29 janúar 2008

Matvöruverslanir og fleira.

Það er margt nýtt sem fyrir augu ber þegar maður flytur burt af litla skerinu okkar meir að segja þó það sé ekki lengra en hingað til Köben.

Manni finnst allt hérna ganga útá að spara sem eru auðvitað als ekki svo vitlaust. Ef maður sparar eða réttara sagt fer vel með peningana sína þá þarf maður ekki eins mikið af þeim og þá er kannski síður hætta á að fólk falli í hringiðu lífsgæðakapphlaupsins sem við Íslendingar erum oft kennd við. En aftur að sparnaðinum. Matarverð er almennt aðeins lægr en heima en það er líka af því að það er meira úrval af non-brand vörum sem eru oft á tíðum ekkert síðri. 2gja lítra kók eða sprite er kannski á 18-19 kr en ef þú kaupir non-brand coop límonaði þá er það ekki nema 9,50 kr og er bara mjög gott. Það er sama hvaða búð maður fer í, það gengur allt útá magninnkaup. Á verðmiðum stendur stórum stöfum alltaf verðið á tveim eða fleiri pakkningum og til hliðar stendur með litlum stöfum stykkjaverðið og hvað maður er að spara mikið með því að kaupa tvennt eða fleiri pakka í einu. Á kjöti stendur oft 5 pakkar á xx verði. Hver kaupir ekki t.d. 5 pakkningar af 800 gr. svínahakki og við skulum ekki gleyma að það þarf að halda á þessu eða hjóla með þetta heim. Ég vil oft láta freistast með svona magntilboðum en oftast nær skynsemin yfirhöndinni þar sem ég hugsa "ok, þarf ég virkilega 3 pakka af snakki?" Grænmeti og ávextir eru oftast merktir með stykkjaverði og þá hljóma tilboðin eins og 10 bananar á 18 kr í staðinn fyrir 20 kr þú ert að spara 2 kr! Það eina sem ég hef ekki enn séð á svona magntilboði eru mjólkurvörur, sem eru ekki niðurgreiddar, nema þá ostur og hann er þá oftast á einhverju tilboði. Það er líka fyndið með tilboð, danir virðast næstum því ekki kaupa hluti nema þeir séu á tilboði og ég hef heyrt sögur um fólk sem keyrir milli verslana í eltingaleik við tilboð í stórmörkuðum.
Það er tvímælalaust önnur menning í matvöruverslunum hérna en heima. Matvöruverslanir eru opnar frá 8/9-20 alla virka daga og á laugardögum frá 10-17 og lokað á sunnudögum. Þetta kemur af því að stórmörkuðum eru settar ákveðnar reglur um opnunartíma til að vernda smákaupmennina sem hafa leyfi til mun rýmri opnunartíma. Sunnudagsopnanir í almennum verlunum eru auglýstar sérstaklega og það er þá yfirleitt fyrsti sunndagur í hverjum mánuði. Það tók smá tíma að venjast þessu en þetta er bara af hinu góða enda er full vinnuvika hjá dönum 38 tímar á viku í stað 40 hjá okkur og oft er yfirvinna ekki leyfð.

Hérna í lokin eru nokkur verðdæmi 1 Dkr er ca.12,8 ISK

1 l jógúrt 14,5 kr.
Philadelphia smurostur 14,95 kr
300 gr kokteiltómatar 15 kr
Colgate tannkrem triple action 2pk. 19 kr.
ca.800 gr. kjúklingabringur (4-5 stk) 64,50 kr.
1 stk banani 2 kr
Rucola salat meðalbakki 12 kr.
Frosið hvítlauksbrauð 3stk. 15,95 kr.
Svína panna (tilbúinn réttur dugar fyrir 3) 40 kr

Það sem ber að taka fram að þessi verðdæmi eru tekin úr ódýrari verslunum sem jafnast á við Krónuna og Bónus. Ef þú kaupir gos í flösku sem er með pant (skilagjald) þá ertu rukkuð fyrir pantið í búðinni (3 kr) en færð það síðan til baka þegar þú skila inn flöskum. Þetta er auðvitað gert til að hvetja (humm.. neyða?) fólk til að endurvinna. Sælgæti á svipuðu róli og heima því "sykurskattur" er mjög hár hérna, en við látum það nú ekki stoppa okkur. Fleiri staðreyndir um matövurverslanir t.d. nýjustu tækni í búðarkössum má finna á síðunni hans Einars

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jökull á svona röndótta HogM húfu en týndi vettlingunum fyrir löngu. Þetta sýnir enn og aftur hvað Daníel Máni er klár og eftirtektarsamur. Hvernig gengur að venja daníel á klósett? Þetta gengur framar öllum vonum hjá okkur. Nú er hann alltaf bleyjulaus á daginn en slysin gerast nú samt með reglulegu millibili.

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Þetta er alveg komið með klósettið en hann hefur hins vegar litla þolinmæði til að bíða eftir nr.2 og það getur tekið margar ferðir til að klára. Hann vill bara að þetta komi strax eins og pissið.

Nafnlaus sagði...

Já sama með Jökul - erfitt að bíða eftir nr. 2. Við höfum stundum hreinlega boðið honum bleyju þegar hann hefur beðið um að fá að fara á klósettið á mínútu fresti og ekkert gerist. En hann harðneitar bleyju og þetta tekst allt að lokum.

Við stelpurnar ætlum að hittast á morgun á kaffihúsi. Hefði verið gaman að hafa þig með en við hugsum bara til þín.

Nafnlaus sagði...

Svo er bara að skella sér til Þýskalands og versla gos og bjór eins og Danirnir - algjörlega ódýrt :)

og passaðu þig á ostinum - megnið af ostunum hérna eru mjög illa lyktandi og bragðandi.

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

hahaha! Ég er sko alveg búin að komast að þessu með ostinn. Almennareglan hjá mér er því hærri fituprósenta í niðursneiddum osti því betra. Ef hann er fitulítill þá er hann eins og plast.
Við vorum á tímabili komin með 4 tegundir af osti í ískápinn en ég hef ekki enn lagt í annað en brauðost, úrvalið er einfaldlega of mikið að ég fyllist valkvíða við að horfa á ostadeildina.