07 febrúar 2008

Maður er alltaf að læra

Svona áður en ég gleymi því þá hef ég ekki ennþá fengið bréf frá Danske Bank sem mér var lofaði í síðustu heimsókn. Ég er núna að vinna í því að fá Einar til að skipta um banka og er að spá í að reyna kannski við Nordea eða kannski ætti maður að gera eitthvað af viti sækja um hjá einhverjum af minni bönkunum, þeir hafa þá kannski tíma fyrir mig og mín viðskipti?
Anyways það er búið að vera svo yndislegt veður í dag og meira að segja heiðskýrt og við erum búin að vera meira og minna úti allan daginn. Um morguninn fórum við í stóran garð með rosalega fallegri tjörn og skemmtilegum leiktækjum og síðan röltum við yfir í grasagarðinn sem er risastór og við náðum ekki nærri því að skoða hann nógu vel. Seinna um daginn fórum við síðan á róló og síðan út að hjóla. Lexía dagsins er hins vegar að fara ekki með Daníel út að hjóla ef hann hefur ekki sofið neitt um daginn. Ég var í miðjum hjólatúr lengst út á Amager-fælle þegar ég fatta það að strákurinn er steinsofnaður aftan á hjólinu og gjörsamlega hangir á beltinu einu saman með hausinn lafandi. Mér tókst ekki með nokkru móti að vekjann þannig að ég átti engra kosta völ en að hjóla bara hratt heim aftur með hann hangandi því ég hefði verið heila eilífð að teyma hjólið alla leið til baka.
Ég er bara farin að bjarga mér ágætlega á dönskunni nema við fýlupúkana sem hafa ákveðið fyrirfram að gefa mér ekki séns og þykjast ekkert skilja hvað ég er að segja. Flestir eru hins vegar mjög fínir og brosa bara ef maður segir einhverja vitleysu. Ég er hins vegar á leiðinni á morgun í Köbenhavns Sprogcenter að fá viðtal við ráðgjafa þar sem dönskukunnátta mín verður metin og ákveðið í hvaða stig af dönskunámskeiði ég verð látin byrja í. Hlakka mikið til að hafa eitthvað fyrir stafni.
Við erum líka búin að komast að því að hérna á Amager er allt að gerast. Amager fælle sem ég nefndi áðan er risastórt óbyggt svæði sétt hjá okkur og það er friðað fyrir fuglalíf. Þar er hins vegar búið að búa til stíga og nokkur svona svæði þar sem fólk má vera en maður verður að fara fótgangandi eða á hjóli því þetta er nú einu sinni friðlýst svæði fyrir villta fugla. Síðan ef maður tekur metróinn 4 stöðvar frá okkur og gengur í 10 mín þá er maður kominn að Himmelhoj sem er sérstakt leiksvæði fyrir krakka og reyndar hópa t.d. skólaferðalög. Auk þess er margt annað skemmtilegt hérna eins og lesa má hérna.
Þannig að við erum alltaf að uppgötva meira og meira hvað er í kringum okkur og við Daníel höfum nóg að gera við að kanna þetta meðan að Einar er í skólanum eða vinnunni.

Ég er búin að búa til smá kort í Google maps þar sem ég er búin að merkja inn allt það helsta sem við kemur okkur hérna í Köben.
View Larger Map

Nú er bara spurningin: Hver ætlar að koma að heimsækja okkur um páskana?

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er á leiðinni til Köben með mömmu eftir 2 vikur:) Vona að ég sjái ykkur eitthvað þá!!

Knús,
Unnur.

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Meiriháttar! Hlakka til að sjá ykkur.

Nafnlaus sagði...

maður fær bara í magann á að lesa þetta ævintýri. þetta er mjög áhugaverður lestur og ég og harpa værum alveg til í svona íbúð eins og þið eruð í. var þetta ekki annars íbúð frá leigumarkaðinum?

gangi ykkur vel og sjáumst vonandi í maí, ég hugsa að við öll kíkjum