13 ágúst 2006

Fínasta helgi

Á föstudaginn héldum við party og buðum gömlum skólafélögum Einars úr HR. Þetta var mjög fínt og rosalega skemmtilegur hópur sem auðvelt er að falla inní. Partýið var síðan búið kl 2 og allir reknir út, fjórum tímum síðar var ég vöknuð eiturhress með Daníel. EITURHRESSSSSS!
Í gær fengum við svo Atla "litla" frænda hans Einars sem er nú samt að verða stærri en hann btw Einar er 1,87 m! Við grilluðum og tókum svo 40 year old virgin sem er bara geðveikt fyndin mynd. Við vorum í hláturkasti næstum því allann tímann. Eftir myndina vorum við síðan eitthvað að ræða kalla og vaxmeðferðir og hvort að þeir gætu farið í svona brazilian. Þá kom Atli með frábæra setningu: Ef einhver kæmi með vax nálægt pungnum á mér þá myndi sá sami vera skítandi kertum næstu vikurnar!!! Mér finnst þetta alveg brilljant :D Já, það er gaman að fylgjast með þessum litla frænda hans Einars þroskast og verða fullorðinn. Ég man ennþá eftir honum þegar hann var 11 ára tittur (fyrir rúmum 6 árum) að vara mig við að fara ekki illa með frænda hans annars væri honum að mæta ;-)
Ég furða mig stundum ennþá á því hvernig ég hélt út þarna fyrstu vikurnar með Einari. Atli alltaf límdur við okkur eins og frímerki og Alda að springa af öfund þar sem að hún var ekki lengur "eina stelpan" sem Einar veitti athygli :) Ég verð að viðurkenna að það tók sinn tíma að vinna traust Atla og við Alda tókum hvort aðra í sátt eftir einhvern tíma enda mjög góð vinkona mín í dag. En allt var þetta nú þess virði. Úff, komin þokkalega út fyrir efnið!
Back to basics. Í dag vorum við síðan bara í rólegheitum að dúlla okkur heima, fyrir utan uppvasks-maraþonið sem tók alveg hátt í 40 mínútur. Við vorum semsagt ekki búin að vaska upp síðan fyrir partyið og hvert eitt og einasta glas heimilisins var skítugt! Það verður góður dagur þegar við loksins ákveðum að fá okkur uppþvottavél.
Ég ætlaði líka að vera svona súperdugleg í dag og fara að hjóla sem ég og gerði. Nema hvað að í miðjum hjólatúrnum þá fer ég að heyra eitthvað svona hljóð eins og það sé einhver fluga að koma öðru hvoru að mér. Svo stoppa ég og þá HEYRI ég að það er sprungið á dekkinu og það var ekkert smá gat! Hljóðið sem ég heyrði meðan eg var að hjóla var þegar gatið fór fram hjá bremsunni svona fff....ffff...ffff...fff. Þannig að auðvitað þurfti ég að labba alla leiðina til baka og teyma hjólið og það tók sko alveg hátt í hálftíma! En ég fékk samt ágætis æfingu útúr þessu og bíð spennt eftir harðsperrunum á morgun.
Ég veit að þetta er svakalega sundurslitinn texti en ég er að fara að lúlla núna og nenni ómögulega að laga hann samkvæmt aðferðafræði reglum.
Nighty-night...

2 ummæli:

TaranTullan sagði...

hahahah, það sem ég hló að 40 year old virgin, lokaatriðið sló allt út einmitt.
Annars var ég einmitt að fá mér uppþvottavél fyrir þremur vikum síðan eða svo.... Og bara allt annað líf, mæli virkilega með þessu, reyndar erum við alveg tvo til þrjá daga að fylla hana, en hvað með það.

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Já ég get ekki alveg gert upp við mig hvort maður ætti að fá sér þurkarar eða uppþvottavél fyrst. Annars er nóg af öðru dóti sem þarf að redda fyrst eins og ljós, gardínur, skrifborð og fl. Get ekki sagt að það hjálpi beint til að vera í launalausu sumarfríi :(