
Við Einar erum að fara í smá frí saman bara tvö ein um páskana. Við förum semstagt eldsnemma um morguninn til Amsterdam og verðum þar í 2 nætur og á laugardeginum ætlum víð síðan að skreppa til Antwerpen í Belgíu að heimsækja Öldu og Wannes. Það er búið að redda pössun fyrir Daníel og nú er ekkert annað að gera en að telja niður dagna!
Þetta verður frábært og ekki seinna að vænna að við hjónin fáum að skreppa í smá rómóferð. Við erum þegar búin að tryggja okkur gistingu á litlu hóteli í miðbænum og þaðan er nú stutt í allar áttir.
5 ummæli:
hæ, vildi kvitta fyrir mig og lýsa yfir öfund að þið skuluð vera að flakka svona :)
Væri ekki verra að skjótast í rómó ferð svona um páskana. góða ferð
ég tel dagana líka... Hlakka rosa til að fá ykkur.
Tóti: Þið Harpa verðið endilega að skella ykkur áður en litli/litla kemur í heiminn ;)
Alda: Okkur hlakkar líka rosalega til að koma og sérstaklega að vera í súkkulaðilandinu á páskunum!
Ég neita að taka með mér páskaegg nema þá kannski eitt handa þér ;) Ætla að fá mér ekta Coted´Or (fílakarmellusúkkulaði)súkkulaðiegg eða kanínu eða hvað sem það nú verður!
Þið kaupið egg handa okkur og við kaupum egg handa ykkur... hvernig líst þér á það?
DÍLL! Mig grunar nú samt að Einar muni halda sig við rjómasúkkulaðið... hehe
Skrifa ummæli