03 júlí 2006

Kallar í eldhúsum

Þetta hljómar eins og vatn og olía ekki satt? Afhverju?
Ég man það þegar ég var lítil þá var eldhúsið staður mömmu minnar. Hún "átti" eldhúsið enda meistarakokkur. Það voru hins vegar vissir réttir sem aðeins pabbi eldaði og mamma lét honum eftir völdin í eldhúsinu en aðeins þá. Það sem pabbi sá um að elda var íslensk kjötsúpa, fiskisúpa, plokkfiskur, kjöt í karrý og pönnsur. Ég var ekkert sérstaklega hrifin af neinum af þessum réttum nema pönnsunum. Pabbi steikti bestu pönnsur í heimi. Sama hvað mamma reyndi þá sló hún honum aldrei við. Það besta var líka þegar ég fékk að vera með í pönnukökugerðinni, ég man ennþá eftir því þegar ég fékk í fyrsta skipti að setjá á pönnuna :) Ég veit líka til þess að tengdapabbi minn kemur aðeins nálægt eldavél einu sinni á ári og það er á jóladag þegar hann sér um að steikja dýrindisnautasteikur. Þetta hlýtur að vera eitthvað sem tengist frummanninum: kjöt - eldur - borða.
Á mínu heimil hafa hlutirnir hins vegar þróast öðruvísi. Þegar við Einar byrjuðum að búa saman þá stóðum við nokkuð jöfnum fótum með tilliti til matargerðar. Ég kunni rétt að sjóða egg og baka pizzu og það eina sem Einar kunni var að búa til eggjabrauð. Jú, svo reyndar kunnum við bæði að rista brauð! Þá var ákveðið að við myndum skiptast á að elda og vaska upp. Þetta gekk ágætlega þar til ég fór að gera meiri kröfur til Einars, semsagt að elda eitthvað annað en pylsur, og fór smám saman að taka völdin af honum í eldhúsinu. Guð, hvað ég sé eftir þessu núna 6 árum seinna. Elskulegur eiginmaður minn getur ekki einu sinni eldað pakkasúpu án þess að brenna hana á botninum. Hvað hef ég gert? Jú, ég gerði hann algjörlega háðann mér með alla eldamennsku og ég get engum um kennt nema sjálfum mér.
Ég hef stundum reynt að kenna honum en ég er fljót að missa þolinmæðina yfir hamförunum hjá honum Einari og enda oftast á að ákveða að ég myndi sjálf gera þetta hraðar og betur. Hvað á maðru að gera? Ætti ég að láta mig hafa það að þola eldamenskuna hans í x-langann tíma þar til hann fer að ná tökum á þessu? Ætli maður geri ekki bara eins og 90% kvenna í heiminum sem biður kallana vinsamlegast um að halda sig fjarri eldhúsinu!

9 ummæli:

Alda Berglind sagði...

Þetta er úr einhverjum genum hjá okkur. Sjálf brenni ég við allar sósur og súpur sama hvað vatnshlutfallið er mikið. Wannes sér enda um alla eldamennsku hjá okkur nema pasta... Þú ættir að spurja Einar frekar út í bakstur. Eftir því sem ég best man er hann mjög góður í öllum súkkulaðiköku og muffins bakstri.

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

haha. Kannski ég gefi honum frekar "Kitchen for dummies" í ammælisgjöf.

Alda Berglind sagði...

Hann á Mikka mús uppskriftarbókina!

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Ja, ef hún er til á giska ég á að Hrefna sé að passa uppá hana og við fáum hana sennilega þegar Daníel verður farinn að malla í eldhúsinu.

TaranTullan sagði...

Ókei, þetta fer nátturlega langt út fyrir öll velsæmismörk að ég komist að því, rúmlega viku seinna, að þú sért farin að blogga. Djöfull er þetta samt sætt lúkk!!
Ætla að adda þær á "list of fame" hjá mér
Kveðja

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

ahh.. takk Tulla mín :)Spurning hvað maður endist, allavegana svo lengi sem einhver nennir að lesa :D

Nafnlaus sagði...

Elskulegi eiginmaðurinn hérna. Ég viðurkenni fúslega að ég er mjög óduglegur að elda, enda er ég skelfilega lélegur í því. En það er ekki eins og ég geri ekki eitthvað annað í staðinn! Ég sé um uppvaskið í 90% tilfella OG ég tek meira til. Er ekki best að hver geri það sem hann er bestur í?

Svo ég taki nú eina góða samlíkingu, ef Jamie Oliver og Michael Jordan væru giftir, mundi maður senda Jamie út að keppa í körfubolta og segja Jordan að fara og elda ommelettu? Nei, auðvitað mundi maður láta Jamie sjá um eldamennskuna og láta Jordan sjá um allt uppvask! Þannig að það sem ég er að reyna að segja er: Ég er Michael Jordan uppvasksins!

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Einar? Ertu semsagt að segja að ég að ég kunni ekki að taka til? hahaha! Já, auðvitað verðurðu að gera eitthvað til að bæta upp fyrir eldamennskuna.

Kleina sagði...

Ég elda venjulega og Tóti gengur frá, mér finnst skemmtilegra að elda en þrífa eftir eldamennskuna, enda tókst mömmu aldrei að kenna mér að ganga frá jafnóðum í eldhúsinu sem er víst ein af 7 höfuðdyggðum húsfreyjunnar.