Jæja þá er loksins búið að hanna enskan texta og myndband Júróvisíon lagið okkar. Á ensku heitir það víst Valentine lost. Fannst það best eins og Dr,Gunni sagði það: þetta er kannski einhver hundur sem hann týndi einu sinni!Ég veit nú ekki hvað skal segja um þetta lag enda náði ég textanum ekki fyrir fimmaur. Mér fannst myndbanið heldur ekki skemmtileg enda veit ég ekkert ljótara en íslenskt landslag koma undan vetri, algjörlega litlaust og líflaust. Fyrir utan það þá minnir Eiríkur mig á breskan seiðskratta í þessu myndbandi með hreyfingum sínum og takið sérstaklega eftir framburðinum. Myndbandið er líka alltof drungalegt fyrir svona keppni sem er nú einmitt þekkt fyrir austurevrópskt gleðipopp! Við sjáum hvað setur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli