Þá er ég loksins búin að hátta og leggja Daníel, taka til og ganga frá, setja í vél, vaska upp og sit núna uppí stóra sófanum með kertljós og örlítið rósavín (verðlaun). Einar er veikur og er að leggja sig þannig að það er ekkert sjónvarp í kvöld takk fyrir, bara kósý kvöld uppí sófa með góða bók og rómó tónlist.
Ég er greinileg ekki ennþá búin að venjast því að þurfa ekki að vera í verkefninu allar lausar stundir og satt að segja finnst mér ég bara hafa allt of mikið af lausum tíma. Ætli maður verði ekki fljótur að venjast þessu :) ahhh... var að muna núna að ég gleymdi að fara út með ruslið... humm.. segist bara hafa gleymt því. Bíddu, við hvern á ég að segja það? Sjálfa mig? Það er alveg ótrúlegt hvað ég lýg mikið að sjálfri mér og ég virðirst alltaf komast upp með það!! Veit ekki hvað ég hef oft svindlað í nammibindindum og sleppt því að gera hitt og þetta eins og maður sé alltaf að gera þetta fyrir einhvern annan. Kemur auðvitað niður á manni sjálfum.
Var í klippingu í dag og nú er ég aftur orðin mjög dökkhærð með smá breytingu þar sem ég er komin með þykkann og þungann topp. Fínt að breyta til eftir árstíðum. Ég hef svo sem aldrei verið hrædd við að breyta til í hárgreiðslumálunum. Sannast kannski best á því að ég var með fjólblátt hár í góðann tíma og svo auðvitað leyfði ég Láru að klippa mig eftir henntugleika (það krefst umburðarlyndi!). Man einu sinni eftir því að hún var eitthvað að klippa mig og ég endaði á að vera með því sem næst skallablett en ég meina þetta óx. Svo veit ég til þess að það koma annað eins slys fyrir hjá Láru þegar hún var að klippa einn ónefndann og eitthvað skrikaði höndin með rakvélinni... til að gera langa sögu stutta þá var bletturinn svertur með skósvertu! Ætli það sé ekki best að fara út með þetta rusl og halda svo áfram kósýheitunum...mmmmm..
30 nóvember 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Ég ætla bara að lifa næstu 20 daga í gegnum þig Karen mín....
já það er alveg velkomið. Nennirðu þá líka að verja þessa ritgerð fyrir mig? þá væri toppnum náð!
já ég skal gera það ef þú tekur á þig svefnleysið, brjóstsviðan, stingi niður í spöngina við hvert skref, bakverki, eymsli yfir allan magan, grindarverki dag sem nótt og herping yfir magann þegar þú gengur, vaxandi fyrirvaraverki endrum og eins og lærir fyrir og tekur 3 próf (frumlest fyrir 2 þeirra), sérð um eitt barn og reynir að elda og gera eitthvað smá á heimilinu á hverjum degi fyrir 20. des :)
knús
já Steina mín ég veit að það er erfitt að vera á steypinum í prófum, ættir að prófa 5 próf þá er fyrst stuð! En það er stutt eftir og Tóti verður bara að taka sig á í heimilisstörfunum ;)
Skrifa ummæli