04 október 2007

Hvað er ég að gera?

Klukkan er hálf 2 og ég þarf að vakna eftir 5 tíma til að hefja mína daglegu rútínu. Ástæðan fyrir því að ég er vakandi er sú að ég sofnaði AFTUR með Daníel í kvöld og vaknaði ekki fyrr en kl. hálf 12. Er ótrúlega fúl útí sjálfa mig því ég missti af þætti sem ég ætlaði að horfa á í kvöld. Hvað gerir maður þegar maður lendir í svona og finnst maður hafa verið svikinn um heila kvöldstund friði og "gera það sem ég vill" tíma? Ég byjaði auðvitað á því að fara inní eldhús og fá mér stórt mjólkurglas og súkkulaðikex, en ekki hvað? Síðan er ég búin að þrjóskast við að fara að sofa og horfði á 2 Grey´s þætti í röð. Núna finn ég mér ekkert meira að gera en langar ekki að fara að sofa og þess vegna er ég sennilega að blogga. Mér finnst alveg ótrúlegt ef einhver á eftir að nenna að eyða tíma sínum í að lesa þetta!
Ég sakna Einars alveg ótrúlega. Ég fann sérstaklega fyrir þessu í gær þegar Daníel var fyrst búinn að gubba í Krónunni og svo yfir hálfa stofuna seinna um kvöldið. Ég var dauðuppgefin þegar ég var búin að koma honum í háttinn og þrífa allt og lyktaði sjálf af ælu og svita þegar ég loksins settist niður. Þá fannst mér ég vera virikilega ein þar sen ég sat í hljóðri íbúðinni og hafði engann til að deila þreytunni minni með....

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

9 dagar í Ísland... Ég er að telja niður.

Alda Berglind sagði...

Oh, þið eruð svo sæt... En jú þetta er allt ómögulegt. Wannes ómögulegur ef ég fer í lengri tíma til Íslands, þið ómöguleg svona aðskilin, Atli ómögulegur yfir Öglu, mamma og pabbi ómöguleg yfir öllum o.s.frv. o.s.frv. Orðið frekar erfitt að plana jólafríið... kannski við flytjum bara öll til Hjaltlandseyja - svona einhvers staðar í miðjunni og gerumst bara öll bændur...

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Hjaltlandseyjar? Ertu ekki að meina Hawaii?

Kleina sagði...

HETJA!!!!!!!!!!!! Þú ert hetja Karen mín og stendur þig ótrúlega vel í þessu öllu saman. Og Einar er það auðvitað líka.

Tíminn er að verða hálfnaður er það ekki?