26 febrúar 2007

Ég vil þín njóta Toyota!

Hérna má líta dýrðina sem við Einar fjárfestum í í gær nema það að okkar er djúp vínrauður en ég fann enga þannig mynd og okkar er dottinn útaf söluskráinni. Við fórum semsagt á tilboðsdaga hjá Toyota um helgina og féllum alveg fyrir þessum Toyota Corolla Terra árgerð 2005. Það er alveg frábær tilfinning að keyra svona nýjann og fínann bíl þó svo að maður eigi nú minnst í honum.
Nú er eina vandamálið að ákveða hvert við eigum að fara fyrir farseðlana 2 sem fylgdu með í kaupunum... Einhverjar hugmyndir?

p.s. Einar er að smíða myndasíðu fyrir mig sem kemur í gagnið hérna vonandi fljótlega.

4 ummæli:

Kleina sagði...

ooohhhh fylgdu farseðlar.... en gaman, og til hamingju með gripinn.
Hvað með annan hitting næsta Sunnudagsmorgunn?

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

ég er til :)

TaranTullan sagði...

Ókei...hér var ég búin að skrifa komment um hvað við værum líkar, því við erum báðar nýbúnar að fá okkur uppþvottavélar og nýja bíla....og hvað gerist!!! Þetta komment kerfi hagar því þannig að þar sem ég er hjá Beta blogger en ekki gamla blogger, þá þarf ég að signa mig fyrst inn, dett inn í mitt blogg og ég veit ekki hvað og hvað. Þetta er bara andskotinn hafi það allt of flókið... Hér eftir mun ég kommenta undir "anonymous" og þá verður flotta köngulóarmyndin ekki við.

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

já ég er alltaf að spá í að fara yfir í beta-blogger en er ekki alveg að nenna því. Ég er svo hrædd um að það muni rugla í öllu og þá mun fullt af vinnu lenda á... Einari auðvitað. Veistu hver munurinn er?