Ég bara ætlaði ekki að trúa eigin augum þegar ég sá Ítali skora á lokamínútunum í leiknum í dag. Ég hef reyndar ákveðið að þetta bara gerðist ekki yfir höfuð og Ástralía er að fara að mæta Sviss einhverntíma eftir nokkra daga. Það hefur komið mörgum mjög á óvart hversu áhugasöm ég er um HM enda ekki beint mikil íþróttatípa. Sannleikurinn er sá að ég hef bara als engann áhuga á fótbolta og kann ekki einu sinni reglurnar nema það að hvor hálfleikur er 40 mínútur og þetta var ég bara að frétta um daginn. Málið er það að ég var í vinnupartýi um daginn rétt áður en HM byrjaði. Þar var einhver landa-leikur og ég dró Ástralíu. Það var ákveðið að við myndum halda með löndunum sem við dróum þannig að ég ákvað að standa við það. Nema hvað að ég fylgdist með fyrsta leiknum í vinnunni (jamm við erum með fótboltann í beinni í tölvunni í Lí) og áhuginn bara kviknaði þvílíkt við að halda með einhverjum. Það var ekki verra að Ásralía vann fyrsta leikinn :) En nú er víst sælan á enda og ég þarf víst að fara að vinna í vinnunni.
Annars er hugurinn allur hjá henni Láru minni sem er að bíða eftir niðurstöðum út lokaverkefninu. Ég veit alveg að hún er búin að ná þessu með glæsibrag en litla mín neitar að sannfærast fyrr en hún fær að sjá þetta svart á hvítu á morgun. Svo kemur hún loksins heim á miðvikudaginn og verður heima alveg fram yfir áramót. Hlakka svo til að fá þig heim sæta mín. Ein vinkona mín sem er stödd hinu megin á hnettinum mætti gjarnan taka sér þetta til fyrirmyndar! Lára þú manst að við eigum re-match í sköfuslag. Ég ætla að bæta við gamalli ilmtásu við rúðupissið í verðlaun fyrir sigurvegarann!!! Ef fleiri hafa áhuga á að taka þátt í sköfu-slag þá bara láta vita í commentunum.
26 júní 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Þú verður kannki byrjuð að spila fótbolta með fjölni þegar ég kem heim stulkukind!?!
Úff get ekki sofið kl er 4 hjá mér, og ég er orðin veik. Vona að þessi flensa úr mér á morgunn.
Ég pant fá Söndru í mitt lið ;)
kv Lára
ok, það er greinilegt að við verðum að hafa sköfu-slagskeppni hérna. Sandra: ég veit að þú hefur ekki séð sköfur í nokkurn tíma en ég sendi þér bara mynd til að þú áttir þig. Seinna verður gefin út handbók með "endurbættum"
leikreglum.
Hvernig var annars stemmingin í AUS eftir leikinn?
Skrifa ummæli