18 október 2007

ekkert spes...

Jæja Einar kom heim á laugardaginn og ekkert nema gott um það að segja. Gott og jafnframt dáldið skrítið að fá hann heima eins og ég bjóst svo sem við. Tíminn hefur hins vegar ekki liðið eins og ég átti von á. Strax á sunnudaginn var mig farið að kvíða fyrir því að hann færi aftur út en það stóð ekki lengi. Finnst stundum eins og við eigum að vera að gera eitthvað rosalega spennandi og skemmtilegt meðan að hann er hérna heima en hversdagsleikinn er svo yfirþyrmandi að ekkert annað kemst að, sérstaklega ekki þegar veikindi bætast ofan á (eins og venjulega).
Svo sem lítið að frétta nema að Sandra er ólétt hinu megin á hnettinum og myndavélar virðast vera bannaðar á því heimil. Þeir taka það til sín sem....
Er farin að vera dáldið spennt yfir því að hætt að vinna. Yfirfærsla á verkefnunum mínum er þegar hafin og ég má teljast heppin ef ég hef eitthvað að gera í desember! Það gengur hins vegar ekki eins vel að finna íbúð í Danmörku. Flestar íbúðir á leigumiðlunum eru til leigu í stuttan tíma eða þá að þær eru með sameiginlegu baði eða eldhúsi sem ég er bara engann veginn til í. Sjáum til hvernig fer. Ef einhver veit um íbúð í Kaupmannahöfn þá endilega látið mig vita!!!

2 ummæli:

Unknown sagði...

Ok ok I get it

Eg kenni Pete alfarid um myndaleysid, thvi hann er ogedlsega lelegur a myndavelinni svo viltu bara vinsamlegast senda honum sms og skamma hann :o)

En eg skal senda ther mynd eftir helgi, eg hendi inn myndunum af utskriftinni og afmaelis lunchinum, Happy little campa tha ?!? ;o)

Og Karen ekkert pjatt, thu getur nu alveg deilt badi med odru folki :) Nei nei thad er oged

Alda Berglind sagði...

Hvað meinarðu með að þú hafir fengið gubbupest í fyrsta skipti á ævinni ???? Ég hélt að það væri bara svona standard að fá hana allavega svona 10 sinnum sem krakki?

Leiðinlegt að heyra að þið séuð alltaf veik þegar Einar kemur í land. Samt kannski best þannig, þá getur hann hjálpað til. Glöð að heyra að Daníel sé farinn að láta úlfinn sjást en ekki bara hrópa "kúka, kúka!" og sitja svo bara og finnast það voða sniðugt að láta mann klæða hann úr og í buxurnar aftur og aftur og aftur...

Sakna ykkar allra geðveikt mikið :-(