15 júlí 2006

Mittisminnkun

Jæja, mér datt í hug að ganga bara alla leið og láta vita hérna á veraldarvefnum að ég hef í hyggju að minnka mittismál mitt á næstu mánuðum. Mér fannst ég vera svo fín eftir að ég átti Daníel, alveg 3 kg léttari en áður en ég var ólétt en svo kom þetta smám saman aftur og þá sérstaklega eftir að ég hætti með hann á brjósti. Ætli ég hafi ekki bara verið búin að venjast góða lífinu að þurfa ekki að hugsa hvað ég léti ofan í mig :)
Ég held að það sé ágætis hvatning að láta alla vita þannig að ef mér dettur í hug að gefast upp þá munu vinir mínir vonandi hnippa í mig. Ég er ekki að fara útí neinar drastíkar breytingar eins og að fara í líkamsrækt eða svoleiðis, engar áhyggjur. Enginn atkins eða danskur fyrir mig heldur takk fyrir. Ég ætla bara að nota gamla góða að hætta að borða sætindi og gos og fara út að hjóla nokkrum sinnum í viku. Ég er búin að pumpa í hjólið og fór í einn hjólatúr þó svo að það hafi verið beljandi rignig. Ég myndi ekki hreyfa mig mikið ef ég ætti að fara að bíða eftir góðu veðri.
Ásdís vinkona í vinnunni er líka í átaki og við erum svona að passa uppá hvor aðra og styðja á vinnutíma. Vinnan er nefnilega bara hættulegasti staðurinn skal ég sko segja ykkur, allavegana minn. Það er nefnilega hefð ef einhver kemur að utan að koma með nammi og þegar fólk á ammæli þá eru kökur og svo til að toppa allt þá er morgunkaffi þar sem borið er fram bakkelsi annan hvern föstudag! Í gær höfðu yfirmennirnir auka kaffi og með því að því að það var föstudagur og ömurlegt veður. En ég er stolt að segja frá því að við Ásdís stóðumst freistinguna og erum þvílíkt stoltar.
Ég veit semt ekki alveg með hjólatúr í dag þar sem ég er bara hrædd um að fjúka niður og meiða mig. Göngutúr er kannski bara nær lagi. Jæja, wish me luck!

5 ummæli:

Kleina sagði...

Vá fyrst þegar ég byrjaði að lesa þetta hélt ég að þú værir að fara í FITUSOG... fékk nettan hroll og var fegin að lesa áfram...
You go girl...

Nafnlaus sagði...

Ágætis ráð er að eiga alltaf nóg af ávöxtum, fá sér einn í hvert skipti sem mann langar í eitthvað sætt. x alda

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

Steina: Ég myndi aldrei fara í aðgerð til að létta á mér.
Alda:Takk fyrir það en ég hef enga löngun (ennþá)nema þegar verið er að bjóðamanni, verst að bróðir þinn borðar ekki ávexti :(

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

hummm já ég væri nú alveg til í að komast aftur í sama gírinn og þegar ég var 16-17 ára. Man einhver eftir því þegar ég fór í fitubrennslunámskeið og léttist þvílíkt? Endan át ég ekkert nema gulrætur og poppkex með léttsmurosti og hamaðist í spinning alla daga. Endaði með að ég varð þvílíkt veik lengi lengi, kannski ekki það besta. Meðalvegurinn girls!

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

ahhh...*roðn*..þú líka :D