Ég er í smá nostalgígufýling. Mér finnst þetta aðalega koma þegar ég spái í leikföngunum hans Daníels, þá fer maður ósjálfrátt að hugsa hvað maður var sjálfur að gera og hafa gaman af þegar maður var lítill. Ég man t.d. eftir teiknimyndum eins og My little pony og Klaufabárðunum. Svo má auðvitað ekki gleyma súperkúl teiknimyndunum um Jem og The missfits (... no one´s the same, Jem is my name!).Munið þið ekki? Hún var svona rosa vinsæl stelpa sem breyttist í súperkúl ´80 söngkonu þegar hún snerti stjörnu-eyrnalokkinn sinn og svo líka She-ra sem var víst tvíburasystir He-man og greinilega framleidd til að mæta kvennkyns markhópi.

Uppáhaldið mitt var hins vegar alltaf Tommi og Jenni sem er víst núna búið að skilgreina sem eitthvað hættulegt eða óviðeigandi fyrir börn. Þetta er bara rugl! Hvað er að því að henda keilukúlu í hausinn á Tomma? Eða sprengja á honum skottið? Eða frysta hann? Ég held að þetta sé bara allt í besta lagi og kennir manni bara þvert á móti að margur er knár þótt hann sé smár! Allavegana þá fannst þetta alveg frábært og ásamt jarðíkornunum frá Disney. Man einhver eftir einhverju fleira?
Ég hitti Önnu Lilju í dag úr MH og loksins loksins fékk ég að sjá Bjarka Heiðar í eigin persónu. Ég fékk meira að segja að halda á litlu bollunni en aðeins í smá stund því Daníel var ekki sáttur við að deila mömmu sinni og lét sko heyra í sér! Jæja það er best að fara snemma að sofa til að vera hress á morgun þegar litli prinsinn vaknar. Kannski maður skelli sér bara í sund enda fátt skemmtilegra hjá litla gaurnum en að busla í sundi.
hilsen,
6 ummæli:
Ja agalegt ad madur geti ekki bara skilid bornin eftir ein heima ha, er ekki bara allt i lagi ad skella bleyjunni a, binda thau vid rumid og skilja eftir cheerios og vatnsglas og skella ser svo a djammid eda ut ad borda.
Ertu ekkert ad grinast med Tomma og Jenna? Eg elskadi ad horfa a tha og Mighty Mouse, Kaerleiskbirnina, He Man ja og Alvin og thessa ikorna, ae svo voru lika einhverjir dvergathaettir (thier kysstust med nefinu) man ekki eftir fleiru sem eg horfdi a o ju Lafdi lokkaprud :o)
Kossar SJ
já ég var alveg búin að gleyma dvergaþáttunum með oddhvössu húfurnar! Svo var líka Battle-cat og Brakúla greyfi og Andabær.
Hvað með Thundercats? Mér fannst þeir mjög spennandi og töff þegar ég var lítil. Svo sá ég þá reyndar aftur fyrir svona ári og hélt ég mundi kafna úr hlátri yfir ljónagæjanum á nærbuxunum. Veit reyndar ekki hvort þetta var sýnt á Íslandi.
Venlig hilsen.
heyrðu já það var víst Thundercats ekki battle-cats (hvaðan kom þetta?). Eftir að ég skrifaði þetta þá kíkti ég á youtube og þar er hægt að finna svona mix með kynningum af 80´s teiknimyndum. Alveg æðislegt að horfa á þetta.
Ég keypti einmitt My Little Pony the movie handa Ísold um daginn en aðallega handa mér :)
Nexus er með þetta, líka gummi bears og thundercats, sem og Dungeons and Dragons. Ég væri líka til í kærleiksbirnina, lafði lokkkaprúð, jem and the misfits og she-ra enda horfði ég á þetta allt... man m.a.s. lögin úr þessu öllu... JEM... Jem is exciting ooohhh Jem JEM... hehe
Verð samt að segja það að svona eftirá þá er Pony mindin ÓGEÐSLEGA væmin... sem er kannski ágætis mótvægi við margt í dag. En hvað með Rainbow Brite (Regnboga Birtu?) Fílaði hana, reið um á hesti og bjó til regnboga brýr.
jebb ég man þokkalega eftir regnbogabirtu með fullt af litlum hnoðrum. Ég elskaði líka strumpana þegar ég var lítil en varð síðan fyrir miklum vonbrigðum þegar ég sá þá síðan seinna meir ;( Sýnir bara að maður á ekki að horfa á þetta þegar maður er orðinn stór, bara láta þetta lifa í minningunni
Skrifa ummæli