09 september 2007

Einar kemur heim...

... á fimmtudaginn. Reyndar lendir vélin hans ekki fyrr en hálf 12 um kvöldið sem þýðir að hann verður sennilega ekki kominn til mín fyrr en að ganga hálf 2 en ég kvarta ekki. Hann verður síðan hérna fram á mánudagsmorgun en þarf að fara eldsnemma um morguninn til að ná í tíma eftir hádegi. Það er dáldið erfitt að útskýra fyrir Daníel að pabbi sé "bráðum" að koma heima. Bráðum hjá honum þýðir kannski eftir 1-2 klukkutíma gerist X. Ég get heldur ekki sagt að eftir 5 daga þá komi pabbi heim því ekki kann hann að telja og enn síður myndi hann skilja hvað ég væri að tala um þegar ég tala um að pabbi komi á fimmtudaginn. Ég hef því haldið mig við bráðum en reynt að tala kannski bara minna um það til að valda honum ekki vonbrigðum þegar hann fattar að nú ætti pabbi að vera kominn.

Í gær var síðan Grafarvogsdagurinn og við Vala fórum með strákana á Korpúlfstaði að skoða vinnustofur og sýningar listamanna sem eru staðsettir þarna. Eftir hádegismat röltum við síðan á Foldabókasafn þar sem við tókum helling af barnabókum og nú eru báðir strákarnir komnir með bókasafnsskírteini. Þegar heim var komið var grenjandi rigning og við Daníel poppuðum og kúrðum síðan uppí sófa með teppi og vorum að lesa saman nýju barnabækurnar sem við höfðum tekið á bókasafninu. Mjög huggulegt að sitja svona saman og hafa það kósý meðan að rigningin glummdi fyrir utan.

p.s. næsta föstudag (14.sept) mun ég afhenda uppsagnarbréfið mitt og þá er opinberlega bara 3 mánuðir eftir af vinnunni!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvað segiru Karen, ert þú bara orðin landsins virkasti bloggari? Ég hef hreinlega ekki undan, en til lukku með 14.sept næskomandi og ekki tala um umferðarteppurnar úr Grafarvoginum, ég fæ hroll dauðans. Kveðja Tulla

Unknown sagði...

Va klikkud umferd og ekki er thetta beint long leid :o( Hvenaer aetlid thid Daniel svo ad flytja til Danmerkur? Spenno :o)

Kleina sagði...

Var að spá í að koma í heimsókn til þín á fimmtudagskvöld?

Hringi svo bara í þig eða þú finnur mig á msn...

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

maður reynir að vera duglegur að blogga víst að ég er svona hálfpartinn "verkefnalaus" heima þessa dagana.
Já umferðin er klikkuð og það er fáránleg hugmynd að bæta HR þarna í Öskjuhlíðina til að bæta gráu ofan á svart? Hverskonar fábjánar eru þarna í borgarskipulagi??? Mér líst best á þessa nýju hugmynd að búa til kjarna á Greisnefinu til að dreifa álaginu.

Steina þú ert alltaf velkomin eins og allir aðrir :) Ég er ALLTAF heima á kvöldin.