Á leið minni í þvottahúsið í gær hitti ég gamlann mann sem var að taka til í geymslunni sinni. Hérna er siður að tala við alla næstum því sem verða á vegi manns og þá einkum ef þeir eru nágrannar. Ég spjallaði aðeins við hann, á dönsku auðvitað, og sá að hann var að fara að fleygja gömlum dönskum bókum. Ég fékk að hirða nokkar bækur og nú hef ég aðeins kröfuharðara lesefni en metro-blöðin.
Anyways ég ætla að nefna nokkra hluti sem eru öruvísi hérna en heima ef einhver nennir að lesa það. Mér finnst þetta allavegana skemmtilegt og elska að pæla í þessu.
- Við hliðina á húsinu okkar er pappírsgámur og stampur fyrir notaðar rafhlöður. Mjög kúl.
- Bakvið hús er svæði þar sem maður getur losað sig við stórt rusl (storskrald) eins og húsgögn og fl. Þetta er síðan hirt á 4 vikna fresti. Eins má maður hirða af þessu svæði ef manni líst á eitthvað. Skemmst að minnast Öglu sem ferðaðist yfir hálf Köben með stórann spegil.
- Móttaka fyrir dósir og flöskur er fyrir utan supermarkets. Vélarnar virka þannig að maður lætur flöskurnar á færiband og strikamerkið á umbúðunum er skannað inn og þannig fæst rétt verðmæti fyrir flöskurnar. Stórar plast (kók) 3 kr. dósir og litlar flöskur 1,5 kr. Svo fær maður miða úr vélinni með strikamerki sem maður notar síðan til að borga uppí með í búðinni.
- Ef maður fer í Fakta eða Nettó og borgar með klinki þá hendir maður því í vél og fær til baka klink í hólf fyrir neðan. Eins fær maður til baka klink á sama hátt ef maður borgar afgreiðslumanninum með seðli.
- Það er margt mjög rafrænt hérna og maður sækir um digital signiture kóða hérna og getur þá t.d. sótt um leikskólapláss rafrænt og fylgst með umsókninni á netinu í staðinn fyrir að vera alltaf að hringja og spyrja.
- Furðulegir hlutir úr búðum. Í bilka er stórt ávaxta og grænmetistorg og þar er vélbúnaður í loftinu sem sér um að senda reglulega raka gufu yfir svæðið. Fannst þetta alveg skrítið fyrst en núna tekur maður ekki einu sinni eftir þessu.
- Skyndibitastaðir. Maður pantar og borgar og fær svo token (stór plastpeningur). Þegar pöntunin manns er tilbúinn þá pípir peningurinn og blikkar rauðu ljósi. Mjög kúl.
- Furðulegar matvörur. Niðursoðnar pylsur af öllum stærðum og gerðum. Gott ef maður hefur ekki kæli en lítur mjög ógyrnilega út.
- Frosnar súpur. Þetta er stórir klumpar í frystivörudeildinni.
- Flest grænmeti og ávextir eru seldir í stykkjatali. Sumt er samt eftir vikt og maður þarf alltaf að vera vakandi því maður á að vikta sjálfur í grænmetisdeildinni.
- Hitanotkun (heitt vatn á ofna) er mælt með utanáliggjandi mælum sem eru festir á alla ofna.
- Danir hafa ekki uppgötvað skaðsemi ljósabekkja og það eru margar, margar ljósastofur hérna. Flestar eru þær sjálfvirkar og bekkurinn virðist fara í gang eftir því hvað maður lætur mikinn pening í sjálfsalann.
Jæja læt þetta duga í bili. Það er örugglega margt fleira skrítið hérna en ég er sennilega bara búin að venjast því og tek ekki lengur eftir því.
Við Einar áttum síðan 8 ára afmæli í fyrradag og Agla kom að passa. Við fórum út að borða á litlum grænmetisveitingastað og fengum okkur síðan kaffi á kaffihúsi á bakaleiðinni. Vorum eitthvað að bera þetta saman við heima og svona kvöld hefði kostað okkur sennilega tvöfalt meira heima. Svona á þetta að vera. Maður á að geta farið út að borða án þess að fara á hausinn.
5 ummæli:
Þú værir örugglega orðin ansi þreytt á breytilegu veðurfarinu hérna síðustu daga...í tvo daga var eins og það væri komið vor...og svo kom auðvitað snjórinn og að lokum rigning eins og þetta er búið að ganga undanfarið :)
Til hamingju með 8 ára afmælið!
Kv. Erna
p.s gangi þér vel að lesa :)
hæhæ já ég veit ég get nú als ekki kvartað miðað við það sem er í gangi heima :-) Hvernig er annars heilsan hjá þér Erna mín? Hefurðu eitthvað heyrt í Teddu?
1. stk komment bara fyrir thig vina min hehehehe...
Sa ekki crosant deigid i budinni minni. Kaupi sko massavis af thvi næst thegar eg kem i heimsokn.
Takk fyrir dekrid
Luv u
kv laza laz
æ leiðinlegt. ég er meira að segja búin að finna annað svona crosant kitt og þá lítur þetta meira út eins og rúllutertubrauð. Ég hef alltaf fundið þetta annaðhvort hjá ferska pastana eða morgunverðarvörum eins og pylsum og beikoni ;-)
kannski ad thetta fáist i tyrkjabudunum herna. En hvenær kemur næsta bloggfærsla... ahaaa einn bloggfærsla fyrir hvert comment. skuldar 2!
Er ad fara til spanar a midvikudaginn. Mun senda nokkra solargeisla til danmerkur.
Kiss og knus
senjorita lara
Skrifa ummæli