29 júní 2006

Einn tvöfaldann, takk!

Þá er ég að meina kaffi en ekki romm í kók. Ég get svo svarið það ef ég kæmist í áfengi núna þá myndi ég bara steindrepast á staðnum. Þið getið sennilega giskað á hversvegna ég er svona þreytt, jebb Daníel. Hann var vaknaður uppúr hálf 5 í morgun, takk fyrir.
Allavegana þá var ég að reyna að sannfæra Einar um að tilkynna okkur veik í dag því í alvöru talað þá leið mér bara mjög skringilega. Ég held að öllum líði skringilega og bara hreint illa þegar maður fær svona lítinn svefn en Einar, eins og hann er nú samvikusamur, sannfærði mig um um að mæta. Ég er strax farin að sjá eftir því :( En ég hugga mig við það að það eru bara 2 dagar í sweet sumarfrí. Ég er kannski með dáldið ýktar hugmyndir um þetta sumarfrí akkúart núna þar sem ég er hálfsofandi hérna við tölvuna. Það sem ég sé fyrir mér er sólarströnd og ég undir sólhlíf með með margarítu í hendi og pálmatré í baksýn. En ef við færum okkur örlítið nær raunveruleikanum þá held ég að ég verði frekar að skýla mér undir REGNHLÍF með kaffi í hendi og grámyglað fólk í baksýn. Ég held ég láti þetta duga í bili eða allavegana þar til verð búin að hrista morgunfýluna af mér.

Svona væri ég til í að hafa það....

En ekki ólíklegt að það verði svona....

2 ummæli:

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

sofið inn? sleeping in? hehehe! Komdu þér heim og lærðu almennilega íslensku :D

Nafnlaus sagði...

Eins og þú segir sjálf "þá er aldrei að marka veðurspána" þannig að það verður líklega bongóblíða í fríinu þínu!!!