Ohhhh... mér finnst svo æðislegt þegar það er svona mikill snjór! Ég bókstaflega eeeeelska snjó! Það verður allt svo hreint og ferskt og hljóðlátt og síðast en ekki síst... stílhreint! Ég bara skil ekki fólk sem kann ekki að meta góða snjókomu og er að pirra sig yfir að umferðin gangi svo hægt. Mér finnst svo kósí að keyra bíl í miklum snjó. Þá er svo kósí í hlýjum bíl og fullt af snjó utan á rúðunum og ég eins og allir aðrir neyðist til að keyra hægt og rólega. Mér finnst þetta frábært, bara eins og góður skammtur af róandi fyrir samfélagið beint frá móðir náttúru og ekki veitir af! Svo er þetta auðvitað alveg frábært fyrir krakkana sem hlaupa út með snjóþotur og fara í snjókast og svo eru auðvitað aðrir sem eru yngri og eru kannski bara að sjá snjó í fyrsta skipti (svo þau muni) og geta bara ekki hætt að undrast á þessu hvíta efni sem þekur göturnar.
Það eru nú ekki allri sammála mér um þessa snjódýrkun t.d. Erna og Tedda vinkonur úr vinnunni. Ég get að vísu skilið þeirra snjónarmið að vissu leyti þar sem þær eru að norðan og eru vanar að vera fenntar inni næstum því á hverjum vetri.
Jæja ég vona bara að það snjói aðeins meira í dag og á morgun og hinn og hinn....
13 janúar 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Lúkkið á síðunni er exelent og ég er pínu sammála þér með snjóinn. Mér finnst hann soldið þægilegur, það sem mér finnst hins vegar óþægilegt við hann er að labba í honum þannig að skálmarnar blotna og svo þegar maður kemur inn finnur maður svo svakalega fyrir því að maður neyðist til að skipta um buxur, og svo er hann aðeins of kaldur.
Takk fyrir Tulla mín. Ég get nú alveg verið sammála því að það er ekki allt gott við snjóinn en þá skellir maður sér bara í þægjó föt og fær sér heitt kakó meðan að buxurnar eru að þorna á ofninum.
snjónarmið,,, hehe var þetta viljandi?
Annars er ég sammála þér með snjóinn og sammála Tullu með það þegar buxurnar blotna að neðan.
hehe þetta var algjörlega ómeðvitað. Ég er greinilega með snjó á heilanum enda varla annað hægt núna ;-)
En Steina varðandi mónitorinn þá er ég ennþá að nota minn stundum t.d. þegar Daníel er í pössun og svona, sorry. Ég er ekki tilbúin að láta hann frá mér.
Skrifa ummæli