07 ágúst 2006

Brúðkaupsafmæli - Pappírsbrúðkaup

Við Einar áttum 1 árs brúðkaupsafmæli í gær. Við vorum ekkert búin að plana þar sem við áttum von á að fara í útilegu en það var hætt við það vegna veðurs. Þannig að á síðustu stundu ákváðum við að slá til og gera eitthvað saman. Við vorum svo heppin að Hrefna og Egill gátu tekið Daníel í næturpössun. Þetta var fyrsta næturpössunin sem við höfum látið Daníel í og hann er nú orðinn næstum 14 mánaða. Maður var svona pínu stressaður (aðalega pössunarpíanna vegna) en að fá smá frí saman var svo sannarlega orðið löngutímabært.
Við skelltum okkur á Austur-India félagið og maturinn þar var geggjaður. Í fordrykk fengum við okkur Mango-Lassi sem er svona unaðslegur jógúrt drykkur og í forrétt fengum við okkur síðan Tandoribakaðann lax með kryddjurtum. Þetta var bæði rosalega gott (fæ alveg vatn í munninn) en það jafnaðist ekkert á við aðalréttinn. Einar fékk sér blöndu af kjöti bökuðu í Tandori ofninum og ég fékk mér risarækjur sem voru allsvakalega kryddaðar. Eftir matinn ákváðum við að rölta aðeins um Laugarveginn í góða veðrinu og það var þvílíkt næs og rómó. Svo fórum við bara heim og áttum rólega stund þar yfir spilum og spjalli. Það var svo alveg GEÐVEIKT að fá að sofa út saman í fyrsta skipti síðan að Daníel fæddist!
Þegar ég er að skrifa þetta hérna þá hljómar þetta dáldið óspennandi en við áttum alveg frábært kvöld bara við tvö ein saman. Það er alveg nauðsynlegt að fá smá, bara pínu, frí frá Daníel a.m.k. einu sinni á ári til að endurhlaða batteríin. Við vorum nú samt strax farin að sakan hans um leið og við vöknuðum. Spurning hvort við semjum ekki bara við Hrefnu og Egill að gera þetta að árlegri brúðkaups-afmælis-gjöf?
p.s. Fann ekki betri brúðkaupsmynd af okkur þar sem við eigum enn eftir að skanna inn pro-myndirnar. Tengdamamma á það til að festast í þessum ská-myndatökum og allar myndirnar sem hún tók af okkur þennan daginn eru svona :D

7 ummæli:

TaranTullan sagði...

Til hamingju..
Þetta hljómar ekkert smá huggulegt, enda finnst mér yfirleitt þessar stundir, spjall og rólegheit,rölt og biltúrar o.þ.h bestu stundirnar með betri helmingnum.
Kveðja

Nafnlaus sagði...

Hæ Karen. Datt inn á síðunna í gegnum Tullusíðu, til hamingju með brúðkaupsafmælið :) Flott mynd.
Kv. Halldóra.

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

takk takk. Rosalega er gaman að sjá ykkur gömlu bekkjasysturnar hérna inni. Það gefur manni nú smá spark í rassinn að skrifa svona um brúðkaupsafmælið, verð að drífa mig að fara að skanna inn hinar myndirnar og hver veit nema ég láti eina flakka hérna :)

Kleina sagði...

he he gott að vita þetta með útileguna sem ástæðu fyrir engum plönum. Ég hélt í alvörunni að þið hefðuð gleymt þessu þegar ég fékk sms-ið á sunnudaginn :)
Til hamingju bæði tvö (gleymdi að segja það þá) og hlakka til að hitta ykkur við betra tækifæri...

Nafnlaus sagði...

pappírspési

Nafnlaus sagði...

Ich bin der kleine Hausmaus, willst du mich etwas essen geben?

Karen Olga Ársælsdóttir sagði...

AHAAAA!ALDA!