19 júlí 2006

Sól og blíða á Austurvelli


Ohhhhh.... sól....sumar og blíða. Það er alveg geggjað að vinna niðrí bæ þegar það er svona gott veður. Við tókum okkur alveg extra langann matartíma í dag og settumst út á Austurvöll (nema hvað) og nutum veðurblíðunnar. Við Erna vorum meira að segja svo djarfar að skreppa í Ríkið og fá okkur sinnhvorn öllarann til að hafa með út. Ég luma á leyndarmáli í sambandi við Ríkið í Austurstræti. Við urðum nefnilega fyrir vonbrigðum þegar við sáum að það var enginn kælir í búðinn og létum áhyggjur okkar í ljós við starfsfólkið. Gaurinn var ekki lengi að redda því og leiddi okkur rétt á bakvið þar sem var bara svona risastór heimilisískápur stútfullur af alskyns bjór og sulli. Við tókum gleðina og ný í formi ískalds Millers og valhoppuðum glaðar í bragði niður á Austurvöll.
Eins og venjulega var alveg pakkað þarna og það er svo gamana að líta yfir hópinn sem þarna er samankominn því þar er allt frá jakkafata-bissness-köllum til andspyrnu-pönkara og allir eru þarna samankomnir til að njóta þessara örfáu sólargeilsa sem láta sjá sig. Stemmningin er engu lík og litli grasbalinn var pakkaður eins og gerist svo oft á svona sólskynsdögum.
Í kvöld er ég svo að spá í að plata hana Völu mína með mér í hjólatúr inn voginn til að fá eins mikið og ég mögulega get út úr þessum degi. Vonandi heldur þetta svona áfram, humm... ætli sumarið sé þá loksins komið?

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jújú, bara bjór og ís og stuð í landsbankanum! Þú verður að skrifa meira, vantar eitthvað að lesa hérna heima á daginn!

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Já þú meinar þá að ég ætti að vera að blogga meira á vinnutíma því ef ég er heima og hef eitthvað að segja þá segi ég þér það bara :)