29 júní 2006

Einn tvöfaldann, takk!

Þá er ég að meina kaffi en ekki romm í kók. Ég get svo svarið það ef ég kæmist í áfengi núna þá myndi ég bara steindrepast á staðnum. Þið getið sennilega giskað á hversvegna ég er svona þreytt, jebb Daníel. Hann var vaknaður uppúr hálf 5 í morgun, takk fyrir.
Allavegana þá var ég að reyna að sannfæra Einar um að tilkynna okkur veik í dag því í alvöru talað þá leið mér bara mjög skringilega. Ég held að öllum líði skringilega og bara hreint illa þegar maður fær svona lítinn svefn en Einar, eins og hann er nú samvikusamur, sannfærði mig um um að mæta. Ég er strax farin að sjá eftir því :( En ég hugga mig við það að það eru bara 2 dagar í sweet sumarfrí. Ég er kannski með dáldið ýktar hugmyndir um þetta sumarfrí akkúart núna þar sem ég er hálfsofandi hérna við tölvuna. Það sem ég sé fyrir mér er sólarströnd og ég undir sólhlíf með með margarítu í hendi og pálmatré í baksýn. En ef við færum okkur örlítið nær raunveruleikanum þá held ég að ég verði frekar að skýla mér undir REGNHLÍF með kaffi í hendi og grámyglað fólk í baksýn. Ég held ég láti þetta duga í bili eða allavegana þar til verð búin að hrista morgunfýluna af mér.

Svona væri ég til í að hafa það....

En ekki ólíklegt að það verði svona....

27 júní 2006

Grilleríííííí!!!!

Ég hef stundum verið kölluð fljótfær. Ég er ekki að segja að ég sé það ég er bara að segja að sumir hafa kallað mig það. Aðrir hafa líka sagt að ég sé oft alltof bjarsýn og áætla yfirleitt alltofa lítinn tíma fyrir verkefni sem ég hef sett mér t.d. málningarvinna, flutningar o.fl.. Hver er farinn að tengja? Jamm, ég blandaði þessu tvennu saman og ákvað (ásamt Einari) að skjótast útíbúð kl.hálf 6 að kvöldi til að kaupa ósamsett gasgrill. Grillinu ætluðum við að skella saman (er þetta ekki bara eins og IKEA?) og grilla síðan kvöldmatinn á þessu ca. um hálf 8! Klukkan er núna að ganga hálf 10 og Einar er búinn að eyða öllu kvöldinu í að setja saman grillið. En við gefumst ekki upp! Grillið er farið að tolla saman (smá tonnatak og þá er þetta komið) og við ætlum sko í það minnst að sitja úti í kvöldsólinni og grilla sykurpúða (það er ca.5 stig hita as we speak) og hana nú. Jæja, Einar er að kalla. Tími til kominn að prófa græjuna, vonandi lifum við þetta af. Ef það heyrist ekkert í mér næstu daga þá endilga kíkið við og bjargið barninu!

P.S. Alltaf að fá sent samsett grill heim, það var í boði að senda það þannig til okkar bara á morgun en við gátum ekki beðið :)

26 júní 2006

Tapaði Ástralía???

Ég bara ætlaði ekki að trúa eigin augum þegar ég sá Ítali skora á lokamínútunum í leiknum í dag. Ég hef reyndar ákveðið að þetta bara gerðist ekki yfir höfuð og Ástralía er að fara að mæta Sviss einhverntíma eftir nokkra daga. Það hefur komið mörgum mjög á óvart hversu áhugasöm ég er um HM enda ekki beint mikil íþróttatípa. Sannleikurinn er sá að ég hef bara als engann áhuga á fótbolta og kann ekki einu sinni reglurnar nema það að hvor hálfleikur er 40 mínútur og þetta var ég bara að frétta um daginn. Málið er það að ég var í vinnupartýi um daginn rétt áður en HM byrjaði. Þar var einhver landa-leikur og ég dró Ástralíu. Það var ákveðið að við myndum halda með löndunum sem við dróum þannig að ég ákvað að standa við það. Nema hvað að ég fylgdist með fyrsta leiknum í vinnunni (jamm við erum með fótboltann í beinni í tölvunni í Lí) og áhuginn bara kviknaði þvílíkt við að halda með einhverjum. Það var ekki verra að Ásralía vann fyrsta leikinn :) En nú er víst sælan á enda og ég þarf víst að fara að vinna í vinnunni.
Annars er hugurinn allur hjá henni Láru minni sem er að bíða eftir niðurstöðum út lokaverkefninu. Ég veit alveg að hún er búin að ná þessu með glæsibrag en litla mín neitar að sannfærast fyrr en hún fær að sjá þetta svart á hvítu á morgun. Svo kemur hún loksins heim á miðvikudaginn og verður heima alveg fram yfir áramót. Hlakka svo til að fá þig heim sæta mín. Ein vinkona mín sem er stödd hinu megin á hnettinum mætti gjarnan taka sér þetta til fyrirmyndar! Lára þú manst að við eigum re-match í sköfuslag. Ég ætla að bæta við gamalli ilmtásu við rúðupissið í verðlaun fyrir sigurvegarann!!! Ef fleiri hafa áhuga á að taka þátt í sköfu-slag þá bara láta vita í commentunum.

25 júní 2006

Nýtt útlit

Einar var svo góður (eins og alltaf) að hjálpa mér að setja nýtt útlit á síðuna. Gott að eiga klárann mann þegar maður þarf á tölvuhjálp að halda. Ég er bara rosalega ánægð með árangurinn enda eins gott að hafa þetta huggulegt ef maður á að nenna að skrifa hérna inn og fá heimsóknir :)
Jæja það bíða manns mörg verkefni í dag m.a. eitt barnaafmæli sem ég kvart sko ekki yfir.

24 júní 2006

Einn, tveir og BYRJA!

Dáldið fyndið að ég skuli hafa látið verða af því að búa til mitt eigið blogg. Mér hefur alltaf fundist þetta svo skrítið að vera að viðra skoðanir sínar svona og segja frá daginum og veginum og búast við því að aðrir hafi áhuga á að lesa það. Ég geri nú samt mikið af því að lesa um aðra og ég verða að viðurkenna að þetta er fínast tæki til að fylgjast með sínum nánustu án mikillar fyrirhafnar. Ég hef ekki áhuga á að hver sem er sé að kíkja hérna inn (veit að það er ekki hægt að komast hjá því) og þess vegna myndi ég helst vilja að ef einhver ætla að setja link á þessa síðu að láta mig vita :)