24 janúar 2007

Í fyrsta skipti - í hvert skipti!

Það hlaut að koma að því... ég hef verið dáldið á móti svonalöguðu, veit ekki afhverju, en nú er þetta orðið að raunveruleika á þessu heimili. Já, það er rétt. Það er komin uppþvottavél inní eldhús! Ég veit ekki afhverju ég hef verið dáldið skeptísk útí uppþvottavélar, ætli það sé ekki bara af því að ég er vön því að vaska... Einar er vanur að vaska upp. Veit ekki hvaða bull þetta er í manni, það er nú svo sem ekkert virðingarvert við að standa á hverjum degi fyrir framan vaskinn og skrúbba leirtau. Kannski hefur mér fundist ég vera svona alvöru húsmóðir að standa sveitt við uppvask á hverjum degi, hver veit. Reyndar finnst mér uppvask með skárri heimilisverkum sem fyrirfinnast og reyndar getur stundum verið ágætt að vaska upp, gefur manni smá tóm til að hugsa, eins og ég hef nú alltaf nóg að hugsa um ;-). En það sem hefur kannski helst farið í mig er að uppvask er ansi tímafrekt og þetta er tími sem mig langar miklu frekar til að eyða í eitthvað skemmtilegt t.d. leika við Daníel. Vélin var allavegana keypt á fimmtudaginn en við vorum í smávægilegum vandræðum með tenginguna í niðurfallið. Við vorum spennt fyrir að prófa vélina og höfðum sérstaklega ekki vaskað upp þannig að það var dáldið í vasknum. Þegar kom í ljós að við gætum ekki komið þessu saman sama dag þá stakk Einar uppá því að við myndum taka uppvaskið í síðasta skiptið uppá gamla mátann. Ég hélt nú ekki! That time has passed sagði ég og þess vegna fékk uppvaskið að liggja áfram í vasknum. Við tengdum svo vélina í dag og auðvitað var keypt Finish uppþvottaefni og fyrsti þvotturinn settur í gang enda veitti ekki af þar sem báðir vaskarnir voru orðnir stútfullir og grunsamleg lykt farin að hreiðra um sig. Meðan að vélin púlaði þá sátum við Einar í makindum uppí sófa að lesa og önnur eins kósýheit. Bæði uppþvottavélin og þvottaduftið (kraftkúlutæknin sko!) stóðust prófið með prýði og allt kom glansandi hreint út, miklu flottara en þegar maður vaskar upp sjálfur og þurrkar. Ég hef því skipt algjörlega um skoðun á þessum blessuðum vélum og er þetta nú orðið að uppáhalds heimilistækinu mínu! Svei mér þá ef ég verð ekki bara að gefa henni nafn, hehe!!

3 ummæli:

Alda Berglind sagði...

Innilega til hamingju með útskriftina! og uppþvottavélina!

... og sorrí hvað ég er eitthvað sein að óska þér til hamingju - það er ekki það að ég sé ekki búin að hugsa til þín mikið, heldur frekar það að "to-do" listinn minn er svo fullur þessa dagana að ég hef enga yfirsýn lengur hvað er að gerast og þarf að gerast.

og vá. líst geðveikt vel á þessa Bulgaríuferð. Líka kúl að prófa eitthvað nýtt (það er Búlagaríu en ekki Benidorm).

Knús og kveðja. x

TaranTullan sagði...

Ég veit hvaðan þú kemur systir, ég var þarna fyrir hálfu ári síðan. En ekki gleyma Finsish-inu, þá færðu mött glös og eins og þú veist þá verður maður þreyttar af möttum glösum....

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Takk Alda mín fyrir kveðjurnar. Sástu póstinn sem ég lét Einar senda þér um "the lot"?

Tulla: verð að segja þér að það er að koma nýtt þvottaefni frá Finish. 5 í einni! Ég get ómögulega ímyndað mér 5 hliðar eða þætti tengda uppvaski en ef þeir geta það þá hlýtur þetta að vera sannleikurinn!