Já, hann er runninn upp - síðasti dagurinn! Í dag er síðasti dagurinn sem við fjölskyldan erum í fríi saman og á morgun byrjar hversdagslegt líf aftur þar sem Daníel fer í leikskólann og Einar í vinnuna. Ég er guðslifandi fegin að losna við Daníel á leikskólann enda er hann gjörsamlega að ganga af göflunum hérna heima og óþekktin og lætin hafa náð nýjum hæðum í þessu jólafríi. En við lifðum þetta af og höfum í leiðinni aukið þol okkar og styrk sem foreldrar.
Mér mun ekki leiðast hérna í fæðingarorlofinu þar sem ég er nú þegar með íslensku mæðragrúbbuna og svo seinna í janúar byrja ég í danskri fjölbyrju mæðragrúbbu, sem er á vegum heilsugæslustöðvarinnar hérna í Frederiksberg. Svo er Linda vinkona mín hérna í húsinu með 3gja mánaða skottu og Lýdía auðvitað með mánaðar gamla.
Annað sem er helst í fréttum er að við erum búin að nefna Lille. Við höfum verið að máta hin ýmsu nöfn á hana síðan hún fæddist en á nýársdag var eitt nafn sem stóð uppúr hjá okkur.
Lille hefur verið nefnd ELLEN MARÍA EINARSDÓTTIR og ætlum við að skíra hana seinna í þessum mánuði hjá íslenska prestinum.
Annars heilsast okkur bara öllum vel og Ellen er duglega að drekka og sofa. Hjúkrunarfræðingurinn kom til okkar þegar hún var 9 daga og hún stóðst öll próf með prýði og vó 4,3 kg sem þýðir að hún hefur þyngst um tæp 400 gr þessa fyrstu daga. Ellen fór líka sama dag í heyrnarpróf og það kom líka allt eðililega út þannig að við erum bara hæstánægð.
kv,
Karen og co.
04 janúar 2009
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli