Ég hef oft pælt í því hvað maður er orðinn fullorðinn. Mér finnst ég ekki vera fullorðin heldur er ég á þeirri skoðun að maður er aldrei eldri en manni finnst maður sjálfur vera. Ég er semsagt ennþá 18! En þó að ég lifi í mínum sjálfsblekkingarheimi sæl og glöð þá heldur heimurinn víst áfram að rúlla og í desember verð ég víst 26 ára. 26 ÁRA!!! Kræst!
Það er líka margt í umhverfi mínu sem reynir að vekja mig uppúr mínum 18 ára draumaheimi. Ég á víst mann og barn auk lána og annara skuldbindinga sem þarf að standa í skilum við ef ekki á að fara illa. Stundum ranka ég við mér og hugsa bara; vá, hvernig komst ég frá því að vera kærulaus 18 menntaskólastelpa sem var djammandi allar helgar og þurfti ekki að hugsa um neitt annað en sjálfa mig og í það sem ég er núna. Núna ber maður heljarinnar ábyrgð og síðast en ekki síst þá er fólk í þessum heimi sem treystir á mig og að ég standi mig.
Ég sá einmitt strák fyrir utan Nesti, þar sem ég var að ná í hádegismat (dugleg?), sem sat inní súperflottri Hondu með skyggðum rúðum og auðvitað glansandi álfelgum. Það má líka benda á það að það var óhjákvæmilegt að taka eftir þessum blessaða bíl þar sem að hjartað í mér fór að slá aukaslög um leið og ég kom útúr búðinni vegna tónlistarinnar sem dundi úr bílnum yfir allt bílaplanið. Þið þekkið týpuna. Hann hafði semsagt lagt við hliðina á mér og þar sem ég kem labbandi að bílnum þá fæ ég svona fýlu-killer-lookið á mig. Ég hugsa auðvitað með mér bíddu hvað er þessi að meina? Finnst honum kannski ég ekki töff og vill láta mig vita af því??? Ok, er maður í alvörunni ekki flott á sunnudegi í joggingfötum, ómáluð með hárið útí loftið að safna mat fyrir fjölskylduna? Svo fékk ég það líka á tilfinninguna að honum fyndist bíllinn minn ekki heldur nógu flottur? Bíddu við? Er ´96 árgerð af Nissan Almera ekki það heitasta í dag? Ég held bara að þessi gaur hafi ekki alveg verið með tískuna á hreinu, greyið hann.
Þetta fékk mig nú aðeins til að líta í eigin barm. Ég er búin að komast að því að ég er bara mjög töff! Ég meina ég er í þægilegum fötum á sunnudegi af því að ég er í fríi . Ég er ómáluð og með hárið uppí loftið af því að ég á frábærann mann og ég er komin af kjötmarkaðnum. Ég á stórann og þægilegann bíl sem rúmar fjölskylduna mína og meira en það og síðast en ekki síst þá get ég fengið mér Subway síðasta dag mánaðarins sem er sennilega meira en þessi litil hortittur getur sagt. Vissulega er gaman að vera "ungur" og auðvitað á maður að njóta þess en maður verður að gera sér grein fyrir því að það er líf eftir menntaskóla.
Já, ég er fullorðin og bara mjög stolt af því en síðast en ekki síst... þá er ég mjög töff!
30 júlí 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Ég var að keyra með Ísold í gær (ómáluð í launalausu fríi til að hugsa um stelpuna mína) og heyrði lag með grýlunum í útvarpinu. Ég fann svo sterkt fyrir MH dögunum við þetta lag og hvernig ég var þá að ég táraðist og táraðist (óléttuhormónar hafa nú sennilega hjálpað til) og þá fann ég að ég var EKKI sama kærulausa unglingstelpan og ég var þá. Fannst það svolítið ljúfsárt en er mjög hamingjusöm með lífið mitt í dag um leið.
Nema kannski að ég hef ekki efni á Subway síðasta dag mánaðarins...
Já Sandra mín þú færð leyfir til að vera 20 eins lengi og þú vilt. Enda lætururð oft á stundum bara eins og smábarn! haha!
Steina, þetta er bara alveg eins og þegar við vorum að skoða gömlu myndirnar af okkur hjá þér. Manni fannst maður alltaf vera feitur þá en maður vissi sko ekki hvað beið manns sneinna!haha! Ég verð greinilega að bjóða þér uppá Subbara í mánaðarlokin ;)
Já, sorry að einhver gaur sé að detta í bloggið þitt. Ég fór inná það af því að ég google-aði "hvað er heitasta look-ið í dag" til þess að bara athuga hvort að það væri til.
Og þá sé ég þig detta í eitthvað power trip á einhvern gaur með skyggðar rúður og fæ síðan bara pistilinn lesinn yfir mér fyrir að vera ennþá í skóla - reyndar kominn úr menntaskóla og er í háskóla núna.
En mér finnst magnað að 18 ára stelpa eigi mann og barn. Þú veist all love. Mér finnst ég vera orðinn hundgamall núna og sé þig semí bara - dem hún er kominn þangað sem mig langar að vera - og svo eru sumir sem eru bara plastandi rúður á neon lituðum bílum bara. . .
Það sem ég er að segja, þar sem ég nottla google-aði "hvað er heitasta look-ið". . .þá veit ég ekki, þú ert á staðnum sem heitir "lífið" held ég, hinir eru örugglega týndir, mér finnst það allavega mjög oft.
sorry með að mæta hingað óboðinn. . .
áfram þú!
Skrifa ummæli