Já nú er heldur betur farið að styttast í að hann Einar fari til Danmerkur í frekara nám. Ég er persónulega búin að taka mitt kvíðakast á þetta og gerði það fyrir ca.2 mánuðum en eftir því sem þetta færist nær þá er þetta að verða raunverulegra og raunverulegra. Stundum stend ég mig að því að hugsa að þetta sé ekkert að fara að gerast, það muni pottþétt eitthvað koma uppá sem muni breyta öllu saman en á sama tíma er maður spenntur og líka pínu áhuggjufullur.Ég hef t.d. aldrei verið "einstæð" móðir áður og hvernig ætli það sé að elda fyrir einn og hálfan? Kann maður svoleiðis skammtastærðir? Hvernig ætli það sé að vera ekki alltaf háður einhverjum örðum um tíma og aðrar auðlindir t.d. bílinn en um leið að einhver annar sé háður manni helmingi meira? Hvernig ætli sé að fara ein að sofa á kvöldin, kvöld eftir kvöld? Og hvernig á ég að útskýra fyrir Daníel að pabbi sé í öðru landi en sé ekki fluttur inní tölvuna (webcam) ?
Þetta eru stórar áskoranir framundan og mig hlakkar að vissu leyti að takast á við þær því þær munu svo sannarlega gera mig reynslunni ríkari. En það eru hins vegar líka kostir við að Einar fari út... Ég get t.d. algjörlega stjórnað sjónvarpsdagskránni sjálf. Það verður enginn heima til að freista mín með óhollustu ;-) Það verður helmingi minni þvottur og síðast en ekki síst þá ræð ég öllu ein!!! Nú er það bara heilaþvottu eina ferðina enn: þetta eru mjög jákvæðar breytingar og þig hlakkar til að takast á við þær! Svo getur maður alltaf verið þakklátur fyrir það að Einar skyldi velja Danmörk fram yfir Kanada sem var inní myndinni í byrjun sem námsland.
Í öðrum fréttum þá er Daníel búinn að fá það staðfest að hann má byrja í aðlögun 20. ágúst. Verst að við verðum ekki á landinu þá :( Við erum semsagt búin að senda póst og biðja um að fá að koma með hann fyrir helgina því þá verður Einar í fríi því annars þarf ég að taka ein alla aðlögunina með ekkert sumarfrí sem þýðir a) launalaust frí sem ég get ekki leyft mér b) farið með hann í aðlögun á daginn óg setja hann síðan í pössun (guð má vita hvar) til að ég geti unnið þetta upp. Hvorugt finnst mér vera álitlegur kostur og ég vona bara að við fáum að troða okkur aðeins inn áður en við förum til að þetta taki þá í það minnst skemmri tíma eftir heimkomuna.
Annars er Daníel held ég mjög spenntur fyrir leikskólanum og talar mikið um að Jökull sé á leikskólanum sem er í hverfinu okkar. Hann mun hafa gott af því að fara og vera innan um aðra krakka.
11 ummæli:
Heldurðu að þú fáir að stjórna sjónvarpsdagskránni ein? Ég læt þig bara snúa webcaminu að sjónvarpinu og þá getum við horft á það saman eins og venjulega!
Okei, á einhverjum tímapunkti hef ég dottið all hressilega út. Voruð ÞIÐ ÖLL ekki á leiðinni til DK, farið þið e-h seinna út, eða???
Thu att eftir ad spjara thig vel. Tekur kannski sma tima ad venjast thvi ad vera "ein" en svo verdur allt i guddi.
Einar: þú ert ekki einu sinni farinn af landinu en samt byrjaður að senda út skipanir! iss, heppinn ef ég kveiki á þessu webcami ;)
Tulla: Við Daníel förum ekki út fyrr en um áramótin
Sandra: væri ekki verra að sjá bumumyndir reglulega í vetur til að hafa eitthvað skemmtilegt að gera. Ertu komin með webcam eða skype eins og ég er búin að tala svo oft um???
hæhæ Karen - búin að setja þig í farvorites ;) og mun fylgjast vel með hér eftir.
En hvar er skólinn hans Einars??
hilsen
Árný
hæhæ Árný, gaman að sjá þig hérna.
Einar er að fara í mastersnám í tölvunarfræði í DTU. Skólinn er staðsettur í Lyngby.
Eftir prófin mín og vonandi USA-ferð get ég passað fyrir þig, hann dettur bara inn á milli Ísoldar og Áróru :)
En í VERSTA falli þá ferð þú bara fyrr út... þú getur það VÍST... en ég held reyndar að þú sért svo mikill þrjóskupúki að þú takir þetta á hnefunum ef þú þarft, frekar en að gefast upp og elta Einar út fyrr.
Knús og loforð um að reyna að vera dugleg að heimsækja þig þegar prófabrjálæðið gengur yfir.
jiii hvað þú hefur oft óþægilega rétt fyrir þér Steina! Gangi þér vel að lesa.
Oh, ég er alveg miður mín að lesa þetta. Ég veit ekki hverjum ég vorkenni mest, ykkur Daníel eða Einari eða mömmu og pabba (sem verða búin að missa öll 4 börnin og yngsta barnabarnið til útlanda innan nokkurra mánaða). Ætli ég verði ekki bara að flytja til Íslands aftur til að jafna þetta aðeins út. En annars líst mér rosa vel á að við verðum svona tölvu og tólabrjáluð fjölskylda; allir með skype og webcam og tölum saman á hverjum degi - allir við alla (svona til að veruleikafirra Daníje aðeins meira).
Bumbumyndir smumbumyndir, eg er viss um ad thad er margt miklu skemmtilegra en ad gona a myndir af vombinni minni, EN ju kanski ad eg skelli inn eins og einni seinna meir er ekki buin ad taka neinar. JAMM ja hmm webcam, internet, er ekki med svoleidis, mun kannski fa mer netid aftur thegar lilla er komin i heiminn, vid sjaum til.
Eins og Sauron sagði: I SEE ALL::::
Skrifa ummæli