Allt gott að frétta héðan og vorið er nú loksins komið fyrir alvöru og trén að fá falleg lauf og allt að lifna við. Það er nú samt ekki orðið neitt voðalega hlýtt og það hangir við svona 12-14 stig sem er ekkert voðalega heitt þar sem rakinn hérna er meiri en heima og það fylgir líka oft kaldur vindur. Þetta er nú samt nóg til að vera útí almenningsgörðunum á teppi svo lengi sem maður er ágætlega klæddur. Daníel svaf meira að segja um daginn hádegislúrinn sinn útígarði við hliðina á mér meðan ég var að lesa dönskubókina mína. Við erum ekki enn búin að heyra fréttir af því hvenær Daníel fær pláss á leikskólanum en í millitíðinni erum við búin að finna innileikstofu sem við förum á tvo morgna í viku og það er mikið stuð þó svo að hann sé nú enn sem komið er dáldið feiminn við hin börnin.
Annað sem er helst í fréttum er að við erum loksins búin að selja bílinn okkar hehe eða réttara sagt yfirfæra lánið á annan aðila þannig að við flytjum bílinn ekki út eins og þetta var farið að líta út. Ég kalla það bara gott að hafa selt bíl á erlendu láni á þessum síðustu og verstu en það eru greinilega ekki allir eins svartsýnir.
Við erum síðan búin að bóka flug "heim" 28.júlí - 11. ágúst. Jejj! Þetta er besti tíminn því þá er einmitt von á tveim nýjum krílum í heiminn, get ekki beðið.
p.s. nýjar myndir komnar
24 apríl 2008
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Ótrúlega sætar myndir og gaman að fá smá fréttir:)
Við hlökkum til að hitta ykkur í sumar!!
Knús,
Unnsa og strákarnir.
Er Daníel eitthvað farinn að geta tjáð sig við hin börnin? Börn eru svo ótrúlega fljót að læra ný tungumál, væri aldeilis munur ef fullorðnir væru jafn fljótir ;)
Ot til hamingju með að hafa selt bílinn...
Væri annars gaman að sjá framan í þig í júlí :)
Kv.Erna
Skrifa ummæli