01 nóvember 2007

Skíííííííííííííítakuldi og heimsókn

Það er kalt, kaldara, kaldast hérna heima hjá okkur Daníel þessa dagana... eða réttara sagt bara frá því að það fór að kólna svona almennilega í veðri á þessu skítalandiþarsemeraldreigottveður og ég hata, hata, hata hvað það þarf mikið bras til að laga það - sérstaklega þegar maður er einn með barn. Þannig er að stóri ofninn í eldhúsinu virkar ekki og ekki heldur annar ofninn í stofunni og varla ofninn inná baði. Til að bæta gráu ofan á svart þá er svalahurðin orðin svo óþétt að það bókstaflega gustar inn þó að allt sé lokað og harðlæst. Ég hef EKKI góða reynslu af iðnaðarmönnum en kann ekki handtak í þessu sjálf og því miður er ég ekki beint með sæg af laghenntum karlmönnum í kringum mig frekar en vanalega. En þetta verkefni kallar víst á pípara sem aftur kallar á að ég verði annaðhvort enn einn daginn heima eða fari á milli sem er ekki nema korter hvora leið + hálftíma í að finna bílastæði. Ég er svo ekki að nenna þessu gott fólk.....
Að skemmtilegri hlutum. Á sunnudagsmorgun var dinglað á bjölluna hjá mér. Hver getur verið svona snemma á ferð á sunnudegi hugsa ég þar sem ég geng hálf stirð á náttsloppnum til dyra. Þegar ég opna fram í andyrið sé ég einhverja stelpu hoppandi og skælbrosandi fyrir utan og er dálitla stund að fatta að þetta var EBBA vinkona/frænka/fyrrverandi skólasystir og nágranni. Ég fékk SJOKK! Ekki bara af því að Ebba á svona yfirleitt að vera í Danmörku heldur var íbúðin líka í rúst eftir ömurlega viku hjá mér. En hvað um það, Ebba kom færandi hendi með sunnudagsbakkelsi og sitt einstaka góða skap. Ég get ekki lýst því hvað það var gaman að sjá hana svona óvænt. Það er eitthvað við æskuvinkonur sem er alveg einstakt eins og við Ebba vorum að tala um. Jú, auðvitað getur margt annað gott fólk komið til seinna á lífsleiðinni en það hefur enginn tærnar þar sem Ebba, Lára og Sandra hafa hælana og þess vegna finnst mér alltaf svo óendanlega leiðinlegt hvað þær eru allar langt í burtu. Ég held að það sé eitthvað við að kynnast svona ungar þegar maður er í raun bara ennþá autt blað og saman myndar maður sér skoðanir og á sama tíma verður sér út um reynslu sem maður deilir með hinum og verður fyrir áhrifum frá. Ohh... það er svo margt sem skýst uppí huga minn þegar ég hugsa um allt sem maður hefur lent í með þessum skvísum. Ef ég ætti að nefna nokkur dæmi: Samstæðu Lottó-gallarnir, tjaldútilegur útí garði, 17.júní, í ljósum undir skrifborðslampanum, skipt um kjól á miðju MK-balli, Eurovision og Grees dýrkun, Tequila og kippa af bjór, skátarnir, fatapóker, pissustæði með útsýni yfir allan Hafnafjörð, '80-böllin, peningablóm og margt fleira. Ég get ekki beðið eftir að komast út til Danmerkur þó það væri ekki nema bara til að fá að hitta Ebbu og Láru reglulega.
Síðan það var svona kalt hérna þá er ég búin að vera að skoða og lesa aftur bókina "Hot drinks on cold nights" og það eru ekkert smá girnilegir dykkir sem verið er að kynna í þeirri bók. Ætla að fara útí búð á morgun og kaupa kanel stangir, chillie, engifer og anís. Einn af drykkjunum sem ég sá var mjög einfaldur. Bara flóuð mjólk með sykri og smá anís... hljómar vel sem drykkur yfir góðri bók fyrir svefninn. Annar sem ég sá var heitt súkkulaði úr hvítu súkkulaði með smá saffron. Þriðji sem mér finnst reyndar líka mest spennandi eru seiði eða "infusion" þar sem kanill, engifer, chillie og döðlur er soðið sama með smá sykri. Það er allavegana af nótu að taka.
Bráðum kemur sweet helgarfrí en ég hef bara ekki hugmynd um hvað ég eigi að gera af mér/okkur. Ég ætla svo sannarlega ekki að treysta á veðrið frekar en venjulega, er það bara ég eða er virkilega búið að vera skítaveður síðasta mánuðinn? Ég gæti trúað að ég myndi leigja mér það sem ég á eftir að horfa á af Grey´s þar sem ég er búin með alla þættina mína og hef horft á síðsutu tvo í gegnum netið í ömurlegum gæðum (jebb, mjög desperatos).

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æjji sæta min... Hlakka svo til að sjá þig í Danmörkinni, þó fyrr hefði verið. Hehehe fyndið þetta með æskuvinkonur, þið Ebba verðið alltaf Bestar! og fyndin atriði sem við höfum upplifað saman, sérstaklega að vera í ljósum undir lampanum, finnst eins og það hafi gerst í gær hehehe...
Eg hef aldrei heyrt um að þér sér kallt vina mín... en þú verður bara að kveikja á kertum (ótrulegt hvað kerti geta verið miklir hitagjafar) klæddu þig annars vel og farðu vel með þig litla mín.
Knús og kram frá Baunalandi
Lára

Unknown sagði...

Hae gella

Hugsa oft um thessi trylltu tequila kvold :oD

Eg aetti bara ad flytja til Danmerkur lika :o) vaeri alveg til i thad i nokkra manudi.Er svo sem til i flest.
Skelltu ther bara ut a leigu og taktu heila seriu og hafdu thad kosy um helgina i thessum kulda.
xoxoxoxoxoxoxoxoxox

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Takk Lára mín, kertaráðið var notað óspart en svo kom besti tengdapabbi í heimi og barasta gerði við allt!

Sandra: ég er frekar til í að koma í sumar og sól til þín frekar en að horfa á Grey´s hérna í kuldanum.

Unknown sagði...

AE thad er nu buin ad vera bolvud rigning undanfarid, ekkert spenno en vonandi fer ad stytta upp. En skelltu ther bara um jolin (ja eda bara hvenaer sem er) thad er nog plass :o)

Kleina sagði...

Sumar vinkonur sem maður kynntist nú BARA þegar maður var 13 ára, (sem drukku nú LÍKA með þér tequila og fóru á gelgju pilsner fyllerí með þér og Láru og Ebbu) kunna nú samt greinilega að velja handa þér bækur HAH!!!

hnusss og n.b. ég þekki persónulega 2 pípara sem eru rosa næs og stökkva oftast til...

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Æ... Steina mín. Þetta er bara ekki það sama en bókin hitti svo sannarlega í mark!

Kleina sagði...

piff,,,