Loksins kom barnið og það var gullfallega stelpa sem vó 3930 gr og var 53 cm. Hún er mjög ólík bróður sínum þar sem hún er dökkhærð og með dekkri yfirlitum en litli glókollurinn, bróðir hennar. Fæðingin gekk ótrúlega vel en ég ákvað að nýta mér þann lúxus að gista í 2 nætur á spítalanum áður en ég kæmi heim í jólin og orkumikinn stórabróður sem er í 2gja vikna jólafríi!
Læt fylgja með smá mynd og svo setjum við væntnlega inn smá myndaalbúm á næstu dögum.
2 ummæli:
Til hamingju elsku Karen, Einar og Daníel Máni. Hún er rosalega falleg. Hvenær fæddist svo stúlkan?
Kveðja Vala, Hjalti og Jökull
Innilega til hamingju með prinsessuna :) Greinilega alveg yndislega falleg...hlakka til að sjá fleiri myndir!!
Hafið það rosalega gott
Kv. Erna
Skrifa ummæli