Aldrei skal mann undra hversu hörmulega-ömurlega-hallærislegar auglýsingar eru framleiddar og virkilega látnar gossa í loftið. Þetta virðist vera sérstaklega áberandi núna þ.e. að það eru alltof margar lélegar auglýsingar í gangi.
1.ORVILLE. Einhver hallæris DJ sem er einhverra hluta vegna með að poppa örbylgjupopp meðan að hann er að spila. Ekki nóg með það heldur er hann í einni þeirra að éta poppið með kínaprjónum. Er einhver heil brú í þessu? Allavegana þegar ég er að djamma þá vil ég frekar fá mér í glas frekar en að fá mér popp! Glatað
2.ORKUVEITAN. Ég fæ smá ælu uppí mig bara við að hugsa um þennan viðbjóð. "pabbi, hvaðan kemur eiginlega rafmagnið?" Svo byrjar einhver svakalegur söngleikur þar sem aðal pointið er "Svona viljum við hafa það, ekkert vesen og allt í góðu lagi". Ekki misskilja mig, auglýsingin er flott en ég sé bara ekki tilganginn með henni. Afhverju í ósköpunum er Orkuveitan að eyða stórfé í gerð greinilega rándýrar auglýsingar, eins og hún geri ekki nóg af því fyrir. Er það þetta sem síðasta orkugjaldshækkun fór í? Ég geri mér grein fyrir því að nú hefur fólk val um að skipt við OR eða RARIK en kommon!Hérna má nálgast auglýsinguna.
3.KFC. Hrikalegar auglýsingar þar sem mismunandi fólk reynir að stama útúr sér að það viti ekkert betra en KFC."Ég verð a..að fá zingerborgarnn..nn minn í háádeginu á sunnudögum". Annars hvað? Ha? Kræst! Hvernig væri að gera þetta almennilega víst að þeir eru að þessu á annað borð og fá sér nokkuð sem kallast LEIKARAR. Það vill svo til að ég veit að það er til nóg af þeim og örugglega nokkrir sem hafa lausan tíma. Plís ekki vera að fá vini og fjölskyldu til að leika í svona drasli.. það er bara sorglegt.
4.Thule. Þeir hafa nú í gegnum tíðina verið með frábærar auglýsingar og mig verkja alveg við að sjá hvað þeir hafa farið illa að ráði sínu. Að horfa á Pétur Jóhann, sem er svo löngu útbrunninn, vera með eitthvað pínlegt grín vekur með mér löngun til að slökkva á sjónvarpinu. Sorry, ekki að virka.
5. SPARISÓÐIRNIR. Þetta er nýjasta lélega auglýsingin sem ég hef tekið eftir. Veit ekki hvort þetta á að vera artí eða hvað. Þarna eru "ungir námsmenn" að gera gott úr því sem þau hafa. Þarna koma ýmsar nýstárlegar aðferðir fyrir þá sem eru fátækir! Já, það er nefnilega hægt að teikna bindi og kraga á hvítann bol í staðinn fyrir að kaupa hlutina. Það er hægt að poppa í potti og fara svo að horfa á stjörnurnar og síðast en ekki síst er hægt að klippa út sjónvarp úr pappakassa og krota eitthvað framan í sig og gera eitthvað sem ég annað hvort náði ekki eða ég var búin að skipta um stöð. Til að toppa allt þá er þetta í svarthvítu og með svona gamaldags-effect. Ef Sparisjóðirnir hafa ekki efni á að nota nútímatækni við gerð auglýsinga þá þurfa þeir virkilega að fara að taka sig á í samkeppninni.
Og svo eru gamlar kellingar að kæra vegagerðamenn fyrir að vera að vinna berir að ofan og særa blygðunarkennd sína. Ég held ég verði bara að fara að taka mig til og fara að kæra eitthvað af þessu markaðs-auglýsingapakki því þessara auglýsinga láta mann alveg fara hjá sér.
Hérna eru nokkrar auglýsingar sem mér finnast góðar.
Hive - hefur þú frá mörgu að segja?
Colgate - 360 gráður tannburstinn
Dominos
IKEA
Pósturinn - allur pakkinn
Landsbankinn - Við elskum fótbolta
KB - námsmenn
Lottó
Flugger litir
Allavegana gaman að heyra ef einhver hefur einhverju við að bæta annan hvorn listann.
16 ágúst 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
ALLIR hata Orkuveitu auglýsinguna, þetta hefur verið rætt í sjónvarpinu og henni var held ég kippt úr sýningum strax.
Mér finnst auglýsingin ekki góð, heldur óþolandi en augljóslega dýr... wtf?
Já ætli það vanti ekki bara fleiri almennilega auglýsingasálfræðinga inní bransann? Getur þú ekki tekið það að þér Steina mín?
Ég var búin að skrifa svo langan pistil hérna um daginn, og svo kom ég hér inn næsta dag og þá var kommentið mitt ekki hérna. Frekar pirruð á því, þar sem þetta var ræða nánast.
Þar úthúðaði ég Smothie auglýsingunni frá MS, sem versta auglýsing allra tíma, og liðinu þarna sem syngur "förum alla leið" og rappið og ég veit ekki hvað og hvað.. Hryllingur alveg.
Svo talaði ég líka um hvað við værum með svipaðan smekk því ég fíla Hive auglýsingarnar, Colgate "TUNGUBURSTI" og FLugger liti.
Og einnig talaði ég um að ég hlyti að vera eina á landinu sem fílaði Orkuveituauglýsinguna, mér finnst og hún skemmtileg og vel gerð. Og ég las viðtal við markaðsstjóra OR sem sagði að hún hefði kostað 15 millur, sem þykir svona rétt yfir Average í dag. Hér hafa verið búnar til auglýsingar fyrir allt að 30 millur o.s.frv. En ég er ekkert að koma hér OR til hjálpar, mér finnst hún í lagi, enda ræktuðu þeir nú rækjur og svona..og eru í fríkin samkeppni þó fæstir viti það.
En jæja, vonandi helst þetta komment inni.
Kveðja
hahaha vá en þú dugleg Tulla mín að nenna að skrifa þetta allt aftur. Jamm en það kemur mér sko ekkert á óvart að við höfum svipaðann sjónvarpssmekk ;) Það kemur mér heldur ekkert á óvart að þér finnist OR auglýsingin góð þar sem ég veit að þú er dáldið væminn sökker inn við beinið :D
Skrifa ummæli