15 febrúar 2009

Gleði, gleði!

Ég er svo rosalega glöð og hamingjusöm þessa dagana að ég get ekki annað en vonað að aðrir séu það líka. Veit ekki hvort þessi gleði tengist nýtilkominni fjölgunn í fjölskyldunni og meðfylgjandi hormónasprengju eða hvað en ég vona engu að síður að það endist sem lengst. Svefninn hefur minnkað og vinnan á heimilinu aukist en einhverstaðar hef ég fengið aukaorku því ég finn ekki mikið fyrir þessu líkamlega séð. Ég hef uppgötvað ný lífsgildi og sé nú að hamingjan flest í minni vinnutíma, nægjusemi og góðum stundum með fjölskyldunni. Allt þetta kýs ég frekar en að geta verslað í kjötborðinu í Hagkaup og hafa aldrei áhyggjur af mánaðarmótunum. Ég get með sanni sagt að ég hef aldrei lifað eins sparlega á ævinni og hvað þá haft eins gaman af því að spá í tilboðum og hvað sé nú hagkvæmt að versla og hvar.
Um leið er ég búin að ákveða að komast meira inní danska matarmenningu og þó svo að það gangi nú hægar en maður átti von á þá hafa matarvenjur okkar svo sannarlega breyst og heldur í hollustuátt frekar en hitt. Allt er nýtt á þessu heimili og úr grænmetisafgöngum hafa uppstaðið nýstárleg salöt og misgóðir réttir. Eitt af því sem við erum farin að borða mjög mikið af eru gulrætur og eru þær ýmist borðaðar sem snakk, nesti, soðnar, bakaðar eða rifnar niður með því sem til er t.d. epli og sítrónu eða appelsínusafa. Rúgbrauð er annað sem er borðað næstum daglega og það heyrir til undantekningar að keypt sé hveitibrauð á þetta heimili. Maður er samt alltaf að reyna að víkka sjóndeildarhringinn og fyrr í dag fór ég í Nørrebromarkaðinn hérna rétt hjá mér og var að skoða framandi matarmenningu í hillunum. Þarna er aðalega halal matvörur fyrir múslima og íslamstrúar fólk og það er rosalega gaman að sjá hversu mikið er til af mat sem ég hef aldrei kynnst. Ég verslaði nú ekki mikið núna en prófaði samt nokkra hluti eins og krydd fyrir sterkar "kjötbollur", eftirrétt sem er nokkurskonar bakaður búðingur sem maður rúllar síðan upp, salami mini-pylsa úr nauta- og kalkúnakjöti og síðast en ekki síst bjórhnetur sem innihalda ekki hnetur heldur kjúklingabaunir. Það er svo margt sem mig langar til að prófa þarna t.d. alskonar réttir úr sérstökum pönnukökum og sætt álegg og kökur úr sojabaunum (tamari) ásamt öllum þeim tegundum af baunum, kryddi og fræjum sem maður getur og getur ekki hugsað sér. Það er svo sem nógur tími til stefnu til að prófa þetta allt.

Nú förum við Ellen bráðum að koma til landsins og spenningurinn og tilhlökkunin eru að aukast dag frá degi. En það er margt að gera og ég vildi óska að maður hefði meiri tíma til að hitta alla vini og fjölskyldu meira en ég sé fram á að geta gert. Ég er þegar farin að hugsa útí allt það sem ég ætla að fá mér að borða þegar ég kem heim og efst á listanum eru SS pylsur og lambalæri með brúnuðum kartöflum. Það sem er hins vegar mikilvægast að ég taki með mér heim er PÁSKEGG og ég vona svo sannarlega að það sé byrjað að selja þau! Annars er ég búin að mála mig dáldið útí horn hérna :S

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég bara brosi við að lesa svona hamingjusama færslu :D
Hlakka annars til að hitta ykkur mæðgur...góða ferð!
Kv. Erna

p.s. ég hef ekki séð páskaegg ennþá (nema bara svona lítil, 6 í pakka) - en þar sem ég er bíllaus þessa dagana er ég ekki að fara mikið útí búðir og vonandi eru þau komin í hillurnar frá því ég fór síðast að versla :)

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

OMG! Það hlýtur bara vera hægt að kaupa páskaegg, annars er það bara nammi.is