Ég er ein af þeim sem vill hafa rólegt umhverfi í því samfélagi sem ég bý í. Þetta þýðir að ég kýs að lágmarka áreiti í kringum mig eins mikið og ég get. Það sem mér finnst standa helst uppúr í áreiti eru auglýsingar: fáðu þér svona, alvöru konur nota X og þar fram eftir götunum. Mér finnst þetta algjörlega óþolandi. En það má ekki misskilja mig, auglýsingar eru vissulega gagnlegar því þarna er verið að láta neytandann vita af valmöguleikum sínum. En þegar maður getur varla litið útum gluggann án þess að verða fórnarlamb einhverskonar markaðssetningar þá finnst mér þetta verið komið útí hróa. BTW fyrir utan húsið stendur akkúart bíll með risaauglýsingu sem á stendur klám.is!Sem betur fer erum við þó ekki orðin eins slæm í þessu og flest lönd í kringum okkur. Mér fannst stigið stórt skref niður á við þegar strætóskýlin í Reykjavík voru bókstaflega seld á einu bretti til einkafyrirtækis sem setti upp núverandi skýli með risastórum auglýsingum. Mér finnst þetta ljótt og ég myndi miklu frekar kjósa að vera laus við þessa sjónmengun. Eins vil ég geta stjórnað því hvenær er verið að koma
skilaboðum til mín, þegar ég er að horfa á sjónvarpið t.d. þá getur maður alltaf bara slökkt þegar maður er búinn að fá nóg eða í það minnsta skipt um stöð. Þegar þú ert úti á götu þá kemstu ekki hjá því að líta í kringum þig þó það sé ekki nema bara til að verða ekki undir næsta bíl!Það sem fékk mig hinsvegar til að skrifa þennan pistil var tónlistarmynband sem ég rakst á áðan. Þar var á ferðinni Black eyed peas með einhvern nýasta smell frá sér, ekkert að því. Nema þegar ég horfi aðeins betur á þetta þá sé ég að þetta myndband er ekkert annað en ein stór auglýsing! Ég veit að mynbönd sem þessi eru oft notuð sem auglýsingar en þá er það yfirleitt eitthvða svona vægt sem fellur svona meira inní umhverfið. Svo var ekki í þessu tilviki. Allt í einu tekur aðalgellan upp eitthvað tæki í miðri dansrútínu og er eitthvað að dást að þessu. Ég kíki betur og sé að það stendur greinilega Samsung á þessu. Hérna er svo varan sem verið var að auglýsa
Mér finnst þetta algjörlega glatað svo ég tali nú bara ekki um hversu hallærislegt þetta er yfir höfuð inní þessu eða bara hvaða myndbandi sem er. Hvernig í ósköpunum er hægt að tengja mp3 spilara inní þetta dæmi. Veit ekki. Ég ætla síðan ekki einu sinni að byrja hvaða áhrif allur þessi auglýsingaráróður hefur á mann. Heimur versnandi fer, ekki síst ef álverið fær að stækka í Straumsvík en það er efni í annan pistil.
Ætli við munum ekki enda eins og í bókinni Lovestar eftir Andra Snæ þar sem fólk var látið vinna fyrir skuldum með því að heilaþvo vini, ættingja og fólk útá götu með því að þylja upp einhvern auglýsingatexta sem var sendur í þau. Úff... hlakka til...
3 ummæli:
Hæ, hæ, mátti til með að segja þér að gæjinn (ó já, mega flotti gæjinn) á Klám.is bílnum er nágranni minn, býr í næsta stigagangi og leggur bílnum alltaf upp á stétt, okkur hinum til ánægju og yndisauka. Hann skóf einmitt bara 30cm hring af framrúðunni og af klám.is borðunum í snjónum um daginn, mjög töff!!
Kv. Halldóra úr Hvassó.
Ha? Ég sem hélt að hann byggi hérna, bílinn er dökkgrænn minnir mig. Hann og "vinir hans" spæna reglulega upp planið hérna í götunni, okkur til ánægju og yndisauka...
heyrðir þú fréttina um samtök sem vinna gegn þessu og Akureyringar eru eitthvað að spá í að ganga í? Man ekki hvað þau kallast en þetta er að breiðast út. Þá eru reglur um hávaða og umhverfismengun þmt auglýsingar og annað áreiti í kringum mann. Svona rómantíkst afturhvarf til hljóðlegri tíma, mér fannst það hljóma mjög krúttlegt og heillandi...
Skrifa ummæli