
Dagurinn í dag hefur farið í að leika við Daníel og baka smákökur þess á milli. Daníel er búinn að vera þvílíkt duglegur og stilltur að maður á bara ekki til orð, mætti halda að hann vissi að jólasveinninn væri á næsta leiti...
Allavegana langaði að láta eina ekta piparkökuuppskrift fylgja með. Þetta er ekki þessar týpísku heldur eru þetta sænskar piparkökur og maður sker ekkert úr þeim.
Sænskar piparkökur
½ kg hveiti
½ kg púðursykur
225 g smjörlíki
2 egg
30 g lyftiduft
1 tsk natron
1-2 tsk engifer
1 tsk kanill
11/2 tsk negull
Hrært, rúllað upp í stöngla, kælt, skorið í smáar kökur – sett á plötu og bakað við fremur hægan hita . ( hjá mér 150°C blástur í um 10-12 mín). Það má gjarnan minnka aðeins lyftiduftið, ég slumpa bara ;-) og svo passa sig að vera ekki of örlát á kryddið, ekki gott að hafa þær of sterkar.
Svo er hérna ein til sem er alveg ómissandi.
Kókostoppar
225 gr. strásykur
3 egg.stífþeytt
300 gr kókosmjöl
100 gr súkkulaði brytjað
Baka við 175 gráður í 10 - 15 mínútur. Bræða súkkulaði og setja með teskeið ofan á toppinn á hverri köku.
Jæja það er ekki eftir neinu að bíða, næsti skammtur er að verða tilbúinn í ofninum. Pabbi gamli kemur síðan til okkar í heimsókn í kvöld og þá er sko gaman hjá Daníel. Hann bókstaflega henndir sér utan um hálsin á öllum sem við hittum, jafnvel þó hann hafi aldrei séð viðkomandi áður! Ég er að spá í að hafa grillaðan fisk í kvöldmatinn með sítrónu og engifer, nammi namm.
Góðar stundir!
3 ummæli:
en hvað með uppskrift að þessum á myndinni... mjög girnilegar...mmm
sorry þetta eru því miður bara googlaðar cookies!
æi Karen, þetta var nú svolítið grimmilegt af þér....
Skrifa ummæli