(

Það hlaut að koma að því að maður myndi sjá snjó hérna í Danmörku. Brrrrr..... Ég er algjör kuldaskræfa eftir að ég flutti hingað og er ekkert sérstaklega ánægð með þennan snjó þó þetta sé bara rétt slikja yfir jörðinni.
Á leið minni í þvottahúsið í gær hitti ég gamlann mann sem var að taka til í geymslunni sinni. Hérna er siður að tala við alla næstum því sem verða á vegi manns og þá einkum ef þeir eru nágrannar. Ég spjallaði aðeins við hann, á dönsku auðvitað, og sá að hann var að fara að fleygja gömlum dönskum bókum. Ég fékk að hirða nokkar bækur og nú hef ég aðeins kröfuharðara lesefni en metro-blöðin.
Anyways ég ætla að nefna nokkra hluti sem eru öruvísi hérna en heima ef einhver nennir að lesa það. Mér finnst þetta allavegana skemmtilegt og elska að pæla í þessu.
  1. Við hliðina á húsinu okkar er pappírsgámur og stampur fyrir notaðar rafhlöður. Mjög kúl.
  2. Bakvið hús er svæði þar sem maður getur losað sig við stórt rusl (storskrald) eins og húsgögn og fl. Þetta er síðan hirt á 4 vikna fresti. Eins má maður hirða af þessu svæði ef manni líst á eitthvað. Skemmst að minnast Öglu sem ferðaðist yfir hálf Köben með stórann spegil.
  3. Móttaka fyrir dósir og flöskur er fyrir utan supermarkets. Vélarnar virka þannig að maður lætur flöskurnar á færiband og strikamerkið á umbúðunum er skannað inn og þannig fæst rétt verðmæti fyrir flöskurnar. Stórar plast (kók) 3 kr. dósir og litlar flöskur 1,5 kr. Svo fær maður miða úr vélinni með strikamerki sem maður notar síðan til að borga uppí með í búðinni.
  4. Ef maður fer í Fakta eða Nettó og borgar með klinki þá hendir maður því í vél og fær til baka klink í hólf fyrir neðan. Eins fær maður til baka klink á sama hátt ef maður borgar afgreiðslumanninum með seðli.
  5. Það er margt mjög rafrænt hérna og maður sækir um digital signiture kóða hérna og getur þá t.d. sótt um leikskólapláss rafrænt og fylgst með umsókninni á netinu í staðinn fyrir að vera alltaf að hringja og spyrja.
  6. Furðulegir hlutir úr búðum. Í bilka er stórt ávaxta og grænmetistorg og þar er vélbúnaður í loftinu sem sér um að senda reglulega raka gufu yfir svæðið. Fannst þetta alveg skrítið fyrst en núna tekur maður ekki einu sinni eftir þessu.
  7. Skyndibitastaðir. Maður pantar og borgar og fær svo token (stór plastpeningur). Þegar pöntunin manns er tilbúinn þá pípir peningurinn og blikkar rauðu ljósi. Mjög kúl.
  8. Furðulegar matvörur. Niðursoðnar pylsur af öllum stærðum og gerðum. Gott ef maður hefur ekki kæli en lítur mjög ógyrnilega út.
  9. Frosnar súpur. Þetta er stórir klumpar í frystivörudeildinni.
  10. Flest grænmeti og ávextir eru seldir í stykkjatali. Sumt er samt eftir vikt og maður þarf alltaf að vera vakandi því maður á að vikta sjálfur í grænmetisdeildinni.
  11. Hitanotkun (heitt vatn á ofna) er mælt með utanáliggjandi mælum sem eru festir á alla ofna.
  12. Danir hafa ekki uppgötvað skaðsemi ljósabekkja og það eru margar, margar ljósastofur hérna. Flestar eru þær sjálfvirkar og bekkurinn virðist fara í gang eftir því hvað maður lætur mikinn pening í sjálfsalann.

Jæja læt þetta duga í bili. Það er örugglega margt fleira skrítið hérna en ég er sennilega bara búin að venjast því og tek ekki lengur eftir því.

Við Einar áttum síðan 8 ára afmæli í fyrradag og Agla kom að passa. Við fórum út að borða á litlum grænmetisveitingastað og fengum okkur síðan kaffi á kaffihúsi á bakaleiðinni. Vorum eitthvað að bera þetta saman við heima og svona kvöld hefði kostað okkur sennilega tvöfalt meira heima. Svona á þetta að vera. Maður á að geta farið út að borða án þess að fara á hausinn.

28 febrúar 2008

Allir HLAUPA!!!

Lífið hérna er búið að venjast ágætlega og við erum búin að vera duglega að stytta okkur stundirnar hérna með alskyns dótaríi. Ég er meðal annars búin að kynnast 2 íslenskum stelpum (Rakel og Hildur) hérna sem eiga litla stráka (1 árs) og við hittumst alltaf einu sinni í viku. Á föstudaginn siðasta vorum við með matarboði fyrir tvo af félögum Einars úr skólanum. Það var annarsvegar Luke sem er mjög málglaður breti sem hefur m.a. verið liðþjálfi í breska hernum og farið til Afganistan. Luke er að vinna með Einari í nýja rannsóknarverkefninu uppí skóla. Hinn strákurinn heitir Gédrus og er frá Litháen. Hann er mjög rólegur og þægilegur og var að vinna með Einaru uppí Microsoft. Gédrus kom með kærustuna sína Rahmöndu. Þetta var mjög hugguleg kvöldstund og gaman að kynnast nýju fólki.
Á laugardaginn var síðan þorrablót haldið hjá Íslendingafélaginu í Kaupmannahöfn og við smöluðum nokkrum íslendingum úr mismunandi áttum saman og skelltum okkur. Við ákváðum hins vegar að sleppa matnum og fara bara á ballið þar sem enginn okkar er sérstakur áhugamaður um vondann mat. Agla var fengin til að passa og við fórum í party til Ebbu áður og þar vorum við ca.10 og það var mikið stuð. Það var selt á ballið milli 23-23:30 og allt í einu var klukkan að verða 11! Planið var að taka leigubíl en við sáum fram á að ná ekki í tæka tíð fyrir miðasöluna. Danir eru nenfilega mjög stundvísir, ef miðasalan er milli þetta og þetta þá er lokað á slaginu og jafnvel aðeins fyrr og þeim er alveg sama þó þeir selji ekki varninginn eins og dæmið þegar okkur Ebbu var hennt útúr Bilka. Anyways þá bruðguðm við á það ráð að fara í smá Amazing Race og drifum okkur út á lestarstöð. Þar vorum við í góðum fíling með bjór og glens þegar B-lestin fer alltí einu framhjá og ég segi hey getum við ekki tekið þessa lest og jú það var rétt þannig að við biðum bara eftir að lestin stoppaði en hún var bara alveg á fullri ferð. Svo segir Ebba alltí einu "ALLIR HLAUPA!!!" Við vorum nefnilega aftast á brautarpallinum og þetta var um kvöld þannig að lestin sem var í gangi var svo stutt og stoppaði auðvitað fremst. Þannig að við tókum öll á sprett, stelpur í háum hælum og allir með bjór og hróp og köll og þetta var ógeðslega fyndið! Við rétt náðum í skottið á lestinni þar sem hjólavagninn er og þar eru svona niðurfellanleg sæti í staðinn fyrir bekki. Við henntumst inní lestina með þvílíkum látum og hlátrasköllum og Dönunum sem voru fyrir í lestinni,sem voru auðvitað ekki margir, var EKKI skemmt. Við tók hláturskast í lestinni á milli þess sem við reyndum að ná andanum róa okkur eftir þetta óvænta hlaup. Þegar á Nörreport var komið þá hlupum við niður í Metroið (við vorum í Amazing race fíling) og akkúrat náðum að fara í næsta metro sem var að fara niður á Christianshavn. Allan tímann vorum við með augun á klukkunni og þetta ætlaði að vera rosalega tæpt og spennandi þannig við hálf valhoppuðum þegar við vorum komin á Christinashavn að Amagerlocalinu. Við vorum mætt 23:34 en miðasalann var að sjálfsögðu ennþá í gangi enda var kapphlaupið gert meira að gamni en alvöru. Ballið olli okkur hins vegar dálitlum vonbrigðum en við reyndum að gera það besta úr því og í heildina litið skemmti ég mér alveg konunglega enda bara gott að komast út og slappa af.
Ég er alltaf að kynnast nýjum og furðulegum hlutum hérna en ég segi betur frá því í næsta pósti þar sem þessi er orðinn frekar langur. Daníel er hress og Einari gengur vel í skólanum. Um helgina er Lára að fara að koma frá Fjárhúsum vegna þess að Ómar kærastinn hennar er að fara að spila og Ebba á afmæli sem þýðir smá party og svo er Unnur að koma í helgarferð til Köben þannig að það er ágætisdagskrá framundan.

Hilsen,
Karen

13 febrúar 2008

Ný myndasíða

Myndasíða fyrir familíuna í Danmörku:
http://einaregilsson.com/birketinget

Svo eru líka loksins jólamyndirnar komnar inn á síðunni hans Daníels:
http://daniel.einaregilsson.com

kv,
Karen í Köben

07 febrúar 2008

Maður er alltaf að læra

Svona áður en ég gleymi því þá hef ég ekki ennþá fengið bréf frá Danske Bank sem mér var lofaði í síðustu heimsókn. Ég er núna að vinna í því að fá Einar til að skipta um banka og er að spá í að reyna kannski við Nordea eða kannski ætti maður að gera eitthvað af viti sækja um hjá einhverjum af minni bönkunum, þeir hafa þá kannski tíma fyrir mig og mín viðskipti?
Anyways það er búið að vera svo yndislegt veður í dag og meira að segja heiðskýrt og við erum búin að vera meira og minna úti allan daginn. Um morguninn fórum við í stóran garð með rosalega fallegri tjörn og skemmtilegum leiktækjum og síðan röltum við yfir í grasagarðinn sem er risastór og við náðum ekki nærri því að skoða hann nógu vel. Seinna um daginn fórum við síðan á róló og síðan út að hjóla. Lexía dagsins er hins vegar að fara ekki með Daníel út að hjóla ef hann hefur ekki sofið neitt um daginn. Ég var í miðjum hjólatúr lengst út á Amager-fælle þegar ég fatta það að strákurinn er steinsofnaður aftan á hjólinu og gjörsamlega hangir á beltinu einu saman með hausinn lafandi. Mér tókst ekki með nokkru móti að vekjann þannig að ég átti engra kosta völ en að hjóla bara hratt heim aftur með hann hangandi því ég hefði verið heila eilífð að teyma hjólið alla leið til baka.
Ég er bara farin að bjarga mér ágætlega á dönskunni nema við fýlupúkana sem hafa ákveðið fyrirfram að gefa mér ekki séns og þykjast ekkert skilja hvað ég er að segja. Flestir eru hins vegar mjög fínir og brosa bara ef maður segir einhverja vitleysu. Ég er hins vegar á leiðinni á morgun í Köbenhavns Sprogcenter að fá viðtal við ráðgjafa þar sem dönskukunnátta mín verður metin og ákveðið í hvaða stig af dönskunámskeiði ég verð látin byrja í. Hlakka mikið til að hafa eitthvað fyrir stafni.
Við erum líka búin að komast að því að hérna á Amager er allt að gerast. Amager fælle sem ég nefndi áðan er risastórt óbyggt svæði sétt hjá okkur og það er friðað fyrir fuglalíf. Þar er hins vegar búið að búa til stíga og nokkur svona svæði þar sem fólk má vera en maður verður að fara fótgangandi eða á hjóli því þetta er nú einu sinni friðlýst svæði fyrir villta fugla. Síðan ef maður tekur metróinn 4 stöðvar frá okkur og gengur í 10 mín þá er maður kominn að Himmelhoj sem er sérstakt leiksvæði fyrir krakka og reyndar hópa t.d. skólaferðalög. Auk þess er margt annað skemmtilegt hérna eins og lesa má hérna.
Þannig að við erum alltaf að uppgötva meira og meira hvað er í kringum okkur og við Daníel höfum nóg að gera við að kanna þetta meðan að Einar er í skólanum eða vinnunni.

Ég er búin að búa til smá kort í Google maps þar sem ég er búin að merkja inn allt það helsta sem við kemur okkur hérna í Köben.
View Larger Map

Nú er bara spurningin: Hver ætlar að koma að heimsækja okkur um páskana?

02 febrúar 2008

Leiðinda veður og enginn bankareikningur

Það er búið að vera leiðinda veður hérna í Danmörku síðan að við Daníel mættum á svæðið. Skýjað uppá hvern einasta dag og oftar en ekki rigning. En það er ekki það versta heldur er það leiðinda rokið sem er hérna alltaf hreint og stundum er svo hvasst að maður helst varla á hjólinu!
Mér hefur gengið svona stórslysalaust að hafa samskipti við danina og ég held áfram að þjóskast við og nota mína mjög svo slöppu skóladönsku. Mér tóks hins vegar einhvern veginn að brjóta ósýnilegu siðareglunar með því að standa ekki á réttum stað í röðinn við kassann í matvörubúðinni. Ég veit aldrei hvar maður á að standa því danirnir borga stundum beint við kassan en oftar en ekki þá borga þeir aftan frá þar sem er posi og peningafæribandið ógurlega. Ég semsag stóð á vitlausum stað og einhver gamall kall fnussaði á mig því hann þurfti að fara famhjá mér til að ná í skilrúmið. Já meðan ég man maður verður að setja skilrúmið eftir sínum vörum UM LEIÐ og þú ert búinn að sleppa síðasta hlutum á færibandið annars á maður ekki von á góðu.
Það sem er hins vegar merkilegra er þegar ég fór í bankann til að stofna bankareikning. Ég fór semsagt með stórplön í bankann og ætlaði hvorki meira né minn en að stofna tékkareikning með debetkorti og merkja hann sem Nemkonto (búin að fá skammir frá hinu opinbera fyrir að vera ekki búin að þessu). Ég semsagt fór í Danskebank (þar sem Einar er) og tók númer og meðan ég beið þá hugsaði ég í gegn samskiptin og hvað og hvernig ég ætti að segja hlutina á dönsku til að gera mig skiljanlega. Þegar loksins kom að mér þá byrjað ég mína ræðu um bankareikninginn og var bara nokkuð ánægð með mína frammistöðu :) Konan hins vegar tjáði mér það að ég gæti ekki stofnað bankareikning núna því það hefði enginn tíma til að sinna því!!! Hún tók ljórit af passanum og CPR númerinu mínu og ætlaði að senda mér gögn í pósti sem ég ætti að fylla út og senda þeim síðan til baka. "Bíddu og hvenær er þá bankareikningurinn tilbúinn?" spyr ég, konan sagði mér bara að kíkja við nokkrum dögum eftir að ég væri búin að senda bréfið til baka. Með þessar upplýsingar fór ég þögul og hálfdofin úr bankanum. Það var ekki fyrr en ég kom útá götu að ég áttaði mig hvað hafði gerst. Það hafði enginn tíma til að vera að stofna bankareikning fyrir mig! Hverskonar þjónusta er þetta? Maður á bara ekki að venjast þessu. Sjáið þið þetta fyrir ykkur í anda gerast heima? Ég ætlaði nú eiginlega bara að labba beint yfir í Nordeabank sem var beint á móti en fattaði þá að Einar er í Danskebank (djö) og leigusalinn okkar líka (2xdjö). Ég fór semsagt bara heim með sárt ennið og reyndi að vera ligeglad yfir þessu öllu samna, þýðir nokkuð annað?

29 janúar 2008

Matvöruverslanir og fleira.

Það er margt nýtt sem fyrir augu ber þegar maður flytur burt af litla skerinu okkar meir að segja þó það sé ekki lengra en hingað til Köben.

Manni finnst allt hérna ganga útá að spara sem eru auðvitað als ekki svo vitlaust. Ef maður sparar eða réttara sagt fer vel með peningana sína þá þarf maður ekki eins mikið af þeim og þá er kannski síður hætta á að fólk falli í hringiðu lífsgæðakapphlaupsins sem við Íslendingar erum oft kennd við. En aftur að sparnaðinum. Matarverð er almennt aðeins lægr en heima en það er líka af því að það er meira úrval af non-brand vörum sem eru oft á tíðum ekkert síðri. 2gja lítra kók eða sprite er kannski á 18-19 kr en ef þú kaupir non-brand coop límonaði þá er það ekki nema 9,50 kr og er bara mjög gott. Það er sama hvaða búð maður fer í, það gengur allt útá magninnkaup. Á verðmiðum stendur stórum stöfum alltaf verðið á tveim eða fleiri pakkningum og til hliðar stendur með litlum stöfum stykkjaverðið og hvað maður er að spara mikið með því að kaupa tvennt eða fleiri pakka í einu. Á kjöti stendur oft 5 pakkar á xx verði. Hver kaupir ekki t.d. 5 pakkningar af 800 gr. svínahakki og við skulum ekki gleyma að það þarf að halda á þessu eða hjóla með þetta heim. Ég vil oft láta freistast með svona magntilboðum en oftast nær skynsemin yfirhöndinni þar sem ég hugsa "ok, þarf ég virkilega 3 pakka af snakki?" Grænmeti og ávextir eru oftast merktir með stykkjaverði og þá hljóma tilboðin eins og 10 bananar á 18 kr í staðinn fyrir 20 kr þú ert að spara 2 kr! Það eina sem ég hef ekki enn séð á svona magntilboði eru mjólkurvörur, sem eru ekki niðurgreiddar, nema þá ostur og hann er þá oftast á einhverju tilboði. Það er líka fyndið með tilboð, danir virðast næstum því ekki kaupa hluti nema þeir séu á tilboði og ég hef heyrt sögur um fólk sem keyrir milli verslana í eltingaleik við tilboð í stórmörkuðum.
Það er tvímælalaust önnur menning í matvöruverslunum hérna en heima. Matvöruverslanir eru opnar frá 8/9-20 alla virka daga og á laugardögum frá 10-17 og lokað á sunnudögum. Þetta kemur af því að stórmörkuðum eru settar ákveðnar reglur um opnunartíma til að vernda smákaupmennina sem hafa leyfi til mun rýmri opnunartíma. Sunnudagsopnanir í almennum verlunum eru auglýstar sérstaklega og það er þá yfirleitt fyrsti sunndagur í hverjum mánuði. Það tók smá tíma að venjast þessu en þetta er bara af hinu góða enda er full vinnuvika hjá dönum 38 tímar á viku í stað 40 hjá okkur og oft er yfirvinna ekki leyfð.

Hérna í lokin eru nokkur verðdæmi 1 Dkr er ca.12,8 ISK

1 l jógúrt 14,5 kr.
Philadelphia smurostur 14,95 kr
300 gr kokteiltómatar 15 kr
Colgate tannkrem triple action 2pk. 19 kr.
ca.800 gr. kjúklingabringur (4-5 stk) 64,50 kr.
1 stk banani 2 kr
Rucola salat meðalbakki 12 kr.
Frosið hvítlauksbrauð 3stk. 15,95 kr.
Svína panna (tilbúinn réttur dugar fyrir 3) 40 kr

Það sem ber að taka fram að þessi verðdæmi eru tekin úr ódýrari verslunum sem jafnast á við Krónuna og Bónus. Ef þú kaupir gos í flösku sem er með pant (skilagjald) þá ertu rukkuð fyrir pantið í búðinni (3 kr) en færð það síðan til baka þegar þú skila inn flöskum. Þetta er auðvitað gert til að hvetja (humm.. neyða?) fólk til að endurvinna. Sælgæti á svipuðu róli og heima því "sykurskattur" er mjög hár hérna, en við látum það nú ekki stoppa okkur. Fleiri staðreyndir um matövurverslanir t.d. nýjustu tækni í búðarkössum má finna á síðunni hans Einars

24 janúar 2008

Sólarsagan fyrsti partur

Er það ekki bara best að segja alla sólarsöguna? Við mættum hingað semsagt á þriðjudaginn fyrir viku síðan og ég var hálfdofin eftir flugið. Einar var búinn að fjárfesta í einu húsgagni og það var svefnsófi sem stóð inní risa stórri stofunni.
Einar var rosalega spenntur að fá okkur og gleðin skein úr andlitinu á honum um leið og hann var hálfkvíðinn að sjá hvernig okkur myndi líka það sem hann var búinn að skaffa hérna, þessi elska. Við fórum öll snemma að sofa þetta kvöld og næsta dag tók Einar sér frí til að fara með okkur í “þjóðskrána” og skrá okkur inní landið. Það gekk ekki nógu vel þar sem við hugsuðum ekki útí að taka með okkur húskaparvottorð fyrir okkur og fæðingarvottorð fyrir Daníel. Þannig að við vorum skráð ógift inní kerfið og Daníel foreldralaus. Þetta stendur allt til bóta og viti menn við fáum barnabætur fyrir Daníel!
Í bæjarferðinni fórum við líka í Tiger og keyptum glös og skálar þar sem við áttum gjörsamlega ekkert í eldhúsinu fyrir utan nokkra hluti sem Einar fékk lánaða frá Öglu systur sinni til að lifa af fyrstu dagana meðan að við vorum að koma okkur fyrir. Glösin sem við keyptum eru glær með litaðri brún og Daníel var fljótur að fatta að þetta var eins og glösin hjá Völu og Hjalta og er mjög duglegur að minna á það.
Næstu dagar fóru í að kynna sér umhverfið og hverfisbúiðna þar sem mér tókst að fá 3gja hluta pottasett á tilboði og hnífapör ásamt því allra nauðsynlegasta. Hérna verður maður hins vegar að passa sig að taka ekki of mikið og forgangsraða hvað maður þarf helst því auðvitað þarf að halda á þessu öllu heim þar sem enginn er bíllinn. Það er erfitt að forgangsraða þegar mann vantar allt og enn sem komið er hefur voðalega lítið bæst við í eldhúsið af mat þar sem búðin sem er hjá okkur er svipuð Hagkaup og ég vil ekki vera að gera stórinnkaup þar. Næsta “hagkvæma” búð sem ég veit um er Bilka sem er í Field´s en það er líka töluvert labb útá metróstöðina og maður gerir það ekki einn með lítinn gutta í eftirdragi þanngi að ég verð að bíða eftir Einar hafi tíma til að koma með.


Á laugardaginn síðasta fengum við Öglu til að koma að passa fyrir okkur og við lögðum af stað í IKEA leiðangur. Upprunalega planið var að leigja bílaleigubíl og gera fleiri útréttingar í leiðinni. Þegar kom hins vegar að því að leigja bílaleigubíl þá komumst við að því að það kostaði 20.000 með fullri tryggingu í 3 daga ( það var sama verð fyrir 1 eða 3 daga). Þetta fannst okkur alltof mikið fyrir okkur og hættum snarlega við. Þannig að við tókum bara almenningsamgöngurnar og ákváðum að sleppa frekari útréttingum.
IKEA í Gentöffte er svona svipað að stærð og nýja búðin heima fyrir utan að það er fjórfalt meira af fólki í búðinni. Við þurftum görsamlega að kaupa allt! Það tekur alltaf miklu lengri tíma að fara í IKEA en maður gerir ráð fyrir og sérstklega þegar maður þarf að kaupa svona margt. Það sem við þurftum nauðsynlega að kaupa af húsgögnum var; hjónarúm, borðstofuborð, sjónvarpsborð, kommóðu og lítið borðstofuborð og stóla. Auk þess ætluðum við að taka ýmislegt smálegt eins og uppþvotta og þvottgrindur, ruslafötur, diska og annað slíkt. Við vorum fjót að átt okkur að við þurftum enn og aftur að forgangsraða og við ákváðum að taka drífa okkur bara í húsgögnin og það var nú meira en að segja það þrátt fyrir alla þessa flötu og fínu pakka. Við enduðum með 2 troðfulla vagna þannig að við sáum varla fram fyrir okkur þegar við vorum að leiðinni á kassann. Þá fyrst byrjaði biðin. Það var lögn röð á kassann og eftir hana þurftum við að sækja hluti fyrir rúmið á annan vörulager og svo fara í heimsendingarröðina. Frá því að við byrjuðum að standa í kassaröðinni og þar til við vorum búin að losa okkur við vörurnar í heimsendngu leið rúmur klukkutími. Eftir það hlupum við í gegnum búðina aftur,já hlupum útaf heimsendingartímanum, og reyndum að pikka upp allt það sem við mundum eftir og gátum haldið á heim. Allt í allt tók ferðin í IKEA um 6 tíma held ég og við erum agljörlega búin að fá nóg af þessari blessuðu búð! Ég ætlaði að bjóða Öglu í góðan kvöldmat en þar sem við komum heim eftir kl.5 þá var auðvitað búið að loka öllum búðum og það eina sem ég gat boðið uppá voru samlokur úr seven-eleven, það var þá flottur kvöldmatur. Kvöldið fór síðan í að setja saman húsgögn og hengja upp gardínur.
Það var aldeilis munur að fá að sofa í almennilegu rúmi eftir að hafa sofið í lengri tíma á þessum svefnsófa og íbúðin er öll orðin mjög hugguleg eftir að við fengum smá af húsgögnum. Ég er sérstaklega ánægð með að fá gardínur í stofuna því áður breiddum við fyrir gluggann með pappaspjöldum því við auðvitað sváfum í stofunni líka.
Þetta er allt að koma og búslóðin okkar kom í fyrradag. Ég verð samt að viðurkenna eftir því sem mann vantar minna af dóti og þetta verður hversdagslegra þá hverfur ævintýraljóminn....

21 janúar 2008

Sambandi náð!

Þá erum við loksins komin með netsamband!!!! Jejjjjj! !!!!
Þetta verður voðalega stutt færsla vegna þess að Einar þarf að fara að nota tölvuna við að læra í litlu kompunni sem hann er stoltur af að kalla skrifstofuna sína. Hvað get ég mögulega sagt í svona stuttum pistli þegar gjörsamlega allt líf mitt hefur umturnast á örfáum dögum?
Fyrsta daginn var ég eiginlega bara hálfútúr heiminum. Íbúðin galtóm fyrir utan einn svefnsófa í stofunni og veggfast eldhúsborð í eldhúsinu. Við erum hins vegar búin að bæta úr því og þetta er að verða smám saman heimilislegt. Mér finnst íbúðin frábært og ég verð að viðurkenna að hún fór framúr mínum björtustu vonum. Ég er búin að kynnast mínu allra nánast umhverfi lítilega þar sem við þurfum auðvitað að fara allt fótgangandi þar sem við erum ekki einu sinni komin með hjólið okkar. Meðan ég man við Einar æltum að stofna myndasíðu sem ég mun linka á hérna fljótlega.
Lífið og aðgerðaleysið er smám saman að venjast en vá hvað ég myndi ekki nenna að vera heimavinnandi húsmóðir til lengdar, henntar mér engann veginn. Ég er hins vegar búin að ákveða að taka lífinu með ró fyrstu vikurnar og æfa mig á dönskunni með því að lesa fríblöðin og ruslpóstinn :D
Fengum sjónvarp og net í dag og búslóðin er væntanleg á morgun. Ég er í basli með að koma símanum mínum í gagnið og það lítur út fyrir að ég þurfi að kaupa mér nýjan síma þar sem Vodafone hefur læst símanum mínum þó svo að ég hafi STAÐGREITT hann á sínum tíma. Fasistaf+&$=:@. Jæja þetta verður að duga í bili, kem með allar sólarsöguna eftir nokkra daga. Já og svo eru um að gera að bæta mér inná msn-ið ef svo ólíklega vill til að ég er ekki þegar þar karenolga@hotmail.com og skypið auðvitað líka karenolgaarsalsdottir og svo ef einhverjum leiðist virkilega virkilega virkilega mikið þá megið þið senda póst á mig á kareno@ru.is og ég verð rosalega þakklát fyrir hverja línu!
p.s. ástar-haturs samband mitt við IKEA er hafið.

14 janúar 2008

Birketinget 2b

Hérna eru myndir af íbúðinni okkar útí Köben.
Nú er spennan alveg að ná hæstu hæðum, vildi bara að þetta væri búið, vildi að morgundagurinn væri kominn! Búin að hafa alveg nóg fyrir stafni í dag eins og hina dagana en samt mikill léttir að vera búin að klára íbúðina og afhenda hana leigjendunum. Að hugsa sér að á morgun um þetta leyti þá verð ég mitt á milli Íslands og Danmörku þ.e.a.s. mitt á milli gamla heima og nýja heima. SPENNÓ! Það gætir hins vegar verið nokkur bið þar til ég kemst næst í netsamband en Einar verður bara að vera duglegur að uppfæra síðuna sína einaregilsson.com og þar verður þá hægt að nálgast fréttir af okkur í millitíðinni.

11 janúar 2008

Bara 4 dagar...

Er búin að vera að hamast við að klára íbúðina og útrétta allt sem þarf að gera áður en maður fer af landinu. Er búin að leigja íbúðina og nú er bara að reyna að selja bílinn án þess að koma út í mínus. Vala og Hjalti ætla að vera svo góð að hjálpa mér á morgun að klára að þrífa íbúðina og vonandi tekst það þó svo að þetta tekur ALLTAF lengri tíma en maður gerir ráð fyrir.
Vá hvað ég vona Sandra að það sem þú ætlir að segja mér sé það sem mig grunar.... ég mun fylgjast með síðunni þinni!

05 janúar 2008

Nú verður ekki aftur snúið...

Fórum með það sem við ætlum að flytja af búslóðinni niður í Samskip í gær og það sem okkur fannst vera svo mikið var ekki nema 1,66 rúmmetri og lágmarkið sem maður er látinn greiða fyrir er 1,5 rúmmetrar. Það voru alveg ótrúlegustu hlutir sem rötuðu ofan í kassa hjá okkur en viðhorfið hjá okkur var bara: ef þetta lætur okkur líða vel á einhvern hátt þá er það tekið með. Ég tók t.d. seglana af ísskápnum með því mér fannst það svo heimilislegt :)
Í dag er það svo að flytja öll húsgögnin í búslóðageymsluna og farangurinn til Tomma bró þar sem við verðum þar til við förum til Danmerkur.
Það eru nokkrir búnir að koma að skoða íbúðina og líst okkur misjanflega vel á umsækjendurna eins og eðlilegt er. Held við séum samt nokkurnveginn búin að ákveða hverjum við leigjum nema það komi þá einhver nýr að skoða í dag sem okkur líst betur á.

02 janúar 2008

Gleðilegt nýtt ár!

Nýtt ár, nýtt land og nýtt blogg!
Ég gafst alveg upp á bloggskriftunum þarna í lok síðasta árs enda var ég orðin dáldið útkeyrð og það hefði hvort sem er ekkert skemmtilegt komið út úr því. Jólin eru búin að vera frábær og mikil rólegheit þar sem við vorum búin að ákveða að geyma allt flutningsvesen þar til eftir jól. Nú er semsagt komið eftir jól og við erum á fullu að pakka niður og ég verð að segja að þetta er meira að segja erfiðara en ég átti von á. Hvern hefði grunað að maður væri svona tengdur gamalli salatskál og slitnum skóm? Það er svo skrítið að líta hérna yfir þar sem frekar lítið er eftir af dóti og veggirnir tómir. Held nú að Daníel verði hissa þegar hann kemur heim!
Við erum loksins búin að drattast að auglýsa íbúðina til leigu, ef einhver hefur áhuga þá ætlum við að leigja hana á 140 þ. með öllu nema geymslunni niðri sem við nennum ekki að tæma.

Íbúðin okkar í Kaupmannahöfn er rúmir 80 fm og 2gja herbergja. Ég myndi setja hérna nánari lýsingu ef ég væri búin að sjá hana en eins og er þá er ég að renna í þetta blint. Það eina sem ég veit er að hún er á 1.hæð það er útgengt útí garð og hún er hvít máluð :) Við verðum staðsett á Amager sem er eyjan við Kaupmannahöfn þar sem flugvöllurinn er.

Einar fer út 6. jan og við Daníel förum út 15.jan. Verð sennilega eitthvað netlaus til að byrja með en um leið og það verður komið í gagnið þá mun ég vera dugleg að setja hérna inn fréttir af okkur.


Vi ses!