04 maí 2008

Bara þetta venjulega

Svo er ekkert sérstakt að frétta nema að veðrið batnar og batnar og núna kl. ca 9 er 11 stiga hiti úti og á að vera 17 í dag þannig að við Daníel ætlum að eyða deginum utandyra eins mikið og hægt er en Einar verður víst inni að læra eins og venjulega. Einar er voðalega duglegur finnst ykkur það ekki? Ég gerði smá suprize fyrir hann og pantaði fullt af íslensku nammi frá nammi.is og Séð&heyrt fyrir litlu slúðurkellinguna (hann ekki mig!).
Við mæðginin eigum líka pantað far til Póllands 21-28 maí þar sem við ætlum að hitta aðeins fjölskylduna og hanga uppí sumarhúsinu meðan að Einar verður hérna að strita í vorprófunum. Það er nú alveg ótrúlegt hvað það er ódýrt að fara til Póllands þegar maður er hérna í DK. Ég pantaði mér far fyrir rúmar 820 DKK! Ekki neitt! Það verður gaman að fara uppí Izabelin og Daníel er mjög spenntur. Það sem mér finnst mesta snilldin við að taka flug héðan er að til að fara uppá flugvöll (ég bý reyndar ekki svo langt frá) þá tekur maður bara metroinn og ég er svona 10-12 mín að labba uppá stöð og svo ca.12 mín í metró og þá er maður kominn beint inní flugvallarbygginguna og þarf bara að taka lyftu og maður er kominn inní check-in. Svona á þetta að vera. Hvenær kemur svona lest milli Kefl og Rvk???
Daníel hefur síðan verið boðaður í fyrstu tannlæknaheimsóknina sína núna 7.maí og hann er mjög spenntur að sýna tannlækninum fínu ljóna-tennurnar. Ég er líka mjög spennt.... mjög spennt hvernig ég ætla að klóra mig úr samtali við tannsa á dönsku en það er bara áskorun :-D

5 ummæli:

Vala sagði...

Hæ hæ
Já það er sko áskorun að tala um eitthvað svona sérhæft á dönsku eins og tannlæknaheimsókn óhjákvæmilega kallar á. Þú reddar því eins og ekkert sé. annars öfunda ég þig ekki að fara til tannlæknis með hann - vonum bara að hann sé meðfærilegri en Jökull. Jökull datt nefnilega á tönnina og við vorum hrædd um að rótin myndi deyja hann þurfti því að fara 2 x til tannlæknis. Hann sem er alltaf svo rosalega þægur og stilltur hjá læknum og gerir allt sem hann er beðinn um, en hjá tannlækninum leist honum ekki á blikuna. Hann leyfði tannlækninum að skoða tennurnar en þegar hann ætlaði að taka mynd þá fríkaði hann alveg út. Annars er komið íslenskt sumar - geggjað veður á fimmtudaginn, sólbað og allt en í dag var svalt og rigning. Hafið það gott.

Kveðja Vala

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Eru plönin um danmerkuferð alveg dottin uppfyrir? Ég vona allavegana að þið verðið eitthvað í fríi meðan að við verðum á landinu ;) Strákarnir verða fá að hittast eitthvað almennilega. Hvernig væri nú að kíkja einstakasinnum á skypið? humm...?

Alda Berglind sagði...

Ha...? Les Einar Séð&Heyrt ???

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

ohhh Alda mín, how little you know!

Vala sagði...

Já við hreinlega gáfumst upp á að hugsa um Danmörk - fjárráðin hjá okkur leyfa ekki þessar gegnisbreytingar. Við erum búin að leigja okkur sumarbústað rétt hjá Egilsstöðum í eina viku sem sárabót. Annars er ég akkúrat búin í sumarfríi þegar þið komið heim. Glatað - ég er allan júlí í fríi. Við hittum Unni, Friðrik, Tómas (og bumbuna) í Smáralind. Þá fór Jökull að spyrja út í Daníel Mána. Við verðum að leifa þeim að leika sér saman. Ykkur er að sjálfsögðu velkomið að gista hjá okkur þegar þið eruð heima. Bara svo að það sé á hreinu. Annars er ekkert að frétta. við stelpurnar höfum lítið hist. Steina er að læra og skrifa á fullu þannig að hún verður ekki viðræðuhæf fyrr en í lok maí/byrjun júní.