08 júlí 2008

Einkahúmor og pælingar

Hafið þið tekið eftir hvað einkahúmor getur orðið ótrúlega súr? Við Einar eigum ófáa brandara okkar á milli og frasa sem við getum hlegið endalaust að.... við réttar aðstæður.
Nokkur dæmi:
  • Keeping it fresh!
  • Kjarni jarðarinnar er hættur að snúast
  • Píjejja (Daníel)
  • Sparka í haus
  • It´s Godiva...
Ég ætla ekki einu sinni að byrja að reyna að útskýra hvaðan þetta kemur en það er hellingur í viðbót sem ég man ekki núna en einmitt kemur upp við réttar aðstæður. Ég er í þessum töluðu orðum með tárin í augunum því við erum einmitt búin að hlægja svo mikið af einu ofangreindu. Kannast einhver við þetta???

Eins hef ég oft pælt í því hvað ég er heppin að hafa hitt á Einar sem er eins mikill pælari og ég. Ég hélt alltaf að allir gerðu þetta en svo komst ég að því að svo var ekki. Ég hef alltaf pælt í því hvernig hlutir virka t.d. gangverk í úrum, framleiðsla á peningum, tómarúm í geimnum og bara næstum allt sem maður skilur ekki. Ebba og Lára fengu oft að hlusta á þessar pælingar og hafa vafalaust fengið meira en sinn skammt, því þær voru með hugann við allt annað. Svo þegar ég hitti Einar þá er hann alveg til í að pæla í svona hlutum með mér eins og hvernig flettiskilti virka, sjónhverfingar, sjálflýsandi efni, örbylgjur, efna- og eðilisfræði, samgöngumál í Tokyo, lyftualgóriþma og fleira. Jebb, mjög spennandi upptalning. Vill einhver koma í heimsókn?

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sælar fr. einkahúmor :-)
Flott lúkkið á síðunni, gott að þið hjónakornin getið pælt í einu og öllu! Held að ég kíki ekkert strax í heimsókn strax...enda á klakanum! úff bara rok og rigning takk fyrir en búin að fara í 1. sundferðina af mörgum og það var bara næs sko ;-)

Íslenska númerið mitt er 863-0079, verðum í bandi! hafið það gott í kóngsins..Bestu kveðjur
Hildur

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Fórstu í Grafarvogslaugin? Ég þarf að kynna þig almennilega fyrir Salalauginni þegar ég mæti á svæðið. Ég er svo gleymin, hvar búið þið aftur í bænum? Íslenska númerið er hér með nóterað!

Nafnlaus sagði...

Við kanski pælum saman í sólinni. Pete segir alltaf bara ég veit það ekki þegar ég er að pæla e-ð, ekkert gaman að honum :o(

Kv Sandra