Þannig er að þegar ég er að keyra inn í götuna mína núna áðan þá sé ég einn og einn krakka skjótast yfir götuna eins og ketti og bíllinn bakvið mig var líka eitthvað að keyra skringilega. Svo þegar ég stíg útúr bílnum heima þá heyri ég bara gelgjuöskur og hróp og köll. Auðvitað fer ég að tékk á þessu....viti menn bakvið húsið mitt, inní miðju hverfinu stendur bíll í ljósum logum! Við fyrstu sýn þá leit þetta út eins og bíldruslan sem ég var að kvarta undan síðast (YESSSSS!!!!) en því miður var þetta ekki hún.... Allavegana þá var eitthvað kallgrey að reyna að slökkva í þessu með heimilisslökkvitæki en það dugði lítið. Ein stelpa þarna sagði mér að þær hefðu séð eitthvað loga undan bílnum svo allt í einu bara SPRENGING og þá varð hann alelda.
Allavegna þá lét ég þetta ekki stoppa mig í að skreppa út í 10-11 (nammidagur er heilagur) og þegar ég kom til baka þá var löggumann kominn og slökkviliðsgæjar að kæfa eldinn.
Það er ekki hægt að segja annað en að þetta hafi heldur betur brotið upp annars mjög döll kvöld hjá flestum hérna í götunni. Bara fínasta fjölskylduskemmtun þar sem heilu stórfjölskyldurnar stóðu út á svölum (ég meðtalin) og ljósablossarnir frá myndavélunum minntu helst á Óskarsverðlaunahátíðina! Sammi á neðri hæðinni klikkaði ekki og tók myndir villt og galið. Hann ætlar síðan að vera svo sætur að senda mér nokkrar og þá skal ég setja þær hérna inn. Sammi var þegar kominn með nokkara góðar fyrirsagnir eins og "Skólinn er byrjaður" eða "Geðveiki í Grafarvogi". Við skulum sjá til hvort blöin ná að gera betur :)
Hverjar ætli séu líkurnar á því að það kvikni í bílhræinu góða á næstu dögum....?

Þessa mynd tók ég í morgun
Annars er ég bara á fullu í lokaverkefninu og get lítið hugsað um annað þessa dagana. Skiladagur er 13 nóv til leiðbeinanda og 20 nóv er lokalokalokaskil. Ég nenni ekki einu sinni að segja ykkur frá því um hvað verkefnið mitt er þar sem ég er í fríi núna, alveg nóg að vera farin að dreyma um þetta dót....
hilsen,
Gettógellna
5 ummæli:
Úhúhúúú....spennó, það bara jafnast ekkert á við smá action í hverfinu, eins og þegar brotist var inn í bílinn minn í Stóragerðinu, sem átti að mínu mati að vera heimsins besta hverfið þá stundina.
Annars er ég að bíða eftir dagbókarfærslunni sem þú lofaðir okkur!
hahaha! Svona er þetta "Borg óttanns!!!"
Já dagbókin.... ok, ætli maður verði ekki að standa við sitt :) Hvernig var það Tulla, varst þú ekki að halda neina dagbók á þessum tíma?
ég hélt það kviknaði bara í bílum í bíómyndum...
Jæja, er þetta þá ekki bara fyrirtaks efniviður fyrir þína næstu kvikmynd Alda?
Annars er búið að draga bílinn, demm, ég sem ætlaði að láta hirða hann!
Ég skal senda þér afrit af því þegar ég er búin
Skrifa ummæli