13 júní 2008

3 ár!


Hvað var ég að gera fyrir 3 árum? Ég var að strita við að koma yndislega stráknum mínum í heiminn og viti menn hvað tíminn líður og pjakkurinn bara orðinn þriggja ára! Maður er endalaust þakklátur fyrir þennan litla engil þó svo að hann reyni auðvitað oft á þolinmæði okkar foreldranna. Ég fékk hreint og beint kökk í hálsinn þegar hann var í morgun að hlaupa um og leika með afmælisblöðrurnar meðan "Ég er furðuverk!" ómaði í græjunum. Svo sannarlega stund til að muna :)

2 ummæli:

Vala sagði...

elsku kallinn orðinn 3 ára pjakkur - þetta er alveg hreint ótrúlegt hvað þetta líður hratt. við hefðum nú svo verið til í að vera með ykkur á föstudaginn. Vonandi fékk hann gjöfina frá okkur. Ég sýndi Jökli myndina af honum og hann bað mig að ger amyndina talandi - þannig að nú ætla ég að setja skypeið inn á fartölvuna sem við erum miklu oftar í. Þá er smá von á að hittast og tala saman. annars verður sko fínt að hitta ykkur í eigin mynd þegar þið komið. Kysstu 3 ára strákinn frá mér.

Kveðja Vala

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með litla gaurinn þinn um daginn :) Trúi að þetta sé fljótt að líða, verð líklega kominn með minn í hendurnar áður en ég veit af ...og meðgangan búin að líða ekkert smá hratt!!
Styttist óðum í heimförina...:)
Kv. Erna