Þá held ég við séum loksins að fara að sjá fyrir endann á þessu hlaupabóluveseni. Get ekki beðið eftir að senda barnið út, út út! Er eiginlega alveg sama hvort hann fer í leikskólann eða í skóginn bara út úr íbúðinni og út með Einar líka! Út með alla nema sjálfa mig til að ég geti fengið að vera ein með sjálfri mér. Mig langar bara að fá að vera aðeins í friði og hlusta á þögnina eða jólatónlist og ekki þurfa að standa upp á nokkura mín fresti til að gera þetta eða hitt sem umhverfið kallar á. Annars hef ég voða lítinn rétt til að kvarta því Einar er ekkert nema yndislegur og er búinn að reyna að vera heima eins mikið og hann getur til að létta undir hjá mér með veikt barnið og Daníel er líka búinn að vera algjör engill í þessum veikindum þó að honum líði nú sjálfum ekki vel. Mig vantar bara smá pláss til að anda og sleppa við áreiti. Ég get svo svarið að ég er farin að standa sjálfa mig að því að hanga útí búð lengur en ég þarf og bara dóla mér við að skoða vöruúrvalið! En því miður getur maður ekki hangið útí búð endalaust og ég hef takmarkað þol fyrir göngutúra og svoleiðis enda veðrið heldur ekki spennandi. Það sem verra er er að ég geri mér fullkomna grein fyrir hvað ég hljóma fáránlega en mig langar bara að njóta þessara síðustu daga áður en barnið kemur og maður er gjörsamlega hlekkjaður heimavið fyrstu vikurnar. Ekki að það sé ekki yndislegt líka en.... jæja þær/þið sem eigið börn vitið hvað ég meina.
Annars fór ég til ljósunnar í gær og barnið er búið að fastskorða sig en hjartslátturinn hjá því var heldur hraður þannig að hún lét mig liggja í nokkrar mínútur og prófaði svo aftur. Hann var aftur heldur hraður en eftir smá bumbustrokur og rólegt tal þá róaðist barnið. Því hefur örugglega bara ekkert líkað þetta pot og káf enda var Jóhanna að kenna mér að finna hvar hitt og þetta er á barninu og hvar Einar getur lagt eyrað við til að heyra hjartsláttinn. Blóðþrýstingurinn hjá mér var líka fínn en ég er hins vegar lítið að þyngjast (nammi og gos er rándýrt hérna) en hún sagði að það væri eðlilegt að léttast á síðustu metrunum. Að lokum mat Jóhanna að Lille væri í kringum 3000 gr núna þannig að ef það er rétt þá eru ekki miklar líkur á að það nái stóra bróður í fæðingarþyngd. Allt finnst mér þetta benda ótvírætt til að hér sé stelpa á ferðinni.... á maður að þora að vona?
05 desember 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hehe:) Er svona mikið verið að vonast eftir stelpu? Æ hvað ég vona að Daníel nái sér fljótt, skil vel að þú viljir smá rólegheitatíma áður en krílið mætir á staðinn!
Unnur.
það væri nú gaman að fá stelpu víst maður á nú einn gaur fyrir ;)
Annars er Daníel alveg búinn að ná sér en sárin eru enn að gróa þannig að hann fær bara að þvælast um með mér í bænum í dag.
Skrifa ummæli